Tímarit Máls og menningar - 01.03.1981, Page 134
Tímarit Máls og menningar
gefur mynd þeirra innsýn í líf þess vinn-
andi fólks, sem engin saga er til um.
Ljóðum þessarar bókar verða ekki gerð
nein viðhlítandi skil í stuttum ritdómi,
svo margslungin eru þau bæði að formi og
efni. A bókarkápu hefur Helgi Sæmunds-
son skrifað nokkur vinsamleg orð um
Þuríði og bækur hennar, þar sem hann
skipar henni „í fremstu röð íslenskra
skáldkvenna". Af hverju ekki í fremstu
röð íslenskra skálda?
Helga Kress.
Til félagsmanna
Þegar þetta er ritað vantar enn allmikið á að reikningar síðastliðins árs séu frágengnir, en
þó er ljóst að veltuaukning hefur haldið i við verðbólguna og kannski ríflega það.
Afkoma hefur því verið tiltölulega góð í fjögur ár samfellt. Félagsmönnum hefur fjölgað
talsvert, t. d. bættust 300 við frá 1. september sl. til febrúarloka. Tala félagsmanna er nú
komin yfir 3.500.
Þessi fjöldi ætti að geta orðið traustur bakhjarl útgáfu af því tagi sem hér er stunduð.
Þó er meðalupplag bóka Máls og menningar fjarri þvi að ná þessari tölu. Flestar
útgáfubækur okkar eru prentaðar í 1500—2000 eintökum, og auk félagssölunnar eru
þær allar seldar á almennum markaði, í öllum bókaverslunum landsins. Ég held ekki það
væri til bóta að taka upp einhvers konar skyldukaup á félagsbókum, a. m. k. ekki að
óbreyttu ástandi á íslenskum bókamarkaði. Bókaklúbbur þar sem meðlimum eru
skammtaðar ákveðnar bækur er heldur ófýsilegur kostur, jafnvel þótt slíkt hefði í för
með sér umtalsverða lækkun á verði hverrar bókar. Hér er ekki rúm til að ræða þau mál
frekar að sinni, en við viljum minna á að gíróseðlar verða sendir út á næstunni og miklu
skiptir að félagsgjöld berist sem allra fyrst.
I inngangsorðum síðasta heftis var minnst á mannaskipti í útgáfunni. Þröstur
Ólafsson lét af framkvæmdastjórastörfum hér í fyrravor og gerðist aðstoðarmaður
fjármálaráðherra. I stað hans var ráðinn Ólafur Ólafsson, og í haust réðst Þuríður Baxter
til starfa við útgáfuna. Um leið og þau eru boðin velkomin færum við Þresti þakkir fyrir
gott starf. Enginn einn maður hefur átt eins ríkan þátt í velgengni félagsins á undan-
fömum árum. An þess ég vilji hnýta við neinum óskum um lífdaga núverandi r'tkis-
stjórnar vona ég að Mál og menning og hann séu ekki alveg skilin að skiptum.
Þ. H.
120