Ægir - 01.08.2011, Síða 79
rauður þráður í framleiðslu okkar æ
síðan . Með því að hafa breikkað vöru-
línuna út fyrir mismunandi notkun á
skynjurum neðansjávar höfum við
skapað okkur einstaka stöðu á heims-
markaði,“ segir Óskar Axelsson,
framkvæmdastjóri Marport .
Stöðugar nýjungar
Fyrirtækið er í dag með starfsemi víða
um heim en samsetning nemanna er á
Íslandi . Marport hefur ætíð nýtt sér
nálægðina við íslenskan sjávarútveg í
sinni vöruþróun og þann mikla þekk-
ingarbrunn sem er að finna hér á landi í
tækniþróun í fiskveiðum . „Þetta undir-
strikar hversu framarlega íslenskur
sjávarútvegur stendur á tæknisviðinu og
í engu er ofsagt að við erum að þróa ís-
lenska hátækni, byggða á íslenskum
sjávarútvegi,“ segir Óskar en á Íslensku
sjávarútvegsýningunni gefst gestum
kostur á að fræðast um hvernig Marport
beitir sinni tækni . Öll nýjasta tækni
Marport verður þar og það sem er í
farvatninu hjá fyrirtækinu .
Fylgst með veiðarfærinu í rauntíma
Nemabúnaðurinn frá Marport gerir það
að verkum að skipstjórnarmenn geta
haft mikla yfirsýn á veiðarfærin í sjónum
og sami mótttökubúnaður í brú skipsins
safnar þannig saman upplýsingum frá
öllum nemunum á veiðarfærinu . Óskar
segir að með bættri senditækni og
aukinni reiknigetu sé unnt að birta upp-
lýsingar um hegðun veiðarfærisins í
rauntíma, þ .e . að skipstjórinn getur séð
jafn harðan hvað gerist í veiðarfærinu
og í kringum það .
„Við erum að opna skipstjórnendum
möguleika á að fylgjast nákvæmar með
þáttum eins og seltu, hitastigi, straum-
hraða og fleiri mikilsverðum atriðum .
Síðast en ekki síst má svo nefna
hlerasjána sem gerir kleift að fylgjast
með hvernig toghlerar sitja við botninni
og hvernig afstaða veiðarfærisisins er .
Allt er þetta liður í tækni sem gerir vinnu
skipstjórnandans markvissari en stuðlar
um leið að hagkvæmari veiðum fyrir
útgerðirnar,“ segir Óskar .
77
Væntanlegt frá Marport
» Troll doppler straumhraðanemi: mælir straumhraða í troll-
inu en ekki við yfirborð nemans eins og gert með hefð-
bundum straumhraðanemum í dag . Neminn mun koma út í
þrem áföngum . 1 . útgáfa 2011: X-Y hraði, 2 . útgáfa febrúar
2012: Current Profile, 3 . útgáfa: mars 2012 Endurvarps-
mynd með 3 geislum . Möguleiki verður á Pitch/Roll við-
bót .
» Nýr höfuðlínumælir TE-504: endurbætt útgáfa af TE500
mælinum með sterkari og einfaldari yfirbyggingu . Innifalið
í nemanum er hiti, dýpi, Pitch/Roll ásamt stöðu rafhlöðu .
» Þráðlaus seltunemi (CDT): Selta er mæld út frá þremur
nákvæmum mælingum; leiðni, hita og dýpi . Neminn mælir
seltu í sjó og gæti opnað nýjar víddir varðandi hegðun
sjávar og sjávarlífs .
» Nýtt M4 viðtæki: Viðtækið opnar möguleika á sam-
skiptum við nema í sjó, staðsetningu þeirra (lengd og
breidd veiðarfæris) . Hægt verður að hafa allt að 10 Narrow
band höfuðlínumæla í einu og allt að 100 rásir eða nema
samtímis . Næmni tækisins er einnig mun meiri en þekkt
er á markaði . Tækið mun ganga við flestar gerðir nema,
þar með talið Furuno CN24 höfuðlínumælinn .
» Ný hlerasjá: Nýja hlerasjáin sýnir dýptarmælismynd frá
hlera að botni eða bil milli hlera . Uppfærist á 1 sek . fresti
með upplausn allt að 10 cm . Nemanum er ætlað að
auðvelda veiðar með flothlerum tengdum við botnvörpu .
Gefur nákvæma mynd hvernig hleri situr á botni . Möguleiki
verður á upplýsingum um hita og dýpi og Pitch/Roll við-
bótum .
» Nýr átaksnemi: Átaksneminn mun hafa 0-30 tonna línulegt
svið . Slitþolið verður u .þ .b . 100 tonn . Upplýsingar frá nem-
anum uppfærast á 1-4 sek . fresti (valkvæmt) . Möguleiki
verður á hita, dýpi og Pitch/Roll viðbótum .
Óskar Axelsson, framkvæmdastjóri Marport .