Ægir - 01.08.2011, Qupperneq 5
3
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, nýráðinn for-
stjóri VÍS, hefur frá blautu barnsbeini
haft sterk tengsl við undirstöðuatvinnu-
grein þjóðarinnar . Hún er fædd og
uppalin í Stykkishólmi með matarkistuna
Breiðafjörð við þrösk uld inn og líkt og
gengur og gerist í sjávarplássum lands-
ins var ungviðið snemma kallað til
verka . „Hörpuskelin var gull síns tíma og
bæði börn og unglingar tóku þátt í
bjarga verðmætum þegar á þurfti að
halda, sama hvenær sólarhringsins það
var . Til dæmis var ekki óalgengt að slíkt
gerðist á skólatíma, einkum þegar kom
að útskipun . Þá hlupum við til en vita-
skuld með vitund og vilja skólayfirvalda .
Það vita allir hversu þýðingarmikið það
getur verið að hafa snör handtök í
sjávarútveginum .“
Enginn nýgræðingur
Nýi forstjórinn kemur ekki að trygg-
ingageiranum sem nýgræðingur . Hún
tók virkan þátt í að byggja upp endur-
skoðunarfyrirtækið Deloitte á Íslandi og
vann þar, á rúmlega 20 ára ferli, ekki
hvað síst með fyrirtækjum í fjármála- og
tryggingageiranum einkum við endur-
skoðun og ráðgjöf á sviði reiknings-
halds og skattamála . Sigrún Ragna var
einn eigenda Deloitte á Íslandi frá 1992,
sat í stjórn þess og var stjórnarformaður
um skeið . Hún lauk cand . oecon prófi af
endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands
árið 1987, löggildingu sem endurskoð-
andi árið 1990 og MBA prófi frá Háskól-
anum í Reykjavík árið 2007 .
Öflug liðsheild
Áður en Sigrún Ragna réð sig til VÍS var
hún framkvæmdastjóri fjármálasviðs Ís-
landsbanka og bar ábyrgð á fjárhags-
sviði, fjárstýringu og fjármögnun
bankans ásamt ýmsum stefnumarkandi
verkefnum . Hún hefur því látið til sín
taka í viðamiklum verkefnum og að
segja má krefjandi tiltekt eftir efnahags-
hrun . „Aðalatriðið er að hafa gott sam-
starfsfólk þar sem allir vinna sem ein
heild að settu marki . Það var raunin hjá
bankanum og þannig er það líka hjá
VÍS . Ánægðir viðskiptavinir eru aðall
hvers fyrirtækis . Með mismunandi trygg-
ingum, og vernd sem hentar hverjum og
einum, reynum við að uppfylla þeirra
óskir .“
Sjávarútvegur í öndvegi
Mörg af öflugustu sjávarútvegsfyrir-
tækjum landsins eru í viðskiptum við
VÍS og Sigrún Ragna vill fjölga þeim enn
frekar . „Við teljum okkur fremst keppi-
nautanna í forvörnum og því eftir miklu
að slægjast fyrir sjávarútvegsfyrirtækin
að koma til samstarfs við VÍS . Það þarf
ekki að kosta stórfé að ná verulegum
árangri í slysavörnum og við eigum ekki
að sætta okkur við að slys séu óhjá-
kvæmilegur fórnarkostnaður sjósóknar .
Þau má fyrirbyggja með markvissum
vinnubrögðum, skráningu atvika og
skjótum úrbótum . Hér er fagleg aðstoð í
boði og ef tekst að afstýra slysum
komum við í veg fyrir ótímabærar og
tíðum miklar þjáningar, ásamt því að
spara umtalsverða fjármuni . Við setjum
markið hátt og viljum að atvinnugreinin
öll leggist á árarnar að útrýma stórum
sem smáum slysum . Þau eru ekki bara
óþörf heldur óviðunandi .“
Vátryggingafélag
Íslands hf.
Ármúla 3
108 Reykjavik
Sími: 560 5000
www.vis.is
Konan í brúnni
Forstjóri VÍS leggur áherslu á sjávarútveginn
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, segir að ekki kosti stórfé að ná verulegum árangri í
slysavörnum .