Ægir - 01.08.2011, Side 38
36
Friðrik A . Jónsson ehf . verður 70 ára á
næsta ári og hefur Simrad verið helsta
umboð fyrirtækisins í gegnum árin . Nú
hefur Simrad sett á markaðinn nýjan
dýptarmæli, ES70, sem hefur fengið
frábærar móttökur . Hann er með betri
framsetningu og meiri aðgreiningu en
fyrirrennari hans, ES60, sem hefur verið
langvinsælasti dýptarmælirinn í stærri
skipum flotans undanfarin 10 ár . Einfalt
er að uppfæra ES60 í ES70 og hafa
margir notfært sér þann möguleika . Nýi
SX90 lágtíðnisónarinn frá Simrad er
mun öflugri en eldri sónarar frá Simrad
en þar er notuð nýjasta tækni frá Kongs-
berg við úrvinnslu á endurvarpi til að fá
meiri langdrægni og betri aðgreiningu
enn áður hefur þekkst . Nýi
millitíðnisónarinn SH90 byggir á sömu
tækni og SX90 og reynist einkar vel við
makrílveiðar . Trollkerfin frá Simrad eru
FS70 og PI50 og nú er að koma á
markað myndavél sem sýnir hvað er að
koma inn í trollið .
Nýja sambyggða línan frá Simrad er
fáanleg í black box með venjulegum
skjá eða snertiskjá og er hún einnig
tengjanleg við tölvuskjái . Í þessari
tækjalínu er nýr dýptarmælir þar sem
„broadband“ tækni er beitt við
sendingar og gefur því afar mikla upp-
lausn á mynd . Hægt er að tengja allt
saman og stjórna allt að tveimur röd-
urum samtímis . Valmyndakerfi er á ís-
lensku og allur tengdur búnaður talar
saman á sérstöku SimNeti, sem
einfaldar allar samtengingar . Simrad
línan getur einnig tengst búnaði sem
notar NMEA183 eða NMEA2000
staðlana .
Simrad er nú komið með aðra kyn-
slóð af vinsælu BroadBand rödurunum
sem er mun langdrægari en eldri
útgáfan en er samt með sömu góðu að-
greininguna á stuttu skölunum og án
truflana upp við skipið eins og er á
hefðbundnum rödurum . Svo ekki sé
talað um litla sem enga orkunotkun .
Friðrik A . Jónsson býður öflugan fjar-
skiptapakka frá Sailor og
Thrane&Thrane . Sailor fjarskiptabún-
aður var seldur í nýsmíðina Þórunni
Sveinsdóttur . Sailor er kominn með nýja
línu af VHS, MF/HF stöðvum og
Inmarsat C tækjum . Inmarsat-C lína frá
Sailor var sett í Ægi, Tý og Kleifaberg en
Týr fékk einnig sjónvarpskúlu frá
Intellian sem er mun einfaldari í notkun
en áður hefur þekkst .
Nýja sambyggða línan frá Lowrance
er einnig á íslensku og fáanleg með sjó-
og landakortum . Lowrance línan býður
upp á nokkrar tegundir af rödurum,
dýptarmælum og er tengjanleg við
SonicHub hljómflutningkerfi . Í dag er
hægt að fá Lowrance tæki með
hágæða upplausn sem sýnir nákvæm-
lega hvað er á botninum, t .d . sést vel
þari, dekk, o .fl .
Þjónusta skipar stóran sess í starfi
F .A .J . og vegna reynslu starfsmanna
fyrirtækisins hefur fyrirtækið verið
fengið til að sjá um allmargar breytingar
í brúm skipa . Þar er ýmist um að ræða
að endurraða þeim búnaði sem fyrir er
og t .d . setja upp flatskjái stað eldri
lampaskjáa . Í öðrum tilvikum er settur er
upp nýr búnaður í bland við eldri búnað .
Marás er á sama stað og F .A .J . og virka
fyrirtækin því í raun eins og eitt þar sem
menn vinna mjög náið saman . Þetta
skipulag býður upp á að samnýta þekk-
ingu og reynslu starfsmanna til að leysa
úr hinum margvíslegustu vandamálum
fyrir viðskiptavinina .
Friðrik A. Jónsson ehf.
Akralind 2
201 Kópavogur
Sími 552-2111
www.faj.is
Starfsmenn FAJ við tæki sem boðið er upp á . Svavar Tómasson sölustjóri er t .v . í stólnum
og við hlið hans er Eyjólfur Bergsson .
Hafa þjónað sjávar-
útveginum í 70 ár