Ægir - 01.08.2011, Page 36
34
Góður svefn er grunnur að góðum degi
og því er sjálfsagt að kojur á skipum og
bátum séu búnar þægilegum
gæðadýnum . RB rúm hafa þjónað Ís-
lendingum í sjö áratugi en fyrirtækið
framleiðir og selur dýnur og rúm sem
sniðin eru að þörfum hvers og eins .
„Góð hvíld skiptir gríðarlega miklu
máli og á það jafnt við sjómenn sem og
aðra . Góð dýna styður vel við bakið og
skilar fólki fersku og tilbúnu að takast á
við krefjandi störf . Það er margsannað
að vel hvíldur einstaklingur er árvökull
og minna stressaður og því augljóslega
betri starfskraftur auk þess sem að góð
hvíld dregur úr líkum á slysum,“ segir
Birna Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri
RB rúma .
Sérsmíði fyrir skip og báta
Þrátt fyrir að flestir þekki til RB rúma vita
ef til vill færri af þeirri þjónustu sem fyrir-
tækið býður upp á þegar kemur að því
að sníða og framleiða dýnur fyrir
sjávarútveginn . „Við sérsníðum dýnur
fyrir hvaða stærð af kojum eða rúmum
sem er, bæði svamp- og springdýnur . Þá
höfum við einnig sinnt viðhaldi í skipum
og tekið að okkur að bólstra bekki og
sófa í setustofum og eldhúsum, svo fátt
eitt sé nefnt .“
„Við seljum gjarnan springdýnur í
stærri skip, en þær geta hentað illa í
smærri báta vegna lagsins á bátunum .
Við höfum ekki þann möguleika að
sníða ávalar springdýnur, til að mynda,
en slíkar hömlur aftra ekki svampinum,“
segir Birna . „Að öðru leyti getum við
búið til dýnur eftir hvaða máli sem er .
Við fáum gjarnan skapalón send til
okkar eða þá að við mætum sjálf í
skipin og mælum það sem til þarf, en af
landfræðilegum ástæðum gerum við
það þó bara á höfuðborgarsvæðinu .“
Íslenskt og gott!
Birna bendir á auðvelt sé að breyta dýn-
unum ef menn eru ósáttir . „Ef þér finnst
dýnan vera of mjúk eða of hörð þá
breytum við henni þér að kostn-
aðarlausu innan hálfs árs frá kaupum .
Góð þjónusta er lykilatriði í viðskiptum
enda er ánægður viðskiptavinur og góð
meðmæli ein besta „auglýsing“ sem til
er . Við viljum að fólk fari héðan með
sterkari og endingarbetri vöru en það
fær annars staðar,“ segir Birna en RB
rúm unnu á dögunum til alþjóðlegra
verðlauna fyrir vandaða framleiðslu og
markaðssetningu á International Quality
Crown Awards í London . Þetta eru stór
verðlaun en það er bara eitt fyrirtæki í
hverri grein sem fær þessi verðlaun ár
hvert .
Dýnurnar eru framleiddar í húsnæði
RB rúma í Hafnarfirði og er því um ís-
lenska vöru að ræða . Birna segir ýmsa
kosti fylgja því að framleiða dýnurnar
sjálf, til að mynda sé hægt að breyta
dýnunum ef fólk er ósátt við stífleika
þeirra . Þá bjóði fyrirtækið upp á endur-
nýjun gamalla springdýna: „Ef þú átt
dýnu frá okkur og hún er farin að
bælast eftir margra ára notkun, þá getur
þú komið með hana hingað og við yfir-
færum . Sé áklæðið heillegt getum við
uppfært „innihaldið“ fyrir lítinn pening .
Þannig færðu í raun nýja dýnu, en fyrir
mun lægra verð en að fjárfesta í nýrri
dýnu fyrir tugi þúsunda .“
RB rúm
Dalshrauni 8
Hafnarfirði
Sími 555 0397
www.rbrum.is
Góð dýna styður vel við bakið og skilar fólki fersku og tilbúnu til að takast á við krefjandi
störf, segir Birna Ragnarsdóttir í RB rúmum .
Góð hvíld er
nauðsynleg á sjó