Ægir - 01.08.2011, Síða 84
82
Öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismál
eru mikilvægur þáttur í rekstri allra fyrir-
tækja . Verkís býður sjávarútvegsfyrir-
tækjum víðtæka þjónustu á þessu sviði,
sérsniðna að þörfum viðskiptavinarins .
Öryggi og heilbrigði á vinnustað –
góð fjárfesting fyrir sjávarútveginn
Mikið hefur áunnist í vinnuverndar-
málum á síðustu árum . Grettistaki hefur
verið lyft í sjávarútvegi með fækkun
banaslysa og alvarlegra slysa til sjós .
Ljóst er því að unnt er að koma í veg
fyrir slys með markvissri fræðslu og
þjálfun . En betur má ef duga skal .
Koma má auga á hættu á slysum í
sjávarútvegi, með því að fara kerfis-
bundið yfir og meta alla áhættuþætti í
vinnuumhverfinu . Það er kallað
áhættumat starfa og er ásamt áætlun
um heilsuvernd og forvarnir, hluti af
öryggis- og heilbrigðisáætlun
vinnustaða, sem gerð er krafa um í
vinnuverndarlöggjöfinni .
Ávinningur af áhættumati starfa og
öflugu vinnuverndarstarfi er m .a .:
• Færri vinnuslys og óhöpp
• Minni veikindafjarvistir
• Færri atvinnusjúkdómar
• Minni starfsmannavelta
• Aukin afköst og gæði
• Ánægðara starfsfólk
• Sparnaður og betri þjónusta
Virkt og öflugt vinnuverndarstarf er
góð leið til að ná markmiðinu – „heil
heim að vinnudegi loknum.“
Mælingar á umhverfisþáttum
Mengun frá fiskvinnslu er margskonar
og er helst að finna í frárennsli og lofti .
Mengun í frárennsli. Mikil vatns-
notkun er við alla fiskvinnslu sem leiðir
af sér mikið frárennsli og er mengunin
einna helst lífrænn úrgangur .
Heilbrigðiseftirlit gefa út starfsleyfi
fyrir fiskvinnslur og þar koma fram mörk
á losun mengandi efna sem sleppa má
út í umhverfið og vatnsnotkun á tonn
hráefnis .
Mæla þarf magn lífrænna efna (COD),
fitu, svifagna og súlfats . Einnig er mælt
sýrustigsgildi (pH) . Við mælingar eru
notaðir sjálfvirkir sýnatakar sem taka
ákveðið magn af sýni með ákveðnu
millibili og safna því í glös yfir
vinnsludaginn .
Loftmengun. Koma þarf í veg fyrir
lyktar- og loftmengun frá fiskimjölsverk-
smiðjum . Í starfsleyfum fyrir fiskimjöls-
verksmiðjur er kveðið á um ákveðna
skorsteinshæð og einnig að hraði út-
blásturslofts úr skorsteini sé yfir
ákveðnu lágmarki .
Til að hægt sé að fá glögga mynd af
hraða loftsins sem streymir upp í
gegnum skorsteininn þarf að mæla
ákveðna þætti í völdu þversniði í skor-
steininum . Út frá þeim mælingum er
hægt að reikna hraðann á útstreymis-
loftinu .
Hafðu samband, við tökum út
stöðuna og gerum tillögu að aðgerðum:
Dóra Hjálmarsdóttir, dh@verkis.is, örygg-
is mál og Birgir T . Arnar, bta@verkis.is,
mælingar á umhverfisþáttum .
Nánari upplýsingar um þjónustu
Verkís er að finna á heimasíðu Verkís
http://www.verkis.is/thjonusta/onnur_
thjonusta/sjavarutvegur
Verkís
Ármúli 4
108 Reykjavík
Sími 422 8000
www.verkis.is
Heildstæð þjónusta
fyrir sjávarútveginn