Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 132
130
„Ég verð að viðurkenna að viðtökurnar
hér á innanlandsmarkaði hafa verið um-
fram væntingar,“ segir Jörundur
Garðarsson, framkvæmdastjóri og
eigandi fyrirtækisins Hafkalks á Bíldudal
um sölu á samnefndu fæðubótarefni
sem fyrirtækið hóf pökkun á árið 2009 .
Segja má að þetta litla fyrirtæki, þar
sem þrír starfsmenn eru, byggi á
starfsemi Íslenska kalkþörungafélagsins
á Bíldudal sem framleiðir steinefnafóður
fyrir búfénað og jarðvegsbætiefni úr
kalkþörungum . Sú framleiðsla er flutt á
markaði víða um heim en Hafkalk ehf .
annast afurðrasöluna á innanlands-
markaði . Jafnframt því að stýra Hafkalki
er Jörundur einnig gæðastjóri
kalkþörungaverksmiðjunnar . Hann
þekkir því virkni kalkþörunganna
mætavel .
„Í kalkþörungum er fjölbreytt sam-
setning stein- og snefilefna sem hafa
mikla virkni og jákvæð áhrif á líkama
okkar . Það er til dæmis vitað að konur,
sem komnar eru yfir miðjan aldur, þurfa
á þessum efnum að halda til að fyrir-
byggja beinþynningu . Einnig eru þessi
efni mikilsverð fyrir konur á meðgöngu
eða með barn á brjósti og í raun er
ávinningur fyrir alla að gæta þess að
stein- og snefilefnabúskapurinn sé í lagi .
Við erum að fá þarna efni úr sjónum
sem við gætum annars fengið með
mikilli neyslu á fiski og sjávarfangi
þannig að segja má að með neyslu á
Hafkalki geti fólk tryggt sér þessi efni
þó það neyti ekki sjávarfangs á hverjum
degi,“ segir Jörundur og viðurkennir að
fyrirtækið fái oft jákvæðar umsagnir frá
fólki sem hefur reynt fæðubótarefnið
Hafkalk .
„Já, margir nefna atriði eins og
aukinn hárvöxt, sterkari og betri neglur
og fleiri atriði . Sjálfur get ég staðfest
þetta eftir að hafa notað Hafkalkið
reglulega . Sömuleiðis hefur komið í ljós
að Hafkalk dregur úr verkjum vegna
slitgigtar og efnið vinnur gegn svokall-
aðri fótaóeirð, svo dæmi séu nefnd .
Hafkalkið er því ekki bara kalk heldur
svo miklu meira,“ segir Jörundur en
Hafkalk fæst í helstu heilsu- og
lyfjaverslunum landsins . Eftirspurnin vex
jafnt og þétt og erlendur markaður er
áhugaverður . „Við erum farin að horfa til
útflutnings en munum stíga hægt og
varlega til jarðar í því verkefni .“
Hafkalk ehf.
Dalbraut 56
465 Bíldudal
Símar 456 2112 & 861 3623
www.hafkalk.is
Hafkalkið slær
í gegn