Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 80

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 80
Tímarit Máls og menningar svo að það yrði sérstök stofnun, þar sem tveir íslenskir stúdentar skyldu njóta styrks á ári hverju. Arnasafn varð smám saman miðstöð íslenskra fræða i Kaupmannahöfn og með því til ómetanlegs gagns íslenskri menningu, ekki aðeins vegna þeirra afreka sem það skilaði í útgáfum, heldur og af því að það varð vinnustaður fjölda íslenskra fræðimanna og eins konar kjarni íslensku nýlendunnar í Höfn. Arni Magnússon hóf sjálfur fræðistörf sin sem aðstoðarmaður hjá Thomas Bartholin og varð síðar fyrstur Islendinga prófessor við Hafnarháskóla. Samstarf hans og danskra lærdómsmanna varð upphaf langrar og nytsamrar samvinnu íslenskra og danskra háskólamanna' við rannsóknir á þeim efnivið sem varð- veittur var í Arnasafni og við þau rit sem þaðan komu á prent. Þó að Islendingar væru af eðlilegum ástæðum fjölmennari í þeim hópi, skiluðu danskir starfs- bræður þeirra oft drjúgum árangri og útveguðu margoft það fé sem þurfti til þess að standa undir fræðilegum rannsóknum og útgáfum á því sviði sem Islendingar máttu síst án vera. Ekki er ofmælt að úr þeim hópi Islendinga sem áttu þess kost að vinna í Árnasafni eða á þess vegum hafi komið flestir brautryðjendur í endurreisn íslenskrar menningar á næstu öldinni eftir að það komst á laggirnar. Sá húm- anismi sem í raun var undirrót söfnunar og rannsókna hinna fornu handrita hafði því miklu varanlegri áhrif á íslenska menningu en nokkuð annað atriði sem rekja má til Hafnarháskóla á fyrstu öldum hans, en danskir háskólamenn áttu þar góðan hlut að með uppörvun og stuðningi allt frá upphafi. Fornbók- menntirnar urðu hvatning til dáða, ekki aðeins íslenskum menntamönnum heldur þjóðinni allri, beint og óbeint; þær urðu undirstaða vaxandi þjóðernis- vitundar og sjálfstæðisbaráttu þegar stundir liðu fram. Fyrsti visir þessarar þróunar kemur fram þegar á 17. öld. Eins og drepið var á hér á undan birtast áhrif húmanismans á Islandi í ört vaxandi áhuga á sögu og bókmenntum sem nær til miklu fleiri en skólagenginna manna. Menn skrifa upp forn handrit af stórum meira kappi en áður, semja annála og önnur sagnfræðirit, ekki aðeins á latínu heldur að verulegu marki á íslensku. Vafalaust má telja að hvatninguna til þessa megi að verulegu leyti rekja til rita Arngríms lærða og þeirra manna sem fetuðu í fótspor hans, en flestir þeirra höfðu stundað nám í Kaupmannahöfn. Þessi óbeinu áhrif sem rakin verða til Hafnarháskóla urðu með tímanum áhrifadrýgri en þau fræði sem íslenskir stúdentar námu hjá kennurum sinum á háskólanum. Svo mætti jafnvel kveða að orði að háskólinn, sem um þetta leyti var eitt höfuðvígi rétttrúnaðar og konungshollustu, hafi á 70
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.