Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1981, Blaðsíða 129

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1981, Blaðsíða 129
ekki um seinþroska börn og unglinga. En ég held það væri ómaksins vert ef menn vildu setjast niður og velta því fyrir sér hvort nokkur unglingabók sé raunveru- lega góð bók nema hún sé líka góð fyrir fullorðna og öfugt. Að vísu get ég nefnt allnokkrar nýtískar raunsæissögur fyrir fullorðna sem ég vildi ógjarna halda að unglingum. En ég get vel spurt: er það ekki bara til marks um að þetta séu ógóðar bækur? Þessar hugleiðingar gætu orðið miklu lengri, og kannski gefst tækifæri til frekari umræðu ef einhverjum sýnist það þess virði. En þær eru settar hér á blað til að kvitta fyrir góða bók, því bók sem vekur mann til umhugsunar er góð. Heimir Pálsson. ATÓMSKÁLDIN GÓÐU> Undanfarin misseri hefur það mátt vera áhugamönnum um íslenskar nútímabók- menntir og bókmenntafræði gleðiefni að sjá hvert ritið af öðru um þessi efni líta dagsins ljós. Þar hefur Rannsóknarstofn- un í bókmenntafræði við Háskóla íslands oftlega haft forgöngu — nú eða þá grónari stofnanirí samvinnu við hana. Ennfremur hefur verið gerð myndarleg tilraun til út- gáfu á BA-ritgerðum i fjölriti og sömu- leiðis hefur Studia Islandica birt mikil- vægar og alllangar ritgerðir um nútíma- bókmenntir. Hér nægir að minna á höf- unda eins og Silju Aðalsteinsdóttur, Friðu 1 Eysteinn Þorvaldsson: Atómskáldin. Ad- dragandi og upphaf módemisma i íslenskri Ijóda- gerð. Rannsóknarstofnun í bókmenntafræði, Fræðirit 5, Hið ísl. Bókmfél., Rvík 1980. Umsagnir um hcekur Á. Sigurðardóttur, Gerði Steinþórsdóttur og nú síðast rétt fyrir liðin jól Eystein Þorvaldsson, en þá kom út kandídatsrit- gerð hans um Atómskáldin með undir- titli: Aðdragandi og upphaf módernisma í islenskri ljóðagerð. Það hefur að vísu stundum verið dálítið á reiki hverjir ættu að tilheyra atóm- skáldaflokknum, en Eysteinn Þorvaldsson kýs með góðum rökum að telja þar aðeins fimm höfunda: Stefán Hörð Grímsson, Hannes Sigfússon, Einar Braga, Sigfús Daðason og Jón Óskar. Þeir eru allir af einni kynslóð, koma allir fram sem skáld um svipað leyti — og gerast allir nýj- ungamenn og Fjölnismenn hinir nýju eða öðru nafni Birtingskynslóðin. Það má að vísu vera hverjum ljóst sem handgenginn er ljóðum þessara manna að þeir eru býsna ólík ljóðskáld, enda sýnir Eysteinn ágæt- lega hvernig það voru fýrst og fremst að- stæður, söguleg tilviljun (eða kannski söguleg nauðsyn?) sem þrýstu þeim sam- an í einn hóp, gerðu þá að forsvarsfýlk- ingunni þegar tíminn var kominn fýr- ir módernismann í íslenskri ljóðagerð. Rit Eysteins er allmikið að vöxtum, alls 323 tölusettar síður að meðtöldum skrám, og skiptist í tvo hluta nokkuð sjálfstæða. Fjallar hinn fýrri um sögulegan aðdrag- anda og gerir grein fýrir atómskáldunum hverju um sig, en í hinum síðari er þess freistað að brjóta kveðskap atómskáldanna til mergjar og útlista m. a. flókna form- gerð ljóða þeirra. Eysteinn hefur greinilega lagt feikn- mikla vinnu í að kanna umræður um bókmenndr ásamt hverskonar tilraunum til nýsköpunar í íslenskri ljóðagerð á fyrri helmingi þessarar aldar. Sögulegt yfirlit 115 L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.