Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 12
10
Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík var
stofnað fyrir sjö árum í gömlu vinnslu-
húsi Bæjarútgerðar Reykjavíkur við
gömlu höfnina, en síðan þá hefur það
bæði vaxið og dafnað . „Í raun er það
merkilegt að sjóminjasafn hafi ekki verið
sett fyrr á laggirnar hér í Reykjavík .
Reykjavík byggist fyrst og fremst upp
sem hafnarborg og fiskibær . Hér er auð-
vitað langstærsta höfnin og mest landað
af afla . Íslendingum hættir almennt til að
gleyma mikilvægi sjávarútvegs og hvað
menning okkar sækir mikið til fiskeiða
fyrri tíma,“ segir Eiríkur P . Jörundsson,
forstöðumaður safnsins .
„Hér í safninu gerum við þessari
sögu skil . Fastasýningarnar tvær, sem
við erum að þróa, rekja sögu fiskveiða
frá árabátum til fjölveiðiskipa og draga
fram sögu hafnargerðar, kaupsiglinga
og fleira . Þá eru salir hér vinsælir fyrir
fundahöld, fyrirlestra, móttökur og hvers
kyns viðburði . Ekki má síðan gleyma
einstöku útisvæði safnsins hér í gömlu
höfninni, sem hefur verið að taka á sig
frábæra mynd . Í safninu er líka rekið
kaffihúsið Bryggjan og gestir þess geta
sest út á bryggjuna og notið einstaks
útsýnis yfir höfnina í góðu skjóli yfir
kaffibollanum .“
Eiríkur segir gesti safnsins jafnan
mjög ánægða með heimsókn í safnið .
Augljóslega sé eftirspurn eftir
sjóminjasöfnum í höfuðborginni, enda
landsmenn sjálfir og erlendir ferðamenn
meðvitaðir um að þessi eyþjóð hefur
alltaf byggt afkomu sína á siglingum og
fiskveiðum . Þá vekur varðskipið Óðinn,
sem liggur við bryggju safnsins, ávallt
mikla lukku . „Honum er haldið í því
ástandi sem hann var síðast í vörslu
gæslunnar og er í raun stórt skref í varð-
veislu sögulegra skipa hér á landi .“
Skipið gengdi mun stærra hlutverki
en fólk gerir sér grein fyrir í dag: „Óðinn
kemur hingað til lands árið 1960 þegar
vegasamgöngur voru víðast hvar mjög
slæmar . Þá fór t .d . forsetinn um landið
með skipinu, en auk þess var það notað
til að ferja þingmenn, bjarga fólki milli
fjarða og sækja og flytja slasað og veikt
fólk,“ segir Eiríkur og bætir við að Óðinn
sé eina varðskipið sem hafi tekið þátt í
öllum þorskastríðunum . „Við höldum
einnig utan um þá sögu og höfum klipp-
urnar til sýnis . Ferðamenn verða mjög
hissa á að við höfum í fyrsta lagi farið í
návígi við bresk herskip og í öðru lagi
að þetta hafi verið aðalvopnið!“
Víkin
– Sjóminjasafnið í Reykjavík
Grandagarði 8
101 Reykjavík
Sími 517 9400
www.sjominjasafn.is
English summary
“The role of Vikin-Maritime Museum in Reykjavik is to
present a living record of Iceland’s intrinsic relationship with
fisheries,“ says museum manager Eiríkur P . Jörundsson . The
museum consists of various exhibition halls as well as the
Coast Guard vessel Óðinn – docked right outside the
museum’s back door . “Vikin has three permanent
exhibitions, all are educational and intriguring: Ódinn and
its mysterious world, the Reykjavik harbour and the
development from row boats to trawlers . We also host a
number of temporary exhibitions, events and meetings .“
Ódinn is kept in its original condition, as if the Coast
Guard officers had just left for the day . “Ódinn’s presence
here is a huge step in ship preservation in Iceland . When
the ship was first brought to Iceland in 1960 the harsh
winters and road conditions often made transportation only
possible by sea . The president travelled by Ódinn as did
members of parliament, and it was also used to transport
sick or injured people from isolated fjords towards medical
assistance .“
Another of Ódinn’s many roles was to protect the fishing
grounds . “The cod-wars are also featured in our exhibition,
as is the main “weapon“ the Icelandic Coast Guard used to
defend their fishing grounds: The clips used to severe the
fish nets from the British trawlers!“
Eiríkur P . Jörundsson, forstöðumaður Sjóminjasafnsins í Reykjavík .
Ótal hlutverk Óðins
Persónuleg og traust þjónusta um allan heim.
Við hlökkum til að sjá þig á sýningarbásnum okkar, E31,
á Sjávarútvegssýningunni í Kópavogi, 22.-24. september.
www.samskip.is
Saman náum við árangri