Ægir - 01.08.2011, Síða 136
134
MD vélar
Vagnhöfði 12
110 Reykjavík
Sími 561 2800
www.mdvelar.is
„Við munum á sjávarútvegssýningunni
leggja áherslu á áralanga sérhæfða
þjónustu okkar hvað varðar túrbínur í
skip og báta en í gegnum árin hefur
sjávarútvegurinn verið langstærsti hluti
okkar þjónustu . Sýninguna munum við
einnig nota til að kynna sérstaklega nýtt
samstarf okkar við Turbo Ned í Hollandi
sem færir okkar viðskiptavinum enn hag-
stæðara verð en áður á bæði varahlutum
og túrbínum,“ segir Erlingur Kristinsson,
sölustjóri MD Véla .
Nýlega sömdu MD Vélar ehf . við
hollenska fyrirtækið Turbo Ned um sölu-
og viðgerðarþjónustu hér á landi og varð
fyrirtækið þar með ein af 30 starfs-
stöðvum Turbo Ned í heiminum . Með
þessu samstarfi hefur íslenski
markaðurinn fengið aðgang að bestu
kjörum sem Turbo Ned býður á sínum
vörum en það er þekkt á alþjóða-
mælikvarða fyrir þjónustu við
skipatúrbínur . „Sérhæfing Turbo Ned felst
í sölu á eftirmarkaðsíhlutum fyrir túrbínur
og þetta fyrirtæki hefur starfað á þessum
markaði í yfir 25 ár . Þetta geta verið mjög
stórir og dýrir hlutir og því er verulegur
fengur í því fyrir íslenska markaðinn að
geta notið hámarks afsláttarkjara Turbo
Ned í gegnum okkur . Sú reynsla, sem
þegar er komin á samstarfið við Turbo
Ned, hefur sýnt að markmið okkar um
hagstæðara varahlutaverð hafa gengið
eftir,“ segir Erlingur .
MD Vélar ehf . var stofnað í ársbyrjun
1990 til að annast sölu, ráðgjöf og
þjónustu við Mitsubishi dieselvélar á Ís-
landi, ásamt allskyns búnaði sem tengist
þeim . Fyrirtækið er umboðsaðili
Mitsubishi og PJ Diesel í Kaupmanna-
höfn, sem er sérhæft fyrirtæki í varahluta-
og viðhaldsmálum fyrir skipavélar,
afgastúrbínur, woodward gangráða og
dieselkerfi .
MD Vélar selja fjölbreyttan búnað sem
tengist skipum og bátum, auk
sérhæfingar í viðgerðum og breytingum
á alls skyns vélbúnaði í bátum og skipum .
Vagnhöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 567 2800 | Fax 567 2806 | mdvelar@mdvelar.is | www.mdvelar.is
Túrbínuþjónusta
Lækkað
verð!
við íslenska flotann
Erlingur Kristinsson, sölustjóri MD Véla og
Hjalti Sigfússon, framkvæmdastjóri .
Fyrirtækið býr yfir sérþekkingu, viðhaldi og
sölu á túrbínum í skip . Mynd: Lalli Sig
Hagstæðari verð með
samstarfi við Turbo Ned