Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 131

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 131
Umsagnir um bækur ANDSTÆÐUR OG EINING Lífið, flaumur þess í rás tímans, fegurð í einfaldleik, ævi manns í hlutveröld og hugarheimi, minnileg dæmi, óvissa, söknuður, þó siðast en ekki síst: alsátt. Þetta og þvilikt lék í huga mínum eftir bráðabirgðakynni af ljóðmælum Snorra.1 Tíðast er ljóðsjálfið á sjónarhæð, horfir yfir lækina sem löðuðu menn til fylgdar og vegina sem völdu menn en einnig fram til auðnarinnar og sér að þar rís múrinn svimhár og dimmur við grátt loft. Samkvæmt því sem hér er gefið í skyn er heimur bókarinnar víður, hins vegar er höfundurinn síst af öllu að draga upp yf- irlitsmynd afhonum. Margir þeir sem fara „vegina“ vildu sennilega að sjónaukanum góða væri beint að öðru og fleira, kannski ýmsu því „sem lifað er fyrir og barist er móti“, eins og skáldið gerði á fyrri árum. En hér er enginn járnskógur né heldur rangsnúinn heimur, enda finnst hvergi herpingur af innrætingu sem stundum er flutt í ljóði án þess að vera af kyni þess, þótt góð sé annars og gild. Skáldið hlítir þeim lögmálum einum sem smám saman hafa orðið ríkjandi í listsköpun þess. Og af því að þau reynast því a. m. k. eins hall- 1 Snorri Hjartarson: Hauslrókkriðyfir mér. Mál og menning. Reykjavík 1979. kvæm og fyrr er bókin að þessu leyti engin eftirhreyta heldur framhald. Lesandi verst þó varla þeirri tilfinningu að stundum hafi ákveðnar hefðir í efnisvali, máli, sti! og jafnvel formgerð tekið völdin um of, t. a. m. eru ýmsar erkitýpur áleitnar og koma fram i venjubundnum táknunum sem orð eins og vor, sumar, fljót, naktar greinar, hauströkkur og fleiri slik vilja einatt fá i skáldskap. I framhaldi af þessu mætti benda á orð sem einnig eru altíð en þó sifellt að verða meiri og meiri eign Snorra, svo sem heiði, kvrrð, dul, húm, bjarmi, þoka að ógleymdu sérstöku safni litarorða. En frá þessu málfari getur lesandi rakið sig til gersema sem Snorri gætir einn og myndu brenna fingur annarra ef þeir reyndu að gera þær að sínum: hjúfurregn, dagmáni, náttbál, álfaljóri, húmgrænn, sólmisturblár. Fátt er þó talið en þvilik málsköpun er bæði frumleiki og heild i Ijóðagerð hans likt og Jónasar og eignar- hald beggja mun vara lengur en höfund- arréttur að lögum. En enginn skyldi ætla „orðin tóm séu lifsins forði“, enda þótt þau séu til alls fyrst. Þegar skoðuð er innri gerð Ijóðanna með hliðsjón af eldri kvæðum skáldsins er formviljinn yfirleitt hinn sami: Fáein myndstef opna djúpt baksvið; fremst er brot af náttúru sem ákvarðar likingar- dæmi (allegóríu) þvi að tíminn gegnir að jafnaði miklu hlutverki. Þetta er vitaskuld gömul og þaulræktuð skáldskaparaðferð 121
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.