Morgunblaðið - 16.12.2014, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.12.2014, Blaðsíða 9
BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Jólaverslun á Húsavík fer rólega af stað í ár. Þingeyingar fara alltaf í talsverðum mæli inn á Akureyri fyrir jólin og svo hefur verslun á netinu aukist, en meðan tíðin er svona rysjótt gengur fólk kannski frekar frá innkaupum sínum hér á Húsavík,“ segir Magnea Magn- úsdóttir, kaup- maður í Bóka- verslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík. Jólaverslun þar í bæ fer rólega af stað, en Magnea væntir þess að að kippurinn komi í þess- ari viku. Önnur lögmál í bóksölu Mörg ár eru síðan norðanlands hefur komið viðlíka vetrarríki nú í desember. Á sunnudaginn var leið- in um Víkurskarð lokuð vegna snjóa og þar með ófært úr Þing- eyjarsýslum í Eyjafjörð, það er á desemberdegi sem margir hefðu notað til þess að bregða sér bæj- arleið „Þetta fannfergi kom óvænt. Í byrjun mánaðarins var hægt að spóka sig hér um göturnar á peys- unni en nú er hér kafaldsbylur og snjór,“ segir kaupmaðurinn. Magnea hefur staðið vaktina í bókabúðinni síðastliðin þrettán ár. Búðin er gamalgróin, var stofnuð árið 1909 og hefur verið rekin óslitið síðan. Þar fæst allt mögu- legt; raftæki, símar, tölvur, leik- föng, gjafavörur, ritföng og bæk- ur. Segir Magnea taktinn í starfseminni í grófum dráttum annars þann að yfir sumarið sé hún með ferðamannaverslun, enda í næsta nágrenni við útgerð hvala- skoðunarfyrirtækjanna. Yfir vetr- artímann sé þetta meira verslun heimamanna. „Bókaverslun hér á Húsavík lýt- ur alls ekki sömu lögmálum og annars staðar; hér seljast bækur Yrsu og Arnaldar bara svona í meðallagi. Bækur sem tengjast staðnum fá hins vegar alltaf fínar móttökur,“ segir Magnea. Bætir við að ljóðabók Þingeyingsins Ein- ars Georgs Einarssonar, Hver- fuglar, hafi selst mjög vel en sé, því miður, uppseld hjá útgefanda. Þá fari minningakver Sigurjóns Jóhannessonar, fyrrverandi skóla- stjóra á Húsavík, Skarað í gamlar glæður, rjúkandi vel af stað og verði sjálfsagt, þegar upp er stað- ið, vinsælasta bókin í ár á Húsa- vík. Svartsýnn á mjólkursendingu Ófærðar vegna hafa aðdrættir til verslana á Egilssstöðum verið erfiðir síðustu daga. Vegna snjóa voru leiðir á Hérað lokaðar síðast- liðinn föstudag og vörusendingar norðan úr landi bárust ekki fyrr en á föstudagskvöld. „Þegar mönn- um tókst loksins að brjótast yfir Mývatns- og Möðrudalsheiði feng- um við ríflegan skammt, til dæmis af mjólkurvörum úr samlaginu á Akureyri. Núna er hins vegar vit- laust veður á öræfunum og ég svartsýnn á að við fáum næsta mjólkurskammt í fyrramálið, þó við eigum svo sem nóg af flestu á lager,“ sagði Heiðar Róbert Birnu- son, verslunarstjóri hjá Nettó á Egilsstöðum, í samtali við Morg- unblaðið síðdegis í gær. Raunin er hin sama á Egils- stöðum og Húsavík; það er að snjóþyngsli efla verslun í heima- byggð. „Já, þegar er fært hér á Fljótsdalshéraði þá kemur fólk í kaupstað. Í dag eins og var fyrir helgina er hins vegar kolófært úti í sveitunum – og raunar víðar – og við finnum fyrir því hér í búðinni,“ sagði Heiðar og bætir við að takt- urinn í innkaupum jólanna nú sé næsta hefðbundinn. Til dæmis sé búið að selja kynstrin öll af Mack- intosh-sælgæti og hráefni í jóla- baksturinn í stórum stíl. „Héðan úr húsi er farið hálft tonn af hveiti, annað eins af sykri og ósköpin öll af eggjum. Jóla- baksturinn bregst líklega ekki,“ segir Heiðar Róbert. Snjóþyngslin efla verslun í heimabyggð  Ófært frá Húsavík  Hálft tonn af hveiti á Egilsstöðum Ljósmynd/Sara Ósk Halldórsdóttir Egilsstaðir „Já, þegar er fært hér á Fljótsdalshéraði þá kemur fólk í kaup- stað. Í dag er hins vegar kolófært, “segir Heiðar Róbert í Nettó. Magnea Magnúsdóttir FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning, hver og einn eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is HEILSA OG LÍFSTÍLL SÉRBLAÐ PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstudaginn 19. desember Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og lífstílsbreytingu á nýju ári. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út sérblað um heilsu og lífstíl laugardaginn 3. janúar Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Mjúkur pakki Bolir kr. 8.900 | Str. 38-52 Tryggvagötu 18 - 552 0160 Gjöfin sem vermir Tryggvagötu 18 - 552 0160 Pelsar - stuttir og síðir Mokkajakkar og -kápur Laugavegi 63 • S: 551 4422 Peysuúrval - Buxnaúrval - Blússur (litaúrval) - Kasmírtreflar - Sparibolir - Loðskinnskragar - Hanskar Gjafakort o.m.fl. Gjafainnpökkun Vandaðar jólagjafir konunnar - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.