Morgunblaðið - 16.12.2014, Page 4

Morgunblaðið - 16.12.2014, Page 4
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Tíðarfarið hefur truflað ferðir fjölda fólks síðustu daga, hvort sem það hefur verið á leið til vinnu eða í einkaerindum á milli bæja eða lands- hluta. Stjórnendur snjómoksturs- tækja hafa staðið í ströngu við að halda helstu leiðum opnum, ef veður hefur á annað borð leyft það. Þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins stoppaði í Staðarskála á suð- urleið sinni í gærmorgun voru þrír bílstjórar í pásu eftir að hafa verið á þönum frá því snemma um morg- uninn, þeir Erling Kristinsson, Sam- son Bjarni Jónasson og Guðmundur Vilhelmsson. Þeir höfðu verið að ryðja Holta- vörðuheiði og leiðirnar frá Staðar- skála til Hvammstanga og í áttina til Hólmavíkur. Eftir því sem snjórinn er meiri eru ferðirnar fleiri og sögð- ust þeir stundum aka mörg hundruð kílómetra á dag, fram og til baka. Þannig sagðist Guðmundur hafa ek- ið einn daginn 540 kílómetra en hann heldur leiðinni opinni frá Stað- arskála að Hvammstanga. „Gott veður fyrir okkur“ „Það er búið að vera ágætt að gera síðasta hálfa mánuðinn, gott vetrarveður fyrir okkur,“ sagði Er- ling og brosti, en hann sér um leiðina frá Staðarskála, yfir heiðina og að Sveinatungu í Borgarfirði. Erling rekur verktakafyrirtækið Jarðlist og Samson er starfsmaður hans. Sam- son hefur það hlutverk að moka á Innstrandavegi við Hrútafjörð vest- anverðan, að Gufunesvík. Þeir sögð- ust aðspurðir fá athugasemdir frá vegfarendum ef vegirnir væru ekki nógu vel hreinsaðir. „Sveitungar mínir eru ófeimnir við að láta okkur heyra það,“ sagði Samson en minnti einnig ökumenn á að hringja hik- laust í Vegagerðina í 1777 til að láta vita af slæmri færð eða fá frekari upplýsingar. Fáir voru á ferli í Staðarskála í gærmorgun. Verið var að hreinsa planið og Lilja Guðrún Ragnars- dóttir, starfsmaður N1, var að hand- moka frá bensíndælunum. Hún sagðist hafa þurft að fara út að moka á hverjum degi að undanförnu. Hún sagði ótíðina hafa haft áhrif á traffík- ina í Staðarskála. Þannig hefðu að- eins um 40 manns komið síðasta sunnudag þegar færið var sem verst. Sá ekki á milli augna Ferðin suður gekk annars þokka- lega hjá blaðamanni, sem hafði verið veðurtepptur fyrir norðan í einn dag. Hált var alla leiðina og snjó- koma og skafrenningur í Skagafirði og Húnavatnssýslum. Eftir ágætis færð í Langadal hugsaði blaðamaður sér gott til glóðarinnar er hann sá lögregluna á Blönduósi fá sér morg- unkaffið í veitingaskála N1. Að- stæður þaðan leyfðu hins vegar eng- an hraðakstur því svo dimm él voru á leiðinni að Stóru-Giljá að „það sást ekki á milli augna,“ eins og einn góð- ur maður orðaði það forðum daga. Þegar nær dró höfuðborginni batnaði bæði veður og færð, m.a.s. var logn á Kjalarnesi. Hálkan var nánast horfin og hið eina sem þurfti að varast voru hraðamyndavélarnar. Sveitungar láta þá heyra það  Snjómokstursmenn kvarta ekki undan vetrarveðrinu síðustu daga  Nóg að gera í mokstrinum  Aka hundruð kílómetra á dag  Aðeins um 40 manns komu í Staðarskála allan sunnudaginn Staðarskáli Lilja Guðrún Ragnarsdóttir, starfsmaður N1 í Staðarskála, var að moka frá bensíndælunum þegar Morgunblaðið átti þar leið um í gær. Morgunblaðið/Björn Jóhann Kaffipása Bílstjórarnir Samson Bjarni Jónasson og Erling Kristinsson, til hægri, fengu sér kaffipásu í Staðarskála á milli anna í gær en Erling sér um snjómokstur yfir Holtavörðuheiði og Samson annast Hrútafjörð vestanverðan. Mokstur Guðmundur Vilhelmsson heldur veginum færum á milli Stað- arskála og Hvammstanga. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 skarðinu, sem hafði verið lokað í rúman sólarhring. „Fólk á landsbyggðinni heldur sig meira heima þeg- ar svona veður er, þar er veður oft verra í byggð en á suðvesturhorninu. Það getur verið ágætt veður í Reykjavík en brjálað á Hellisheiðinni,“ sagði Kristinn og ítrekaði við ökumenn að kanna vel aðstæður áður en lagt væri af stað í langferðir. Ökutæki og dekkjabún- aður þyrftu sömuleiðis að vera í lagi. „Það eru dæmi þess að fólk hafi ekki komist á milli héraða dögum saman og miðað við veðurspá eru leið- indi í kortunum áfram,“ sagði Kristinn og taldi ljóst að allt stefndi í þriðju jólin í röð þar sem vegasamgöngur yrðu erfiðar vegna veðurs og ófærðar. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Samgöngur fóru víða úr skorðum í gær, líkt og um helgina. Snælduvitlaust veður var austanlands og vegir víðast hvar ófærir. Flestir fjallvegir voru lokaðir á Norðaustur- og Austurlandi og ekkert ferðaveður. Ekkert hafði heldur verið flogið austur á Egilsstaði síð- an á laugardag. Þá féllu niður nokkrar ferðir á lands- byggðinni hjá Strætó í gær, eða frá Akureyri til Siglu- fjarðar, Húsavíkur og Egilsstaða. Vagninn frá Reykjavík til Hafnar í Hornafirði fór aðeins að Hvols- velli og var snúið þar við vegna hávaðaroks. Samgöngur á fjallvegum á vestanverðu landinu gengu betur fyrir sig í gær en um helgina. Þannig var Öxnadalsheiðin opnuð og Vatnsskarðið en þæfingsferð var á Þverárfjalli og lítil umferð. Allt brjálað ef Hellisheiði lokast „Það er búið að vera vitlaust að gera hjá okkur síð- ustu daga,“ sagði Kristinn Þröstur Jónsson hjá upplýs- ingaþjónustu Vegagerðarinnar, en mikið er hringt í númerið 1777 þegar færð tekur að spillast. „Annars er þetta rólegt á meðan Hellisheiðin, Þrengslin og Reykjanesbraut eru til friðs. Ef þessir vegir lokast þá verður brjálað að gera,“ sagði Kristinn en þegar Hellisheiðin og Þrengslin lokuðust í síðustu viku hringdu um 2.100 manns í 1777 á einum degi. Til samanburðar voru símtölin komin í um 800 um miðjan dag í gær, þó að allt austanvert landið væri meira og minna lokað. Mest hafði verið hringt út af Víkur- Morgunblaðið/Björn Jóhann Ófært Leiðin yfir Þverárfjall á milli Skagafjarðar og Húnaflóa hefur oft lokast síðustu daga vegna veðurs. „Búið að vera vitlaust að gera hjá okkur“  Samgöngur úr skorðum  Mikið hringt í Vegagerðina Staðarskáli er fjölfarinn áning- arstaður við þjóðveginn. Þang- að koma inn hundruð þúsunda ferðamanna árið um kring. Með- al þeirra sem stoppuðu þar ný- verið var Bjarni Haraldsson, kaupmaður á Sauðárkróki. Bjarni ók vöruflutningabíl á þessari leið til fjölda ára en að þessu sinni var hann í einkaer- indum suður með Strætó. Hann átti erindi á salernið og þegar kom að því að þurrka sér um hendurnar vandaðist málið. Sá hann hvergi handþurrkur en ungur samferðamaður benti Bjarna á nýtískulegan blásara við handlaugarnar. „Nú,“ sagði hinn spaugsami kaupmaður og brosti, „ég hélt að þetta væri buxnapressa.“ Þurrkun í buxnapressu SAGA ÚR STAÐARSKÁLA Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com Jólatilboð: 6.350 kr. Andvirði: 7.520 kr. Handkrem 30 ml - 1.250 kr. | Fótakrem 30 ml - 1.250 kr. Sturtukrem 75 ml - 990 kr. | Húðmjólk 75 ml - 1.390 kr. Handsápa 500 ml - 2.640 kr. SHEA BUTTER GJAFAKASSI SVÍFÐU INN Í JÓLAHÁTÍÐINA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.