Ægir - 01.08.2011, Side 114
112
Ein af stærri fréttum Íslensku sjávar-
útvegs sýningarinnar í ár er að íslenskt
fyrirtæki, Vélfag ehf ., kynnir nýja heild-
stæða fiskvinnsluvélalínu sem saman-
stendur af hausara, flökunarvél og roð-
dráttarvél . Vélarnar eru afrakstur
áralangrar þróunarvinnu og prófanaferils
en nú þegar eru bæði flökunarvélin og
hausarinn komin um borð í íslenska og
erlenda frystitogara og í notkun hjá
nokkrum af stærstu landvinnslufyrir-
tækjum landsins . Og í stuttu máli segja
eigendur fyrirtækisins að markmiðin sem
lagt var upp með, bæði um gæði
vélanna, hráefnisgæði og aukna nýtingu
hafi gengið eftir . Vélfag var stofnað í
Ólafsfirði af hjónunum Bjarma A . Sigur-
garðarssyni og Ólöfu Ýri Lárusdóttur en
hluti starfseminnar er einnig á Akureyri .
Vélfag ehf . var stofnað árið 1995 með
það að markmiði að annast viðhalds-
þjónustu við fiskvinnsluvélar í frysti-
skipum . Fljótlega hóf Bjarmi að hanna
breytingabúnað og íhluti í þessar vélar,
bæði til að draga úr gífurlegum viðhalds-
kostnaði og auka nýtingu um leið . Sjálfur
hafði hann kynnst flökunarvélum sem
tækjamaður á frystitogara en hann er
menntaður bifreiðasmiður og Ólöf hafði
einnig starfað við fiskvinnslu . Strax árið
1998 ákváðu þau að ráðast í hönnun
eigin flökunarvélar sem væri hönnuð frá
grunni til að standast kröfuharðasta um-
hverfi íslenskrar fiskvinnslu, þ .e . um borð
í vinnsluskipum . Þar er mikið seltuálag,
stöðug vinnsla allan sólarhringinn og
mikilvægt að vélarnar ráði við allar
stærðir af bolfiski . Lagt var upp með að
vélin skilaði betri nýtingu en þær sem
fyrir væru á markaðnum, viðhaldskostn-
aður yrði minni, gangöryggi meira og still-
ingatími vegna mismunandi fisktegunda
styttri . Það var því hreint ekki ráðist á
garðinn þar sem hann var lægstur í mark-
miðum!
„Þetta verkefni unnum við jafnframt
annarri starfsemi og má segja að við
höfum nær alfarið farið í gegnum þetta á
eigin fjármögnun út úr rekstrinum og með
lánsfé . Okkar lykill að því að ná settu
marki er frábært starfsfólk sem gjörþekkir
fiskvinnsluna og að stóru útgerðirnar á
svæðinu sýndu vörum okkar fljótt áhuga
og þróunarsamstarfinu skilning enda
þekktu þær vandamálin sem við settum
okkur að leysa . Fyrirtækin vissu vel að öll
þessi atriði eru peningar og að mikið
væri því í húfi að þróunarvinna okkar
skilaði árangri,“ segja þau Ólöf og Bjarmi
en í árslok 2007 var fyrsta M700
flökunarvélin prufukeyrð í vinnslu hjá
Norðurströnd á Dalvík og hún hefur verið
staðsett þar frá apríl 2008 . Á þessum
tímapunkti má segja að teningunum hafi
verið kastað og kynning M700 á Íslensku
sjávarútvegssýningunni haustið 2008
vakti einnig mikla athygli .
Ný hugsun í roðflettivél
Vélfag undirstrikar enn frekar framsækni
fyrirtækisins á þessu sviði á Íslensku
sjávarútvegssýningunni í ár með M800
roðflettivélinni sem nú myndar heildar
tækjalínu með M500 hausaranum og
M700 flökunarvélinni . Roðflettivélin getur
hvort heldur er verið áföst flökunarvélinni
eða staðið ein og sér . Og þessi vél mun
vafalítið vekja athygli því hún byggir á
talsvert annarri hugsun en áður hefur
þekkst í roðflettivélum .
Vélfag ehf.
Ægisgötu 8, 625 Ólafsfirði
Njarðarnesi 2, 603 Akureyri
Sími 466 2635
GSM 864 2635
www.velfag.is
Ólöf Ýr Lárusdóttir og Bjarmi A .
Sigurgarðarsson, eigendur Vélfags .
M500 hausari .
Ný íslensk
fiskvinnsluvélalína