Morgunblaðið - 16.12.2014, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
af öllum snyrtivörum,
ilmum og gjafakössum
fyrir dömur og herra
í desember
TAX FREE
Embættismenn í utanríkisráðuneyt-
um Svíþjóðar og Danmerkur kölluðu
sendiherra Rússlands á sinn fund í
gær til að mótmæla flugi rússneskr-
ar njósnavélar nálægt farþegaþotu
sunnan við Malmö á föstudaginn var.
Farþegaþota á vegum SAS var á
leiðinni frá Kaupmannahafnar til
Póllands þegar rússneska vélin kom
hættulega nálægt henni.
Peter Hultqvist, varnarmálaráð-
herra Svíþjóðar, sagði að slökkt
hefði verið á ratsjársvara rússnesku
vélarinnar og farþegaþotur hefðu því
ekki getað séð hana á ratsjá. „Þetta
er alvarlegt, ósæmilegt og hreint og
beint hættulegt,“ sagði hann.
Lífi farþega stefnt í hættu
„Það er algerlega óviðunandi að
lífi fólks sé stefnt í hættu með þess-
um hætti,“ sagði Martin Lidegaard,
utanríkisráðherra Danmerkur.
Vélarnar voru í alþjóðlegu loft-
rými á flugumferðarsvæði Svíþjóðar.
Sænskar og danskar herþotur flugu
að rússnesku vélinni. Talsmaður
rússneska varnarmálaráðuneytisins
neitaði því að hætta hefði verið á
flugslysi. Hann sagði að rússneska
vélin hefði verið meira en 70 km frá
farþegaþotunni og njósnavél á veg-
um NATO hefði einnig verið á svæð-
inu á sama tíma.
Fyrr á árinu rufu rússneskar her-
flugvélar lofthelgi Svíþjóðar, Finn-
lands og Eistlands. Artis Pabriks,
fyrrverandi utanríkis- og varnar-
málaráðherra Lettlands, segir að
það sem af er árinu hafi fleiri rúss-
neskar herflugvélar flogið að loft-
helgi landsins en síðustu níu ár
samanlagt. bogi@mbl.is
Var hættu-
lega nálægt
farþegaþotu
Flugi rússneskrar
njósnavélar mótmælt
Þjóðarflokknum og Sósíalistaflokkn-
um á Spáni stendur stuggur af miklu
fylgi vinstriflokksins Podemos sem
var stofnaður fyrir tæpu ári og nýtur
nú meiri stuðnings en nokkur annar
stjórnmálaflokkur landsins ef marka
má skoðanakannanir.
Podemos varð til úr mótmæla-
hreyfingu fyrir tæpu ári og hefur lof-
að að vernda fátæka Spánverja gegn
„erfðastétt“ stjórnmálamanna og
bankamanna. Flokkurinn fékk 1,2
milljónir atkvæða og fimm sæti í
kosningum til Evrópuþingsins í maí
og skv. nýlegri könnun ætla um
28,6% að kjósa hann í þingkosning-
um sem fram fara á næsta ári. Hann
mældist með meira fylgi en flokk-
arnir tveir sem hafa skipst á um að
stjórna landinu frá því að lýðræði var
komið á eftir dauða Franciscos
Franco einræðisherra árið 1975.
Þjóðarflokkurinn, sem er til hægri
og er nú við völd, er með 26,3% og
Sósíalistaflokkurinn 20,1%.
Maria Dolores de Cospedal, vara-
formaður Þjóðarflokksins, líkir
Podemos við vinstristjórnina í Vene-
súela og Hugo Chavez, fyrrv. forseta
landsins. „Svona flokkur, sem bygg-
ist á lýðskrumi, er mjög hættulegur
fyrir stjórnkerfið og lýðræðið, fyrir
Þjóðarflokkinn og alla hina stjórn-
málaflokkana,“ segir de Cospedal.
„Við vitum að þau eru á móti öllu. Við
vitum ekki hvað þau vilja.“
Leiðtogi Sósíalistaflokksins,
Pedro Sanchez, hefur einnig sakað
Podemos um lýðskrum.
Sakaður um lýðskrum
AFP
Lýðskrumari? Pablo Iglesias, leiðtogi Podemos, flytur ræðu á flokksfundi.
Nýr vinstriflokkur ógnar gömlu valdaflokkunum á Spáni
Ellefu ára stúlka frá Arkansas
greiddi leigubílstjóra 160 þúsund
krónur til að fara með sig til Flór-
ída. Þar ætlaði hún að hitta strák.
Lögreglan var kölluð til og var
ferðalagið stöðvað í Georgíu. Ekk-
ert amaði að stúlkunni.
Lögreglan notaði farsímagögn til
að finna út hvar stúlkan var stödd
eftir að foreldrar hennar höfðu til-
kynnt hvarf hennar. Hún fór upp í
leigubílinn í heimabænum Little
Rock. Ætlaði hún að hitta 16 ára
strák í Flórída en hún hafði kynnst
honum fyrir tveimur árum.
Leigubílafyrirtækið segir að
leigubílstjórinn hafi ekki haft hug-
mynd um hversu ung stúlkan var.
Hún hafi haft mjög mikinn farða og
litið út fyrir að vera 17-18 ára.
Leigubílstjórinn verður ekki
ákærður enda telur lögreglan hann
ekki hafa vitað hversu ung stúlkan
var. Stúlkan hafði stolið peningum
frá ömmu sinni, sem hún borgaði
leigubílstjóranum fyrir farið.
Ellefu ára tók leigu-
bíl fyrir 160.000 kr.
BANDARÍKIN