Ægir - 01.08.2011, Page 138
136
Samskiptatækni hefur þróast mikið á
síðustu árum ásamt því að öll samskipti
eru að sameinast í einn samskiptavett-
vang . Þar með talið símtöl, netspjall, fjar-
fundir, tölvupóstur eða viðverukerfi, svo
nokkrir algengir samskiptahættir séu
nefndir . Í grunninn eru samskipti mikil-
vægasti hluti bættra samgangna og
aukinnar framleiðni að viðbættu auknu
öryggi . Samskipti ættu því að vera
ofarlega á lista þeirra sem vilja ná
árangri og verja tíma sínum í það sem
skiptir máli . Skrifstofan getur verið hvar
sem er og skip eru þar ekki undanskilin .
Microsoft hefur nýlega sett á markað
hugbúnaðin Microsoft® Lync™ sem
margbætir öll samskipti og á töluvert
erindi í sjávarútvegi . Microsoft Lync er
heildarlausn fyrir alla samskiptahætti
milli fólks óháð staðsetningu . Helstu
kostir lausnarinnar eru hversu vel hún
tengist öllum öðrum skrifstofubúnaði
eins og Microsoft Office, skjalastjórn-
unar kerfum eins og Microsoft Share-
Point og helstu kerfum sem unnið er
með daglega .
Auðvelt að finna og vinna með rétt-
um aðilum á réttum tíma
Daglega fer töluverður tími einungis í að
finna þá einstaklinga sem við þurfum að
hafa samskipti við og vinna með . Einnig
fara fjármunir og töluverður tími í ferðir
sem spara mætti með breyttum sam-
skiptum . Microsoft Lync gerir þetta
auðveldara með því að tengja alla
starfsmenn innan fyrirtækis á einn sam-
skiptavettvang óháð staðsetningu
þeirra . Að auki má tengjast helstu sam-
starfsaðilum eins og viðskiptavinum og
birgjum á svipaðan hátt . Þetta er meðal
annars gert með viðveruupplýsingum
sem breytast sjálfkrafa eftir því sem við
á . Sem dæmi má nefna að allir sem eru
„við“ eru á sama tíma einum smelli frá
fjarfundi með mynd og hljóði .
Símstöð án símstöðvar
Microsoft Lync er hægt að nota sem IP
símstöð á þann hátt að hefðbundnar
símstöðvar eru óþarfar . Einnig er hægt
að tengja Microsoft Lync við hefð-
bundnar símstöðvar . Þetta getur átt við
skrifstofuna sem og hverja þá vinnustöð
utan skrifstofu . Skiptir þar engu hvort sú
vinnustöð sé skip á hafi, starfsstöð utan
höfðstöðva eða heimaskrifstofa starfs-
manna . Skrifstofan er einfaldlega þar
sem starfsmaður eða starfsmenn eru
staðsettir hverju sinni .
Öryggi samskipta tryggt
Öll samskipti Microsoft Lync eru
dulkóðuð og því örugg í því skyni að
ekki er hægt að hlera þau eða brjótast
inn í þau á einn eða annan hátt . Fyrir-
tæki og starfsmenn geta því áhyggju-
laust miðlað öllum upplýsingum eins og
um tveggja manna tal væri að ræða .
Samskipti utan vinnu
Microsoft Lync gerir alla upplifun af sam-
skiptum skemmtilegri og betri þar sem
hægt er að nýta félagslegar tengingar
eins og við vini og ættingja á jafn
auðveldan og öruggan hátt og kerfið
býður uppá fyrir innanhússamskipti .
Nánari upplýsingar hjá Microsoft Ís-
land eða samstarfsaðilum um allt land .
Microsoft Íslandi
Borgartúni 25
105 Reykjavík
Sími 510 6900
www.microsoft.is
Skrifstofan
á siglingu