Tímarit Máls og menningar - 01.03.1981, Page 110
Tímarit Máls og menningar
að visu vaxandi, en annars vegar er það til þess að efla aðlögun að launavinnunni
og hins vegar hafa skólarnir tekið að sér hluta af aðlögunarhlutverki fjölskyldu,
vinnustaðar og fleiri aðila. Þegar sósíalistar binda pólidskar vonir sínar við
þróun skólanna eru þeir ekki einungis haldnir misskilningi, heldur láta þeir
kapítalismann koma aftan að sér og gerast e. t. v. einörðustu brautryðjendur
hinna kapítalísku umbóta.
Þessar almennu staðhæfingar verða skýrðar i næstu köflum.
2. Undirstöðuatriði í marxískri skólagagnrýni
Borgaralegir fræðimenn lita annaðhvort á marxisma sem óvisindaleg „hjáfræði“
eða eina samfélagskenningu af mörgum. Margir marxistar taka undir siðari
skoðunina, telja sína kenningu einungis réttari en aðrar. Ég get ekki alls kostar
fellt mig við slík sjónarmið; marxisminn hefur að minu mati allt aðrar sam-
félagsforsendur en borgaraleg vísindi, stendur á allt öðrum grunni. Borgaraleg
félagsvísindi lita á það sem hlutverk sitt að safna og kerfisbinda þekkingu um
samfélagið, en marxisminn sýnir fram á að þeirrar þekkingar er aflað og beitt af
tilteknum samfélagslegum orsökum, að hún tekur á sig tiltekna mynd vegna
þess hvernig hún er til komin, að samfélagsvísindi þróast sem tæki til að greina
vanda auðmagnsins og draga úr honum.
Hins vegar er marxisminn tæki til að gagnrýna samfélag auðmagnsins. Segja
má að þungamiðja þeirrar gagnrýni sé afhjúpun marxismans á uppsprettu
kapítalískra verðmæta; kenningin um gildisaukann er lykillinn að skilningi á
almennum lögmálum um gerð og þróun auðskipulagsins. Gildislögmál Marx
gerir okkur m. a. kleift að skilja kreppuna sem óhjákvæmilegan fylgifisk
kapítalisma, og það veitir okkur verkfærin til að afhjúpa hvernig auðmagnið
mótar gervallt samfélag vort. Þannig er það afar villandi hjá Lofti Guttormssyni (1)
að Marx hafi fátt sagt um skólamál, um þau hafi ekkert Kapital verið ritað.
Hann hefur það athugasemdalaust eftir einhverjum bullukollinum að „kerfi
náms og boðskipta“ og „hin flóknu tengsl sem byggjast á kveikingu og
aðhlynningu lífs“ hafi orðið utangarðs hjá Marx, og lýsir það þröngum skiln-
ingi á þeirri samfélagskenningu sem einkum er að finna í höfuðriti Marx, Das
Kapital.
í „Auðmagninu" er það rakið hvernig verkalýður i kapítalismanum er fyrst
og fremst vinnuafl. Þar er líka lagður almennur grundvöllur að skilningi á
þróun kapítalisks vinnuferlis og stöðu vinnuafls i því. Á þeim grunni byggir
96