Morgunblaðið - 16.12.2014, Page 29

Morgunblaðið - 16.12.2014, Page 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 Heilbrigðiskerfið stendur fólki nær en flest annað í samfélags- gerðinni. Þess vegna vill meirihluti okkar umbuna læknum og öðrum starfsmönnum þess mjög vel. Þess vegna krefjumst við þess að kerfið og starfsmennirnir eigi sér jafngóða framtíð hér og annars staðar á Norðurlöndum. Það er misskilningur að deila ríkis og lækna sé hefðbundin kjaradeila; hún er fyrst og fremst samfélags- deila og neyðarákall. Heilbrigð- iskerfið naut ekki eyðslutímanna milli 2000 og 2008, niðurskurður er búinn að rífa það á hol og hrekja stóran hluta starfsfólks út í horn þaðan sem aðeins verður brotist fram með látum. Nokkrar auka- fjárveitingar breyta engu þar um og ekki heldur loforð um nýjan spítala. Það er afleitur misskilningur að læknar megi ekki „fá meira en aðr- ir“. Þeir verða að fá það eins og flug- áhöfn sem við treystum fyrir lífi okkar og limum. Það er líka misskilningur að vinnutími lækna sé eðlilegur, að heilbrigð- iskerfið geti veitt eðli- lega þjónustu eins og er eða að horfurnar séu þolanlegar. Það er enn fremur misskiln- ingur að ganga til samninga með því að breiða út rangindi um laun lækna miðað við vinnutíma, veifa furðu- sögum um 50% kaup- kröfur og bjóða sífellt fram „það sama og aðrir geta feng- ið“. Við viljum að lykilpersónur kerf- isins geti unnið vinnuna sína, eins og flugstjórar svo dæmi sé tekið, og að læknar flykkist til landsins. Og það er loks misskilningur að sjá ekki til þess að ráðherrar, þing- menn og samninganefndir séu dag og nótt á tánum við að leysa verk- efnin. Þau eru nefnilega tvö: Neyð- arsamningar strax um vinnutíma, starfshætti og laun til að bjarga okk- ur frá algjöru kerfishruni og svo aft- ur endurskoðun og afmiðstýring alls kerfisins með það fyrir augum að það verði nálægt okkur hvar sem við búum, aðlaðandi fyrir starfsfólk og á pari við það sem gerist í stærri sam- félögum. Og hvaðan á að fá fé til þess? Milljarðatugina eiga fyrr- greindir almannakosnir samfélags- þjónar okkar að finna með mjög breyttri forgangsröðun opinberra fjármuna, því samfélagsrekstur skal á kerfinu vera og fjármagnið er til ef djúpt er leitað. Samfélagsdeila og neyðarákall Eftir Ara Trausta Guðmundsson » Það er misskilningur að deila ríkis og lækna sé hefðbundin kjaradeila; hún er fyrst og fremst samfélags- deila og neyðarákall Ari Trausti Guðmundsson Höfundur er jarðvísindamaður og rithöfundur. Þessa dagana fer sá tími í hönd sem keppst er við að kynna börn- um landsins hefðir okkar og siði jafnt með skemmtun og upp- fræðslu góðra siða. Kjörinn fulltrúi Vinstri-grænna kvart- aði nýlega vegna kirkjuferðar sem leik- skóli í borginni hafði skipulagt fyrir börnin á jólaföstunni. Kvörtunarefnið var kristileg innræt- ing við börnin og skilst mér að henni finnist það ekki passa fyrir íslensk börn. Vissulega fer fram innræting í kirkjum landsins og það ekki bara við börnin! Innrætingin felst meðal annars í því að brýna fyrir jafnt börnum og fullorðnum að hafa ætíð tillitssemi og kærleika í huga í um- gengni sinni við félaga sína eða svo notuð sé orð kristinnar trúar að „það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra“, eða komdu fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig. Ég, sem þessar línur rita, fagna því að til skulu þeir staðir í þjóð- félagi okkar sem áminna okkur um góða siði og tillitssemi og mætti gera meira af því að halda kenningum kristinnar kirkju til haga. Hugsanlega færi margt í þjóð- félagi okkar betur ef við allt frá barnæsku temdum okkur betur samskipti og tillitssemi kristinnar kenningar. Skólar landsins hafa því miður þurft að berjast við ein- elti og í þjóðfélagi okk- ar verða einstaklingar og ekki síst börn fyrir alls konar áreiti og ætti það frekar að vera til gleði fyrir foreldra og reyndar alla sem bera hag barna fyrir brjósti að sem víðast í þjóð- félagi okkar sé innræti fyrir hendi í þá áttina að kenna börnum okkar og okkur sjálfum tillits- semi og góða umgengnissiði. Finnst manni það orðið ansi langt gengið þegar kjörnir fulltrúar al- mennings í landinu gera sér ekki grein fyrir því á hverju menning okkar og siðferðilegur grunnur byggist en telja sig samt hæfa til starfa í almannaþágu. Tökum endilega ekki frá börn- unum okkar þá sönnu jólagleði að fá að upplifa helgi jólanna í því hátíð- lega og notalega umhverfi sem kirkjurnar okkar kunna að bjóða upp á. Ferðir barna í kirkjur landsins um jólin Eftir Hjálmar Magnússon Hjálmar Magnússon »Hugsanlega færi margt í þjóðfélagi okkar betur ef við allt frá barnæsku temdum okkur betur samskipti og tillitssemi kristinnar kenningar. Höfundur er fv. framkvæmdastjóri og áhugamaður um velferð barnanna í landinu okkar. Til hamingju Jóhann Sigurjónsson, til ham- ingju Íslendingar, Ís- landsmið eru orðin stærsta bolfiskrækt- unarstöð í heimi. Aldrei meiri bolfiskur, við hlýnun sjávar kemur fæðan, makríll og síld og loðna sem ókeypis fæða á nægtarborð bol- fisksins. Getum við kannski byggt Landspít- alann fyrir aukningu á kvóta? Allan fisk er hægt að selja. Ekki hefði manni dottið svona kraftaverk í hug þegar maður var að gera að 20-30 cm kóðum úti á Halamiðum 1952. Allt er breytingum undiropið, ég hef oft sagt það að þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst. Íslendingar eru búnir að skilja eftir hæfilega stærð af hrygningar- stofni til að ganga ekki of nærri þorskinum í áraraðir, nú njótum við af- rakstursins. Karl Jóhann Ormsson Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Til hamingju Fiskverkamaður Aflaverðmæti íslenskra skipa var 7,1% meira í ágúst í ár en í fyrra. Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms-lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar-lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti E-60 Bekkur Verð frá kr. 59.000 Fáanlegur í mismunandi lengdum. Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla www.facebook.com/solohusgogn E-60 Stólar Klassísk hönnun frá 1960 Hægt að velja um lit og áferð Verð frá kr. 24.300 mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.