Ægir - 01.08.2011, Page 22
20
„Að mínu mati þarf að taka þá umræðu
hér á landi hvort þau gjöld sem er verið
að leggja á sjávarútveginn eigi ekki að
nota, að minnsta kosti að einhverju leyti,
til að standa undir rannsókna- og þró-
unarstarfi í þágu greinarinnar . Þetta er
þekkt módel í nágrannalöndum okkar
og að mínu mati gæti þetta verið lóð á
vogarskálar til sáttar um aukna gjald-
töku, auk þess að skapa traustari grunn
fyrir nýsköpun í sjávarútvegi . Sá þáttur
er greininni mjög mikilvægur og
óumdeilt að við eigum mjög mikil
nýsköpunartækifæri ónýtt . Ég horfi á
þessa leið með tvennum hætti, annars
vegar sem hluta af sátt og hins vegar
sem þjóðhagslega hagsmuni,“ segir
Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís ohf .
Sveinn bendir á að í Noregi er það
fyrirkomulag að 0,75% af útflutnings-
verðmætum sjávarútvegs renna til
markaðsmála fyrir greinina og 0,3% fara
í þróunarmál . Þessi framlög koma þar í
landi til viðbótar þeim framlögum sem
norskur sjávarútvegur fær úr ríkissjóði til
rannsókna og þróunar . „Ég sakna þess í
þeirri umræðu sem er hér um þessar
mundir að sjá ekki tillögur í þessa veru,“
bætir hann við .
Erlend verkefni aukast
Matís ohf . tengist sjávarútvegi með mjög
fjölbreyttum hætti . Ekki aðeins hér á
landi heldur einnig erlendis því fyrir-
tækið sækir sér sífellt aukin erlend verk-
efni sem mörg hver eru á sjávarútvegs-
sviðinu . Þau eru fjölþætt, geta verið allt
frá beinum rannsóknarverkefnum yfir í
verkefni á borð við EcoFishMan þar
sem þróuð er ný aðferðafræði sem hug-
myndin er að nýtist við breytingar og
umbætur á fiskveiðistjórnunarkerfi
Evrópusambandsins .
„Hér á landi hefur átt sér stað mikill
niðurskurður á opinberu og hálf-
opinberu fé til rannsókna- og þróunar-
mála síðustu árin . Á endanum kemur
þetta niður á gæðum starfsemi rann-
sóknaraðila eins og Matís en hins vegar
hefur okkur tekist að halda okkar stöðu
vegna þeirrar stefnu sem mörkuð var
fyrir nokkrum árum að sækja stærri
hluta af okkar tekjum erlendis . Það má
orða þetta þannig að sú stefnumörkun
hefur gert að verkum að okkur hefur
tekist að rækja okkar hlutverk hér
innanlands betur en ella hefði verið .
Erlendu verkefnin styrkja Matís bæði
faglega með auknum tengslum við
erlenda fagþekkingu en ekki síður fjár-
hagslega þar sem bæði Matís sem slíkt
nýtur góðs af og einnig fjölmargir inn-
lendir aðilar í matvælaframleiðslu sem
koma að verkefnunum með okkur . Við
Matís
Vínlandsleið 12
113 Reykjavík
Sími 422 5000
Fax 422 5001
www.matís.is
Sveinn Margeirson, forstjóri Matís .
Þekking Matís
á sjávarútvegi
er eftirsótt