Ægir - 01.08.2011, Page 68
66
Veiðarfæraþjónustan var stofnuð 1 .
janúar 2002, við sameiningu Neta-
gerðar Þorbjarnar-Fiskaness hf . og SH-
Veiðarfæra í Grindavík . Þorbjörn hf . og
Fiskanes hf . höfðu rekið netagerð um
áratuga skeið samhliða útgerðinni, en
SH Veiðarfæri var stofnað 1997 .
Netagerð Þorbjarnar Fiskanes hf . hefur
séð um viðhald og uppsetningar á
veiðarfærum fyrirtækisins, sem gerir
meðal annars út 3 frystitogara og 4
línuskip . SH-Veiðarfæri sérhæfðu sig í
uppsetningum og viðhaldi dragnóta og
ýmsum öðrum veiðarfærum . Uppgangur
hefur verið hjá Veiðafæraþjónustunni hf .
í Grindavík enda hefur fyrirtækið þróað
og framleitt veiðarfæri sem eru orðin
eftirsótt . Það hefur leitt til þess að fyrir-
tækið hefur fært út kvíarnar og er um
helmingur af viðskiptavinum þess utan
Grindavíkur .
Fyrr á árinu var m .a . gerður stór
samningur við Brim hf . um að framleiða
troll fyrir Brimnes RE-27 og einnig hefur
fyrirtækið þjónustað Guðmund í Nesi
RE-13 frá upphafi og afhenti m .a . troll
sem var sérstaklega hannað til þess að
losna við ánetjun á grálúðuveiðum .
Trollin hafa reynst mjög vel og að sögn
skipstjórnarmanna er ánetjun nánast úr
sögunni . Þá hefur Veiðarfæraþjónustan
hannað og framleitt humartroll sem
einnig hafa vakið athygli . Meðal annars
fóru tveggja belgja humartroll í Reginn
HF-228 og tvö troll í Þóri SF-77 og
Skinney SF frá Hornafirði og reyndust
þau það vel að bátarnir voru með þeim
aflahæstu . Þá hefur fyrirtækið verið
leiðandi í hönnun og framleiðslu á
dragnótum .
Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri
Veiðarfæraþjónustunnar, segir að fyrir-
tækið sé að þjóna útgerðum í alls konar
veiðum, m .a . hafi dragnótaveiðar verið
nokkuð stór hluti þeirra en þar hafi orðið
nokkur samdráttur vegna banns
sjávarútvegsráðherra á þeim veiðum
víða við landið . Hann segir að hingað
hafi komið fulltrúar útgerða frá Evrópu til
að skoða slíkar veiðar, sem þeir telji
mjög umhverfisvænar, sem og snur-
voða veiðar sem eru léttari veiðarfæri .
,,Þessir bátar eru kannski með 60 til 70
metra langt fótreipi með gúmmíi sem er
ekkert að grafa sig niður í botninn og
auk þess eru þessi veiðarfæri notuð
mest á sléttum botni . Rannsóknir
Hafrannsóknastofnunarinnar í Skagafirði
mæltu alls ekki á móti dragnótaveiðum
á Skagafirði sem samt voru bannaðar
vegna þrýstings frá smábátasjómönnum
í Skagafirði . Við erum að fella grálúð-
unet fyrir frystitogara en erum einnig í
öðrum netum, m .a . stundum í flottrollum
sem er samstarfsverkefni við aðra svo
við getum þjónustað öll veiðarfæri . Við
erum í auknum mæli að þjónusta línu-
veiðiskipin, s .s . frá Vísi og fleirum og
erum að þjónusta togarana frá Þorbirni,“
segir Hörður . Hjá Veiðarfæra-
þjónustunni eru tveir með meistararétt-
indi og 3 með sveinsréttindi en margir
hafa einnig reynslu af sjómennsku .
„Ofurefnið Dynema hefur í auknum
mæli verið að koma í burðarlínur en
sverleiki þess er svipaður og í vírum og
margir minni bátarnir hafa viljað fara í
þetta sterkara efni til að létta
veiðarfærin en það er einnig mjög
endingargott og fer mjög vel í gegnum
blakkir og fleira og endist lengur en
vírinn, og það er auðvitað mikill kostur
að hafa bæði meiri endingu og léttara
efni í höfuðlínum,“ segir Hörður .
Veiðarfæraþjónustan ehf.
Ægisgötu 3
240 Grindavík
Sími 426 7717
www.veidarfaeri.is
Allar tegundir
veiðarfæra
Starfsmenn Veiðarfæraþjónustunnar í Grindavík .