Ægir - 01.08.2011, Page 122
120
Frjó Quatro ehf.
Bæjarflöt 4
112 Reykjavík
Sími 567 7860
www.frjo.is
Útflytjendur ferskfisks ættu að kynna
sér þá kosti sem pappakassar frá
Smurfit Kappa - Solid Board Packaging
hafa umfram hefðbundna kassa úr
frauðplasti . Einangrunargildið er svipað
en pappinn mun umhverfisvænni en
frauðplastið og þegar komið er að því
að farga umbúðum er munurinn mikill,
pappanum í hag .
Frjó Quatro ehf ., sem heldur reyndar
upp á 20 ára afmæli sitt á sjávarútvegs-
sýningunni, hefur umboð fyrir þessa
nýjung, þ .e . pappakassa frá marg-
verðlaunuðum og þrautreyndum um-
búðaframleiðanda . Páll Þ . Pálsson sölu-
stjóri segir að kassarnir frá Smurfit
Kappa séu ekki einungis hagkvæm
lausn heldur svari þeir einnig kalli
tímans um verndun umhverfis, endur-
nýtingu og orkusparnað . Þannig sé unnt
að flytja umbúðirnar samanbrotnar, sem
geri flutning þeirra til væntanlegra
notenda bæði auðveldari og ódýrari en
ella .
Sjón er sögu ríkari í bás B 60 á
sjávarútvegssýningunni . Þar er margt
fleira að finna sem aðilar í sjávarútvegi
þekkja, til dæmis fást upplýsingar um
Fomaco sprautusöltunarvélar og
pækiltanka, sennilega þekktustu tækin
sem fyrirtækið flytur inn og selur hér á
landi .
Frjó Quatro hefur á tveggja áratuga
ferli sínum orðið umsvifamikið á markaði
matvælaumbúða og þar er af ýmsu að
taka . Fyrirtækið náði því þannig á fáum
árum að breyta bakkanotkun lands-
manna úr plasti í pappír, sbr . ótal gerðir
af áprentuðum grænmetisbökkum, allt
eftir þörfum og kröfum viðskiptavinarins .
Leiðir Frjó Quatro og neytenda liggja
því oftar saman en þeir gera sér grein
fyrir í innkaupaferðum sínum!
Pappír í stað frauðplasts
Endurvinnanlegur pappakassi er hag-
kvæmari lausn en frauðplast til flutnings á
fersku hráefni .Páll Þ . Pálsson, sölustjóri Frjó Quatro .
FRJÓ QUATRO EHF.
BÆJARFLÖT 4
IS - 112 REYKJAVÍK
SÍMI 567 7860
FAX 567 7863 GSM: 898 3650
BEINT NR. 567 7852
THORDUR@FRJO.ISWWW.FRJO.IS
ÞÓRÐUR BJÖRNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI