Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1981, Síða 109

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1981, Síða 109
Skólaumbcetur og skólagagnrýni afturhaldið með ítroðslusjónarmiðin og hins vegar framsækin öfl skólamanna, sem vilji efla persónulegan þroska nemenda. Því er svo hnýtt við að framsækni í skólamálum verði að haldast í hendur við róttæka umbótastefnu á öðrum sviðum. í þessum „sósíalísku'* sjónarmiðum felst tröllatrú á skólagöngu. Efling skólastarfs er gert að einum grunnþætti sósíalískrar baráttu. Feti lengra í röksemdafærslunni gengur Guðrún Friðgeirsdóttir: „Það á m. a. að vera hlut- verk menntunar að vera afl sem veldur breytingu á þjóðfélaginu til hins betra." (2) Þorsteinn Vilhjálmsson (8) mælir eindregið með því að vegur verkmenntunar verði aukinn, með því að verkskólar leysi meistarakerfi af hólmi og gefinn verði kosturá fjölbreyttri sérþjálfun og framhaldsmenntun. Með því móti verði aukin virðing verklegra starfa (og samfélagsstaða þeirra sem þau vinna væntanlega styrkt, t. a. m. hvað varðar laun). Gísli Pálsson (11) telur að aukin samfélags-- fræðakennsla opni augu nemenda fyrir misbrestum samfélagsins og auknar samfélagsfræðirannsóknir leiði slíka misbresti í ljós, valdhöfum til óþurftar. Sumir höfundarnir, t. d. Jónas Pálsson og Þorsteinn Vilhjálmsson, telja að framleiðniaukning og tækniþróun síðustu áratuga og það flóknara þjóðlíf sem fylgir i kjölfarið krefjist aukinnar menntunar. Sósíalistar eigi að taka virkan þátt i þessari þróun með umbótastarfsemi og leggja sérstaka áherslu á menntunar- aukninguna — gera hana þannig úrgarði að persónuþroski nemenda eflist. Slik umbótaviðleitni færi okkur bæði huglægt og hlutlægt nær sósíalismanum. Hjá öðrum höfundum er menntastefnan ekki sett í slíkt samhengi, og hún er jafnvel orðuð sem siðferðileg eða normatíf krafa, sbr. tilvitnun í Guðrúnu Friðgeirsdóttur hér að ofan. Það er skoðun mín að sósialísk menntastefna nái skammt á óskhyggjunni, heldur verði að byggja á raunsæju mati á samfélagsþróun og hlutverki mennt- unar í henni. Og mat Þorsteins og Jónasar er ekki raunsætt að minum dómi. Það er rauði þráðurinn í skrifum hinna sósíalísku skólamanna að i auðvalds- samfélagi samtímans sé möguleiki á skólaþróun sem stefni út fyrir þetta sam- félag, verði lyftistöng sósíalískrar baráttu. Sósíalistum beri að styðja þá þróun með virkri umbótastarfsemi. Ég tel hins vegar að möguleikar sósíalískrar hreyfingar i skólum séu bundnir við baráttu gegn skólaþróuninni og við það að sú barátta tengist annarri baráttu gegn auðmagnsþróuninni. Þótt auðmagnsþróuninni fylgi miklar tækniframfarir leiðir það ekki til þess að störf alls fjöldans verði flóknari og innihaldsríkari, heldur er verkalýður sviptur inntaki vinnunnar, lífskjörum hans haldið í lágmarki, en lífsgæði og framleiðsluþekking hlaðast á hitt skautið, auðmagnið. Almenn skólaganga fer 95
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.