Ægir - 01.08.2011, Síða 126
124
Heildverslun Ásbjörns Ólafssonar hefur
hafið innflutning á sérstökum gripskóm
og stígvélum frá skóframleiðandanum
Shoes For Crews® (SFC) . Í 25 ár hefur
SFC verið leiðandi í framleiðslu á
skófatnaði með gripsóla sem sameina
öryggi, þægindi og glæsilegt útlit . Allir
skór frá Shoes For Crews eru fram-
leiddir með 5 stjörnu gripsóla sem er
afrakstur ítarlegra rannsókna .
Skórnir og stígvélin eru fáanleg í 30
gerðum sem henta ólíkum starfs-
greinum og því ættu allir að geta fengið
eitthvað við sitt hæfi . Meira en 35
milljón pör af skóm og stígvélum frá
Shoes For Crews hafa verið seld um
víða veröld og eru nú í notkun á yfir
100 .000 vinnustöðum . Vilborg
Benediktsdóttir, deildarstjóri skódeildar
Ásbjörns Ólafssonar, segir að fyrirtæki
sem útvegi starfsfólki sínu SFC
skófatnað hafi merkt allt að 80% fækkun
slysa sem rakin eru til þess að fólk
hrasar og fellur . SFC gúmmísólarnir eru
hannaðir og framleiddir þannig að
vökvi, olía og önnur óhreinindi hverfa af
botni sólans og því verður gripið á yfir-
borði gólfsins mun betra .
„Samsetning sólans veitir mikið við-
nám við blautar og hálar aðstæður og
ítarlegar prófanir á rannsóknastofum
hafa sýnt að skór frá SFC standa skóm
frá öðrum framleiðendum mun framar
við þessar aðstæður,“ segir Vilborg .
Fallslys eru algengustu
vinnuslysin á Íslandi
Samkvæmt upplýsingum úr slysaskrá
Vinnueftirlitsins hafa fallslys, þ .e . þegar
fólk fellur á jafnsléttu eða af hærri stað,
verið algengustu vinnuslysin á Íslandi
undanfarin ár . Þegar fólk fellur af
vinnupöllum eða úr stigum geta
afleiðingarnar orðið beinbrot og/eða
alvarlegir höfuð-, háls- og hryggáverkar .
Slíkir áverkar eru líklegir til að valda
langvarandi eða jafnvel ævilöngum
heilsubresti og skerðingu lífsgæða og í
verstu tilfellunum getur fallið valdið
dauða viðkomandi starfsmanns . Þessi
slys kosta einstaklinga, samfélagið,
vinnuveitendur og heilbrigðiskerfið
gríðarlegar upphæðir á ári hverju .
„Í mínum huga er enginn vafi að
þessi skófatnaður hentar vel hér á landi
og getur fækkað vinnuslysum til dæmis
í sjávarútvegi, byggingariðnaði, land-
búnaði og raunar hvar sem er, því
gripmeiri stígvél er ekki hægt að fá,“
segir Vilborg . Hún nefnir sem dæmi
Guardian stígvélin frá SFC sem eru með
gripsóla með víðum rásum og öryggis-
stáltá og uppfylla EN ISO 20345
staðalinn . Þau eru 40 sentimetra há úr
gúmmíi og mótuð í einu lagi með
styrktum hæl og tá . Sólinn og fóðrið í
stígvélunum eru bólstruð með bakter-
íueyðandi innleggjum sem auka á
vellíðan og stöðugleika sem kemur sér
vel á löngum vöktum .
„Það er ljóst að skór og stígvél með
gripsóla frá SFC stuðla að auknu
vinnuöryggi og geta minnkað til muna
kostnað og óþægindi sem starfsfólk,
atvinnurekendur og samfélagið allt
verða fyrir vegna fallslysa,“ segir Vilborg
Benediktsdóttir, deildarstjóri skódeildar
Ásbjörns Ólafssonar .
Ásbjörn Ólafsson ehf.
104 Reykjavík
Sími 414 1114
www.asbjorn.is
Gúmmísólarnir eru hannaðir þannig að
vökvi, olía og önnur óhreinindi hverfa af
botni sólans og gripið á yfirborði gólfsins
verður mun betra .
Vilborg Benediktsdóttir, deildarstjóri skódeildar Ásbjörns Ólafssonar, segir skó og stígvél
með gripsóla frá SFC stuðla að auknu vinnuöryggi og geta minnkað til muna kostnað og
óþægindi sem starfsfólk, atvinnurekendur og samfélagið allt verður fyrir vegna fallslysa .
Hafa selt yfir 35 milljón pör af
skóm og stígvélum með gripsóla