Ægir - 01.08.2011, Page 117
Vélsm. Foss ehf.
The winches is compact and light compared to theirs power. The operator panel shows etc.
pressure in the system, velocity, length of wire/rope in the sea.
Operator Panel.
Combi-Winch.
www.fossehf.is
ari@fossehf.is
Vélsmiðjan Foss á Höfn í Hornafirði
hefur á undanförnum árum fengist við
margvísleg verkefni fyrir fiskiskipa-
flotann - enda fyrirtækið statt í einum af
stærstu útgerðarbæjum landsins og
nýtur nálægðar við bátaeigendur og
útgerðarfyrirtækin . Engu að síður eru
verkefnin um allt land, bæði tilfallandi
viðhalds- og breytingaverkefni en
einnig hefur fyrirtækið þróað eigin
búnað og lausnir til framleiðslu . Nýverið
kom fyrirtækið fram með nýja gerð af
línuskífu fyrir sjálfvirk línukerfi í minni
bátum . Einnig hefur fyrirtækið nýlega
lokið smíði á nýrri gerð af netavindu fyrir
smábáta og hefur einnig hannað og selt
fjölnota vindu fyrir stærri skip .
„Fyrir hrun lukum við þróun á fjölnota
vindunni (combi-vindunni) og seldum
hana m .a . til Noregs þar sem hún hefur
reynst mjög vel í fiskiskipi . Í byrjun ágúst
sendum við vindur til Skotlands .
Vindurnar verða settar niður í bát sem
verður gerður út á dragnót og troll . Nú
teljum við komið að þeim tímapunkti að
fikra okkur áfram erlendis með þessa
vöru,“ segir Ari Jónsson, framkvæmda-
stjóri hjá Vélsmiðjunni Fossi .
Ari segir að combi-vindan eigi víða
erindi enda er þetta vinda sem nýtist um
borð í skipum sem skipta á milli troll-
veiða, dragnótaveiða og nótaveiða en á
síðastnefnda veiðiskapnum má nota
vinduna sem snurpuvindu .
„Nýjustu framleiðsluvörurnar okkar,
línuskífan og sér í lagi netavindan fyrir
minni bátana, eiga einnig erindi á
erlenda markaði . Netaveiðar á minni
bátum eru mjög miklar hér í
nágrannalöndunum og þar glíma menn
einmitt við þau vandamál sem við erum
að leysa með þessari nýju vindu . Þegar
bátar eru að draga netin á djúpu vatni
eða þar sem mikill þari þyngir netin hafa
hefðbundnu gúmmítromlurnar ekki
reynst ráða við erfiðustu aðstæðurnar .
Þetta leysum við með nýju netavindunni
og nýrri gerð af netaskífu og það hafa
notendur vindunnar hér á landi staðfest
nú þegar,“ segir Ari og bætir við að fyrir-
tækið eigi mikið að þakka eigendum
skipa og báta góða samvinnu við lausnir
sem þessar . „Menn leita til okkar með
sína reynslu og biðja okkur að leysa
vandamálin . Þannig verða bestu
lausnirnar til og þannig er aðdragandinn
að þeim vörum sem við framleiðum,“
segir Ari .
115
Nýjar vindur frá
Vélsmiðjunni Fossi