Ægir - 01.08.2011, Side 48
46
„Staðreyndin er sú að við höfum þróað
hér á landi starfsemi fiskmarkaða sem
er hugmyndafræðilega og tæknilega
svo vel þróuð að eftir er tekið víða
erlendis . Fiskmarkaðirnir hafa stuðlað
að því að mörg ný fyrirtæki hafa orðið til
í kringum vinnslu á fiski, fyrirtæki sem
hafa jafnvel rutt braut með nýjar vörur
inn á markaði erlendis og allt þetta
hefur skapað mörg störf . Fisk-
markaðirnir hafa líka verið dýrmætir
mörgum útgerðum, stórum sem smáum
og aukið hagkvæmni og stuðlað að
betri nýtingu afla og þar með betri
umgengni um auðlindina . Það er þess
vegna afleitt að standa á þessum
tímapunkti og segja að við horfum fram
á hnignun og kólgubakka framundan .
En sú er engu að síður staðreyndin,“
segir Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðs Íslands hf .
Gæðafiskur á mörkuðunum
Fiskmarkaður Íslands hf . er stærsti fisk-
markaðurinn á Íslandi og fara um 50% af
seldum fiski á íslenskum fiskmörkuðum
gegnum hann . Afgreiðslustaðir eru alls
9 talsins; í Þorlákshöfn, Reykjavík,
Akranesi, Arnarstapa, Rifi, Ólafsvík,
Grundarfirði, Stykkishólmi og á
Skagaströnd . Einnig rekur fyrirtækið
fulkomna flokkunar- og slægingar-
þjónustu á Rifi . Skrifstofa félagsins er í
Ólafsvík, sem jafnframt er stærsti ein-
staki móttökustaðurinn .
Meirihluti þess afla, sem seldur er hjá
Fiskmarkaði Íslands hf ., er af dagróðra-
bátum og er fiskurinn seldur áður en að
honum er landað . Því er ferskleiki
fisksins og gæði mikil . Við löndun er
þess gætt að fiskurinn sé vel ísaður og
að honum sé raðað í einangruð fiskker .
Jafnframt er hitastig fisksins mælt og
það skráð . Eftir að fiskinum hefur verið
landað er hann flokkaður og veginn, ís-
aður að nýju og síðan afgreiddur til
kaupenda, yfirleitt að kveldi veiðidags .
Uppboð fara fram á hádegi alla daga og
geta kaupendur tengst uppboðskerfinu
frá tölvum sínum hvar sem er í heim-
inum .
Getum snúið þróuninni við
Páll segir að umsvif á fiskmarkaði hafi
dregist saman samfellt síðustu þrjú árin .
Það verði ekki skýrt með samdrætti í
veiðum heldur sé um að kenna færslu
stjórnvalda á aflaheimildum inn í alls
kyns úthlutunarpotta; strandveiði,
byggðakvóta og þannig megi telja .
Óvissa um framtíðarfyrirkomulag fisk-
veiða stuðli að afturför í greininni .
„Sömu stjórnmálamenn og þetta gera
tala svo manna hæst um að helst allur
fiskur fari á fiskmarkaði en stuðla svo að
hinu þveröfuga . Afleiðingin er sú að
minni útgerðunum, sem eru okkar
helstu viðskiptamenn, blæðir,“ segir Páll
og bætir við að myndin sé ekki bjartari
fyrir vinnslurnar; kaupendur á mörkuð-
unum .
„Þær eiga enga möguleika til að
mæta samdrætti í framboði á mörkuð-
unum . Þessi þróun ógnar þeim og
ógnar kaupendum afurða þessara fyrir-
tækja . Samdráttur hjá fiskmörkuðunum
kemur mjög hart við minnstu markaðina
og ég hef því áhyggjur af því að net
okkar veikist . Skilaboð mín og okkar
fiskmarkaðsmanna til stjórnvalda eru því
alveg skýr: látið af óskynsamlegum
breytingum í sjávarútvegi og grípið
þvert á móti tækifærin sem blasa við í
þessari grein til að framkalla verulega
innspýtingu í hagkerfið . Að því getum
við unnið í sameiningu,“ segir Páll .
Fiskmarkaður Íslands hf.
Norðurtanga
355 Ólafsvík
Sími 430 3700
www.fmis.is
Góðu fiskmarkaðs-
kerfi ógnað
Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðs Íslands .
Nýtt lógó Fiskmarkaðs Íslands er þessa
dagana tekið í notkun .