Ægir - 01.08.2011, Page 70
68
Makrílveiðarnar síðustu tvö til þrjú
sumur hafa aukið umsvifin í höfnum
Fjarðabyggðar umtalsvert og eru
sannarlega mikil og góð búbót, að sögn
Steinþórs Péturssonar, hafnarstjóra .
Makrílvinnsla hefur verið mest á Norð-
firði og Fáskrúðsfirði, með tilheyrandi
uppgripum fyrir landverkafólk og ekki
hvað síst skólafólk .
„Þetta er á allan hátt jákvætt . Mikil
vinna og það léttir undir með skólafólki
og þar með heimilum hér á svæðinu .
Og því er auðvitað ekki að neita að allir
njóta, útgerðirnar, fyrirtækin og ekki
síður hafnirnar þegar miklu er landað og
mikið unnið í húsunum,“ segir Steinþór
en uppsjávarfrystihús Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað hefur verið afkastamest í
frystingu á makríl .
Steinþór segir að til viðbótar við land-
anir uppsjávarfiskiskipa á ferskum
makríl afsetji mörg frystiskipanna afurðir
sínar í frystigeymslur eða beint um borð
í flutningaskip . Þannig má segja að í allt
sumar hafi ýmist ferskum eða frystum
makríl verið landað í fjórum höfnum, þ .e .
Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði og
Fáskrúðsfirði . Þessar fjórar, ásamt
Stöðvarfjarðarhöfn og Mjóafjarðarhöfn
mynda hafnir Fjarðabyggðar og einnig
vöruhöfnin við Fjarðaál í Reyðarfirði .
Steinþór segir að tilkoma þess mann-
virkis hafi aukið umfang og rekstur
hafna Fjarðabyggðar umtalsvert enda
miklir vöruflutningar í tengslum við fram-
leiðslu fyrirtækisins til viðbótar öðrum
flutningum um höfnina . Aukin umferð
stórra flutningaskipa vegna álversins
krefjist öflugs dráttarbáts sem höfnin
hafði ekki yfir að ráða áður, en hann
nýtist einnig öðrum höfnum sveitar-
félagsins þegar þannig háttar til .
Yfir fjórðungur aflamarks landsins
„Sú þróun sem er hvað eftir-
tektarverðust hjá okkur er styrking
hafnanna sem fiskihafna með aukinni
löndun á uppsjávarfiski . Hér hefur verið
mikið byggt upp hjá fyrirtækjunum
vegna uppsjávarveiða, bæði frystihús,
bræðslur og frystigeymslur . Loðnan
hefur verið í lægð en virðist nú á upp-
leið á sama tíma og hægara er um í ís-
lensku síldinni og kolmunna . Síðan kom
makríllinn af miklum krafti inn í þetta
þannig að hér á fjörðunum vorum við og
erum vel í stakk búin að takast á við
þessar veiðar og vinnslu . Enda sýna
tölurnar að á bilinu 25-28% af úthlut-
uðum kvóta kemur á land í höfnum
Fjarðabyggðar . Og að sama skapi eru
þessar hafnir að skila mjög háu hlutfalli í
útflutningsverðmætum sjávarafurða,“
segir Steinþór . Á árinu 2010 var land-
aður afli í höfnum Fjarðabyggðar um
300 þúsund tonn . Þar af var landað
tæpum 200 þúsund tonnum á Norðfirði .
„Þetta sýnir öðru fremur hversu miklar
fiskihafnir þetta eru og hversu upp-
sjávarfiskur vegur þungt í Fjarðabyggð .
Það endurspeglast síðan í öllum um-
svifum í kringum þær .“
Um helstu framkvæmdaverkefni á
þessu ári segir Steinþór að lokið hafi
verið við gerð þekju á nýjan stálþilskant
á Norðfirði auk þess sem endurnýjun
standi yfir í öllum höfnunum á flot-
bryggjum fyrir smábáta . „Þetta er bæði
vegna aukinna umsvifa í smábátaútgerð
og fjölgunar skemmtibáta . Í þessu sem
öðru reynum við að fylgja þróuninni eftir
og hafa aðstöðuna sem besta,“ segir
Steinþór .
Hafnir Fjarðabyggðar
Hafnargötu 2
730 Fjarðabyggð
Sími 470 9000
www.fjardabyggd.is
FJARÐABYGGÐ
HAFNARÞJÓNUSTA
EINS OG HÚN
GERIST BEST!
Hafnarsjóður Fjarðabyggðar
Löndunarþjónusta
Ísverksmiðja
Kæligeymsla
Frystigeymsla
Vélaverkstæði
Veiðarfæraþjónusta
Rafeindaþjónusta
Olíuafgreiðsla
Flutningar
Afþreying
Verslanir
Bankaþjónusta
Læknisþjónusta
Sími 470 9000 - Bréfasími 477 1771
Netfang fjardabyggd@fjardabyggd.is
Veffang www.fjardabyggd.is
FJARÐABYGGÐ
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Mjóifjörður
Norðfjörður
Þegar lagst er að bryggju er ómetanlegt
að eiga í vændum hafnarþjónustu sem
mætir öllum þörfum skips og áhafnar.
Njótið stunda milli stríða á höfnunum í
Fjarðabyggð. Við tökum vel á móti ykkur.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
JA
4
92
97
0
2/
10
Norðfjörður er stærsta fiskilöndunarhöfnin í Fjarðabyggð .
Uppgangur í Fjarða-
byggðarhöfnum