Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 10
8
Hjá Tryggingamiðstöðinni er m .a . lögð
áhersla á heilsu sjómanna, öryggi í starfi
og fyrirbyggjandi aðgerðir hvað slys
varðar . Þá gefur Tryggingamiðstöðin út
matreiðslubókina Hollusta á hafi þar
sem finna má uppskriftir að góðum og
hollum réttum .
„Ef starfsmenn hreyfa sig reglulega,
borða hollan mat og eru í góðu formi þá
eru þeir betur í stakk búnir til að takast á
við starf sitt,“ segir Methúsalem Hilmars-
son, forstöðumaður forvarna hjá Trygg-
ingamiðstöðinni . „Þeir eru jafnframt
betur í stakk búnir til að forða sér úr
hættulegum aðstæðum sem og að jafna
sig á skemmri tíma ef þeir lenda í slysi .“
Starfsemi forvarnadeildarinnar hjá
Tryggingamiðstöðinni felst m .a . í að farið
er endurgjaldslaust í fyrirtæki, sem eru í
viðskiptum hjá Tryggingamiðstöðinni,
sem ráðgefandi aðili og þessi mál rædd .
„Við viljum ná upp menningu og anda
í fyrirtækjunum þannig að öryggismálin
séu til umræðu og æskilegur þáttur af
daglegri vinnu . Ég segi að menning og
andi séu þéttiefni fyrirtækisins og þá er
ég að skírskota til þess að allir stefni í
sömu átt; að menn sjái að þeir geti leyst
vinnuna á öruggan hátt en setji sig ekki í
óþarfa hættu . Við köllum það „öryggis-
hegðun“ og „öryggismenningu“ . Viðhorf
starfsmanna til að hægt sé að hafa áhrif
á aðstæður skipta miklu máli og til þess
þurfa einstaklingar að vera sannfærðir
um eigin getu til að hafa áhrif á að-
stæður með breyttri hegðun . Það
smitast allir þegar fyrirtæki fara af stað í
verkefni eins og að efla forvarnir og
huga að öryggisþáttum eins og
áhættumati og slysaskráningu . Þetta
verður hluti af menningu fyrirtækisins .
Markmið okkar er að öryggishegðun og
öryggismenning verði hluti af daglegri
vinnumenningu .“
Skrá „næstum því slys“
Methúsalem segir að Tryggingamið-
stöðin leggi áherslu á að í þeim
fiskiskipum sem eru tryggð hjá fyrir-
tækinu séu skráð „næstum því slys“ .
„Það er ekki spurning um hvort það
verði slys heldur hvenær það verði því
oft og tíðum við ákveðna vinnu hefur
það gerst að það hafa orðið „næstum
því slys“ við vinnu en svo er ekkert gert
í því . Í þeim tilfellum þarf kannski að
breyta aðeins verklagi eða t .d . efnisvali
við þá vinnu þannig að sú hætta verði
ekki til staðar . Við teljum að með því að
skrá „næstum því slys“ verði farið að
skoða hvað gerðist og hverju sé hægt
að breyta . Eins er mikilvægt að skrá slys
vel og nákvæmlega .“
Á sjávarútvegssýningunni mun fyrir-
tækið MultiTask í samstarfi við Trygg-
ingamiðstöðina kynna í bási TM tæki
sem kallast Sjókall sem eykur öryggi
sjómanna og flýtir fyrir björgun ef maður
fellur fyrir borð . Tækið er sett í björgun-
arvesti skipverja og það springur út
þegar vatnsnemi tækisins nemur vatn/
sjó þegar maður fellur fyrir borð og
byrjar þegar í stað að senda út
neyðarkall með GPS hniti .
Matreiðslubók
Tryggingamiðstöðin er að gefa út mat-
reiðslubókina Hollusta á hafi . TM fékk
Sæmund Kristjánsson og Dóru Svavars-
dóttir á veitingastaðnum Á næstu
grösum til liðs við sig til að útfæra
bókina . „Í bókinni eru uppskriftir að
einföldum og hollum réttum . Þarna er
að finna marga flokka svo sem súpur,
kjötrétti, fiskrétti, pastarétti, baunarétti,
brauðuppskriftir og kökuuppskriftir . Til-
gangur bókarinnar er að fylgja því eftir
sem við leggjum áherslu á varðandi
hollan mat og að hjálpa útgerðum og
matreiðslumönnum til sjós að auka á
fjölbreytni í mataræði . Það er ósk og
von okkar hjá Tryggingamiðstöðinni að
svo muni verða og bókin muni eiga þátt
í að bæta matarvenjur .“
Tryggingamiðstöðin
Síðumúla 24
108 Reykjavík
Sími 515 2000
www.tm.is
Methúsalem Hilmarsson . „Við viljum ná upp menningu og anda í fyrirtækjunum þannig að
öryggismálin séu til umræðu og æskilegur þáttur af daglegri vinnu .“
Vellíðan og öryggi
um borð