Ægir - 01.08.2011, Síða 80
78
Í Hafnarfirði er lífleg þjónustuhöfn fyrir
skip, báta og áhafnir þeirra . Þar er
meðal annars uppskipun, löndun, þurr-
geymslur, kæligeymslur og frysti-
geymslur, útskipun til allra heimshorna,
eldsneytisafgreiðsla, veiðarfæra-
þjónusta, siglingatækjaþjónusta, skipa-
viðgerðir, þar með taldar tvær flotkvíar,
fiskmarkaður, sorphirða og gáma-
þjónusta . Ennfremur er í Hafnarfirði rúm-
og skjólgóð smábátahöfn með þremur
löndunarkrönum, vatni, spilliefnaskýli og
sorpgámum .
Umsvif og framkvæmdir
Hafnarfjarðarhöfn er samkvæmt
heimildum ein elsta og öruggasta höfn
landsins . Hún er í raun hjarta bæjarins
vegna þess hvernig byggðin umlykur
hana .
Störf í hafnfirskum fyrirtækjum, sem
eru beint tengd höfn, eru um eða yfir
1 .600 og um Hafnarfjarðarhöfn fara um
900 .000 tonn af vörum á ári .
Helsta starfsemi við höfnina er losun
og lestun lausavöru, löndun og lestun
sjávarafurða, losun og lestun olíu og as-
falts ásamt losun og lestun hráefna og
afurða til og frá álverinu og Gasfélaginu
í Straumsvík .
Hafnarfjarðarhöfn er sérhæfð í allri
þjónustu við fiskiskip af öllum stærðum
og gerðum . Í Hafnarfirði er öflug lönd-
unarþjónusta, fiskmarkaður fyrir ferskan
fisk, geymsla og framhaldsflutningur á
frystum sjávarafurðum . Nokkur af
öflugustu viðhalds- og viðgerðarverk-
stæðum Íslands eru í Hafnarfirði .
Stærstu framleiðendur veiðarfæra og
vinnslubúnaðar eru í eða í nágrenni
Hafnarfjarðar, svo sem, Ísfell, Hampiðjan
og fleiri . Núverandi hafnarsvæði er um
60 hektarar í Hafnarfirði og 4 til 5 hekt-
arar í Straumsvík .
Mikilvægt að sýna sig
Forsvarsmenn Hafnarfjarðarhafnar hafa
tekið þátt í Íslensku sjávarútvegs-
sýningunni síðan 1995 – og sömuleiðis
komið að hliðstæðum sýningum í
Færeyjum, Danmörku, Noregi, Græn-
landi og á Spáni .
„Aðaláherslan af okkar hálfu á
þessum sýningum er að vera á staðnum
og hitta viðskiptavini . Vera sýnilegir og
kynna okkur . Þetta er mjög mikilvægt,“
segir Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri
sem telur höfnina afar mikilvæga fyrir
allt atvinnulíf í Hafnarfirði . Um 1 .500
manns í bænum hafi með einum eða
öðrum hætti atvinnu sína af hafnsækinni
starfsemi; sjávarútvegi, álveri í Straums-
vík og endurvinnslu .
Hafnarfjarðarhöfn
Óseyrarbraut 4
220 Hafnarfirði
Sími 414 2300
www.hafnarfjardarhofn.is
Hafnarfjarðarhöfn er sérhæfð í allri þjónustu við fiskiskip af öllum stærðum og gerðum .
Í Hafnarfirði er skjólgóð smábátahöfn með þremur löndunarkrönum .
Ein besta höfn
landsins!