Ægir - 01.08.2011, Page 119
Eruð þið með einhverjar
nýjungar á sýningunni?
„Það er jú það sem Pmt er alltaf með . Á
sýningunni fyrir 6 árum kynntum við
SharpX hnífabrýni . Nú sýnum við nýjan
endurbættan SharpX og nýja gerð
flugnabana með sparperum . Þeir gefa
frá sér meira UV ljós og eru hag-
kvæmari í rekstri . Við verðum einnig
með rafdrifna beinatínsluvél og af-
hreistrara . Helsta nýjungin núna er vél
frá Bandal, sem bindur borða utan um
bakka með matvælum . Borðarnir fást í
ýmsum breiddum og með hágæða
prentun .“
Hefur kreppan haft
mikil áhrif á söluna?
„Ekki beint á límmiðana . Minnki neysla
dýrari afurða, þá eykst að sama skapi
sala ódýrari afurða . Allt þarf að merkja .
Áberandi aukning er í sölu notaðra
tækja . Fyrir hrun fluttum við inn frá Kína
mikið af samvalsvogum með
pökkunarvél, færiböndum, málm-
leitartæki og tékkvog . Þessi sala datt
alveg niður en er nú að glæðast . Þannig
var sett upp 14 hausa samvalsvog með
stórri pökkunarvél í byrjun árs hjá Ifex/
Lýsi í Þorlákshöfn og fleira er í gangi
þessa dagana .“
Hafa vélarnar frá Kína reynst vel?
„Í heildina hafa þær gert það . Ég hikaði í
fyrstu en fékk hvatningu frá Hannesi í
Góu, blessuð sé hans minning . Saman
fluttum við inn fyrstu vélina í byrjun árs
2005 . Fleiri pökkunarlínur fylgdu í
kjölfarið . Góa fékk svo aðra eins véla-
samstæðu 2007 . Í dag eru „Kínavélar“ í
notkun við pökkun á sælgæti, salati,
kaffi, þurrkuðum ávöxtum, poppkorni,
harðfiski og gæludýrafóðri . Svo ég svari
spurningunni um gæðin þá segir mest
að bæði Góa og Maxi pöntuðu aftur
vélar og Lýsi er líka að fá vél tvö .“
117
Góa fékk fyrri samstæðuna 2005 og þá seinni 2007 . Maxi er dæmi um gamalgróið fyrirtæki, sem tveir ungir menn með
dugnaði hafa rifið upp í kreppunni .