Morgunblaðið - 16.12.2014, Side 31

Morgunblaðið - 16.12.2014, Side 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 VANDAÐIR ÍTALSKIR GÖNGU- OG ÚTIVISTARSKÓR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Verð 19.995 SMÁRALIND • 2 HÆÐ BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Félag eldri borgara í Reykjavík Mánudaginn 8. desember var spil- aður tvímenningur á 14 borðum hjá bridsdeild Félags eldri í Reykjavík. Efstu pör í N/S: Magnús Oddss. – Oliver Kristófersson 388 Örn Isebarn – Hallgrímur Jónss. 359 Björn Árnason – Auðunn R. Guðmss. 351 Örn Ingólfsson – Steinn Lárusson 349 A/V: Björn Péturss. – Valdimar Ásmundss. 432 Höskuldur Jónss. – Elías Einarsson 376 Bjarni Guðnas. – Guðm. K. Steinbach 358 Haukur Harðarson – Ágúst Helgason 331 Fimmtudaginn 11. desember var spilað á 13 borðum N/S: Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 374 Guðlaugur Bessas. – Trausti Friðfinnss. 334 Sæmundur Pálss. – Sigtryggur Jónss. 333 Tómas Sigurjss. – Björn Svavarsson 326 A/V: Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 403 Björn E. Péturss. – Ólafur Theodórss. 392 Auðunn Guðmss. – Bergur Ingimundars.359 Magnús Jónsson – Óli Gíslason 334 Spilað er í Síðumúla 37. Suðurnesjabrids Það er hörkukeppni í tveggja kvölda Nettótvímenningi sem hófst sl. miðvikudag. Efstu pörin eru með 56% skor og parið í 5. sæti með tæp 52%. Staðan: Garðar Garðarsson - Bjarki Dagsson 56,0 Oddur Hanness. - Sigurjón Ingibjörnss. 56,0 Karl Einarsson - Skafti Þórisson 53,0 Seinna kvöldið verður nk. mið- vikudag og hefst spilamennskan kl. 19.03. Góðmennt í Gullsmára í kuldakastinu Spilað var á 10 borðum í Gull- smára fimmtudaginn 11. desember. Úrslit í N/S: Pétur Antonsson - Guðlaugur Nielsen 195 Sigtryggur Ellertss. - Rúnar Sigurðsson 188 Vigdís Sigurjónsd. - Þorleifur Þórarinss. 183 Gunnar Sigurbjss. - Sigurður Gunnlss. 179 A/V Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 231 Gunnar Alexanderss. - Elís Helgas. 202 Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 189 Rut Árnadóttir - Ása Jónsdóttir 188 Spilað verður í næstu viku. Loka- daginn 18. desember verður svo boð- ið upp á kaffihlaðborð eins venja hef- ur verið. Framkvæmdastjóri fiskeldisstöðva ritar grein í Morgunblaðið nýverið vegna greinar minnar um laxeldi og telur að eldi laxfiska sé mikið hagsmuna- mál fyrir byggðir landsins. Það kann að vera að svo sé fyrir sumar byggðir lands- ins en verður því mið- ur á kostnað annarra. Hag- fræðistofnun metur það svo að nýting veiðihlunninda styðji við 1100-1200 störf. Sú atvinnugrein er dreifð vítt um land. Enn er reynt að halda því fram að lítil hætta sé því fylgjandi sleppi lax úr kvíum að hausti til eða um vetur. Laxinn geti ekki lært að afla sér fæðu og verði fyrir afráni og drepist í hafi. Um- hverfisslysið í Patreksfirði sl. haust sýnir svart á hvítu að þetta er rangt. Lax sem slapp úr kvíum sl. haust lifði af sjávarvist og mætti sumarið eftir kynþroska og tilbúinn til þess að hrygna í ferskvatn. Framkvæmdastjórinn setur að vísu fram þá nýstárlegu kenningu að laxinn hafi hangið undir kvíunum allan veturinn og lifað af þess vegna. Ummæli hans um að mik- ilvægt hafi verið að hefja veiðar strax og laxinn slapp verða ekki túlkuð öðru vísi en það hafi ekki verið gert í þessu tilviki og eldisfyr- irtækið og Fiskistofa þar með ekki farið að lögum. Þetta er rangt og kenning framkvæmdastjórans kem- ur ekki heim og saman við þá stað- reynd að veiðar sem fóru fram við eldiskvíarnar eftir umhverfisslysið, lögum samkvæmt, báru engan ár- angur. Strokulaxinn hélt sig ein- faldlega fjarri eldisstaðnum líkt og framkvæmdastjórinn reynir nú að gera varðandi staðreyndir málsins í skrifum sínum. Segir hann jafn- framt að ég hafi slegið fram fullyrð- ingum um fjölda þeirra laxa sem sluppu úr kvíum Fjarðarlax og að engar opinberar tölur hafi verið birtar þar um. Þarna kemst fram- kvæmdastjórinn næst kjarna máls- ins. Í Noregi eru slíkar upplýsingar jafnan gerðar opinberar en það var ekki gert hér. Nú skora ég á fram- kvæmdastjórann að leggja fram staðfestar upplýsingar sem hrekja það að þúsundir laxa hafi sloppið. Það geri ég í ljósi þess að Fiski- stofu var upphaflega tilkynnt að tvö hundruð laxar hefðu sloppið, en sú tala var svo hækkuð í fimm hundruð þegar þessir tvö hundruð og rúmlega það höfðu ver- ið veiddir á stöng og í net nú í sumar. Fiskeldislögin Framkvæmdastjórinn víkur að breytingum sem gerðar voru á lög- um um fiskeldi sl. vor. Lands- samband veiðifélaga gerði veiga- miklar athugasemdir og breytinga- tillögur við frumvarpið og tók atvinnuveganefnd Alþingis flestar þeirra til greina. Tillaga okkar um að eldisfyrirtækum yrði gert skylt að afla sér ábyrgðartryggingar vegna mögulegs umhverfistjóns náði hins vegar ekki fram að ganga. Ástæðan var, að fiskeldismenn töldu að slíkar tryggingar yrðu svo dýrar að þær væru fyrirtækjunum ofviða. Það er alkunna að iðgjöld trygginga taka mið af tjónsáhættu. Þessi afstaða þeirra segir allt sem segja þarf um áhættuna af eldinu og engin trygging er nú í lögum um að tjón veiðiréttareigenda vegna laxeldis fáist bætt. Komi norskur strokulax úr eldi fram í íslenskum laxveiðiám mun slíkt bæði eyði- leggja laxastofna og einnig ímynd laxveiði á Íslandi. Þetta vita trygg- ingafélögin og einnig að hér er um gríðarleg verðmæti að tefla. Í Nor- egi eru dæmi þess að ós í laxveiðiár er þvergirtur með gildru til að hindra að eldislax gangi í ána. Á vefnum angling.is má sjá slíkt mannvirki í ánni Etnu. Þar er allur lax flokkaður og eldislaxinn drep- inn. Varla gera Norðmenn þetta að gamni sínu. Norski laxinn átti ekki að fara í sjó Þegar innflutningur á norskum laxahrognum var heimilaður á ní- unda áratugnum var um það fjallað í nefnd hagsmunaaðila sem þáver- andi landbúnaðarráðherra, Jón Helgason, skipaði. Nefndina skip- uðu fulltrúar fiskeldismanna og veiðiréttareigenda ásamt veiðimála- stjóra. Niðurstaða nefndarinnar var að aldrei skyldi leyft að norskur lax væri notaður í sjókvíaeldi eða haf- beit. Þessi skilyrði fyrir innflutningi á norska laxinum voru því miður aldrei leidd í lög. Veiðiréttareig- endur hafa litið svo á að þarna sé um heiðursmannasamkomulag að ræða og stóðu, ásamt stang- veiðimönnum, að álitinu í þeirri trú að samkomulagið yrði virt. Þetta samkomulag er nú þverbrotið og brýnt er að bregðast við því. Fram- kvæmdastjórinn fullyrðir í grein sinni að fiskeldismenn séu umhverf- issinnar. Það er gott til að vita. Nú legg ég til að þeir sýni það í verki og við tökum saman höndum um að gripið verði til ákvæðis sem sett var í lögin um fiskeldi sl. vor um að ráð- herra ákveði að aðeins megi nota geldstofn laxa af norskum uppruna í sjókvíaeldi við Ísland. Hrognin, sem meðhöndluð eru á þann hátt að laxarnir verða ófrjóir, eru til reiðu hjá fyrirtækinu Stofnfiski, en þau eru alfarið flutt úr landi og aðallega til Noregs. Þannig geta laxeld- ismenn sýnt væntumþykju sína fyr- ir umhverfinu og unnið að meiri sátt um þessa umdeildu atvinnu- grein en nú er. Atvinna og laxeldið Eftir Óðin Sigþórsson » Lax sem slapp úr kvíum sl. haust lifði af sjávarvist og mætti sumarið eftir kynþroska og tilbúinn til þess að hrygna í ferskvatn. Óðinn Sigþórsson Höfundur er formaður Landssambands veiðifélaga. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.