Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 35
Wendy) á sígildum tónverkum. Æfingar urðu ekki fleiri en ein, því við gerðum okkur grein fyrir að við yrðum að ráða okkur dans- meistara til að semja sporin fyrir okkur, því við vorum lítt vanir dansarar. En þetta gerði ekkert til því af nógu var að taka í hugmynda- bankanum. Dansþörf okkar fékk síðar svolitla útrás í Hárinu hjá Leikfélagi Kópavogs, þar sem Brynja Benediktsdóttir og Diddi fiðla stjórnuðu með miklum glæsibrag í frumuppfærslu á verkinu í Glaumbæ. Það hentaði ekki að Konni væri í smekkbux- unum í sýningunni svo hann fann sér síðan appelsínugulan skokk og varð einn af sterkustu karakt- erunum í sýningunni. Og dans- þörf okkar leiddi okkur á ball í Laugardalshöllinni, þar sem Konni fann sína Júlíu (sem heitir raunar Magga, eða öllu heldur Margrét). Með Möggu stofnaði hann heimili og þau fylgdust að í líffræðináminu og eignuðust börn og buru. Í minningargreinum gjaldfalla lýsingarorð gjarnan og er það synd þegar lýsa á manni eins og Konna, sem öll falleg lýsingarorð gilda um. Meðal annars var Konni einn sá mesti friðsemdarmaður sem hægt er að hugsa sér. Aðeins einn bardaga háði Konni um dag- ana, en það var við hinn skæða andstæðing Manninn með ljáinn. Sá náungi mætti allt of snemma, beitti snöggum og ósanngjörnum brögðum og skildi okkur öll eftir, vini Konna og ekki síst fjölskyldu hans, agndofa af undrun og sársauka. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum þennan mikla öðling. Ég minni að lokum á Afasjóð- inn til styrktar barnabörnum Konna og Möggu, hvatningar- námssjóð, sem ég veit að örlátir vinir og ættingjar munu leggja í af rausn – 0111-26-98800, 200652- 3559. Árni Blandon. Við kveðjum í dag mikinn öð- ling, Konráð Þórisson, sem féll frá langt fyrir aldur fram. Er hann okkur mikill harmdauði. Ung urðu Magga og Konni vinir okkar og við höfum fylgst að í fjörutíu ár, frá því fyrir þann tíma þegar Toggi í Tempó spilaði fyrir dansi í brúðkaupinu þeirra, fylgst hvert með öðru, sótt hvert annað heim og átt yndislegar samveru- stundir. Meðal annars hittumst við ávallt á nýársdag til að fagna nýju ári. Aldrei nokkurn tímann hefur borið skugga á þessa vináttu. Konráð og Margrét hafa alla tíð verið einstaklega samrýnd og mikið fjölskyldufólk og því er ljóst að sorgin þar á heimili tjald- ar ekki aðeins til einnar nætur. Konráð var einn þeirra fiski- fræðinga sem með elju og þraut- seigju lögðu grunn að ráðgjöf sem fært hefur okkur ríkulegan af- rakstur fiskstofna. Stundum fannst manni ekki kannski skipta máli hvað fiskar létu ofan í sig. Þegar upp er staðið voru slíkar rannsóknir á smágervum fyrir- brigðum náttúrunnar þó í raun undirstöðurannsóknir undir allar aðrar og alla ráðgjöf. En með Konráði blundaði einnig lista- maður og hagleiksmaður. Þegar leikföng biluðu heima var gjarnan beðið eftir Konráði til að sjá hvort hann kynni ekki einhver ráð. Aldrei höfum við séð glæsilegri piparkökuhús en þau sem Konráð og börnin þeirra Margrétar gerðu um hver jól. Hann var líka liðtækur leikari á yngri árum, lék m.a. í Hárinu og með Leikfélagi Kópavogs. En umfram allt var hann góður drengur sem lýsti upp veginn. Sú vissa er ofurlítil huggun við þetta sviplega fráfall að í hóg- værð sinni og ljúfmennsku átti Konráð góðar stundir með sínum nánustu og naut velgengni í starfi og leik. Þær eru fjársjóður í framtíð þeirra sem eftir lifa. Við fjölskyld- an sendum hugheilar samúðar- kveðjur til Möggu, barnanna, maka þeirra og barnabarna. Sigríður Hagalínsdóttir og Skafti Þ. Halldórsson. Þegar við fluttum í Blesugróf- ina fyrir hartnær 20 árum vorum við spennt að sjá hvers konar ná- granna við myndum eignast. Húsið númer 17 er við hliðina á okkur og var í leigu fyrsta árið þar sem eigendurnir voru erlend- is við vinnu. Það leið því ár þang- að til að við sáum okkar framtíð- arnágranna. Ég man eftir því þegar ég sá Konna fyrst. Ég gerði mér strax grein fyrir því að þarna væri á ferðinni vandaður, létt- lyndur og góður maður. Þegar ég var búinn að heilsa Möggu og Svavari hugsaði ég „mikið vorum við svakalega heppin með granna“. Leiðir okkar lágu saman í gegn um félagsstarf. Synir okkar eru jafnaldrar og voru saman í skóla og fótbolta hjá Víkingi. Konni var alltaf boðinn og búinn að gera það sem gera þurfti, Pollamót eða Esso-mót, það skipti ekki máli. Hann spurði einfaldlega „hvað á ég að gera?“ Samband okkar hefur alltaf verið gott og höfum við aldrei fengið annað en gott viðmót frá Konna og fjölskyldu. Ég man ekki eftir að hafa séð hann öðru- vísi en brosandi og í góðu skapi. Þvílíkur öðlingur. Nú er skarð fyrir skildi og Konni tekinn frá okkur allt of snemma. Hann átti svo mikið eft- ir að gera, m.a. í nýja hjólhýsinu. Eitt vil ég segja við þig elsku- legi nágranni: Þegar ég kem í „efra“ þá ætla ég að kaupa hús við hliðina á þér. Elsku Magga, Svavar, Fífa og Hrönn. Við Anna og strákarnir samhryggjumst ykkur og öllu ykkar fólki innilega. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Sigurður T. Jack. Kveðja frá Hafrann- sóknastofnun Það liðu ekki nema tvær vikur frá því að okkur samstarfsfólki Konráðs Þórissonar varð ljóst að lasleiki sem hrjáði hann væri ekki slæm umgangspest heldur eitt- hvað mun alvarlegra. Og nokkr- um sólarhringum síðar var þessi góði félagi okkar allur, langt um aldur fram. Konráð vann nánast allan sinn starfsaldur á Hafrannsóknastofn- un og þar átti hann fjölda sam- starfsmanna sem sjá nú á eftir góðum vini og félaga. Hann var sannkölluð félagsvera, jákvæður og áhugasamur um hagi allra og lét sig þar að auki varða sam- félagið okkar í heild sinni. Konráð var valinn til trúnaðarstarfa og sat í stjórn Hafrannsóknastofn- unar um árabil fyrir hönd starfs- manna og var þar ötull talsmaður þess sem horfði til framfara fyrir starfsmenn og stofnun. Það var sjávarlíffræðin sem laðaði Konráð til starfa við Haf- rannsóknastofnunina fyrir 38 ár- um, er hann hafði lokið prófi í líf- fræði við Háskóla Íslands. Fyrst vann hann undir handleiðslu Þór- unnar Þórðardóttur við þörunga- rannsóknir, en áhugasvið hans var vítt, sem naut sín vel er hann tók að sér að fara fyrir útibúi Haf- rannsóknastofnunar á Húsavík á árunum 1979-1982. Þar beindust augu hans m.a. að líffræði fiska. Og þegar Konráð afréð að bæta við þekkingu sína í faginu, valdi hann að rannsaka lirfur nytja- fiska. Fór hann til framhalds- náms í fiskifræði við háskólann í Bergen og lauk þaðan cand. sci- ent.-prófi árið 1991. Að framhaldsnámi loknu réðst Konráð sem sérfræðingur á Haf- rannsóknastofnun og var megin- viðfangsefni hans lirfur fiskung- viðis. Eins og fjölda annarra sérfræðinga í heiminum á þessu sviði síðastliðna öld var hin brennandi spurning hans hvað veldur breytilegum árgangastyrk fiskistofna, en styrkur árganga ræður fyrst og síðast afraksturs- getu fiskistofnanna. Ekki leysti Konráð þá ráðgátu frekar en aðr- ir og verður það sennilega seint gert líkt og á við um margar af þeim spurningum er lúta að undr- um náttúrunnar. Hitt er hins veg- ar víst að á hans athugunum verð- ur byggt í framþróun þekkingar á þessu sviði. Konráð hafði fjölþætt áhuga- svið innan fagsins og hafði ríka þörf fyrir og ánægju af að miðla þekkingu sinni og gerði sér far um að glæða áhuga yngstu kyn- slóðarinnar á eðli hafsins og lífríki sjávar, m.a. með sínum skondnu athugasemdum og skemmtileg- heitum í nemaheimsóknum á Hafrannsóknastofnun. Hann tók líka þátt í kennslustarfi sjávarút- vegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, sem rekinn er í tengslum við Hafrannsóknastofn- un. Sýndi hann nemum frá fjar- lægum löndum umhyggju og skilning, sem þeir kunnu vel að meta. Í þessu bjó hann sérstak- lega að reynslu sinni og dvöl í Namibíu, en þar starfaði Konráð á annað ár á vegum Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands. Snöggt fráfall Konráðs Þóris- sonar er áfall öllum sem nálægt honum stóðu, vinum og félögum, en þó fyrst og fremst hans nán- ustu, hans kæru Margréti og fjöl- skyldu. Þeim eru sendar hug- heilar samúðarkveðjur samstarfsfélaga hans. Blessuð sé minning um góðan dreng. Jóhann Sigurjónsson. „Hér er áhugaverð vísinda- grein eftir landa þinn sem þú ætt- ir að skoða vel.“ Þannig mælti leiðbeinandi minn við mig þegar ég var að vinna í lokaverkefni er- lendis fyrir rúmum tuttugu árum. Mig grunaði það ekki þá, en ég átti eftir að kynnast höfundinum, Konráð Þórissyni, betur. Ári síð- ar hóf ég störf á Hafrannsókna- stofnun og þurfti nýgræðingurinn oft leiðsögn frá nýja samstarfs- fólkinu í ýmsum málum. Konni átti eftir að reynast mér sérstak- lega vel. Sérsvið okkar var það sama og við unnum náið saman að ýmsum verkefnum í gegnum árin og vorum með spennandi verk- efni á prjónunum þegar hann féll frá. Hann var afar nákvæmur í störfum sínum sem vísindamaður og þolinmóður með eindæmum, sem kom sér vel þegar hann var að vinna við greiningar á sýnum um borð í rannsóknaskipum úti á sjó eða í rannsóknastofunni á Skúlagötu. Stundum hristi maður hausinn yfir þrákelkninni í hon- um og þaulsetunni yfir „kvikind- unum“ sem reyndist svo oftar en ekki vel lukkuð seigla. Þessi eig- inleiki naut sín jafnframt þegar kom að því að setja hugsanir í orð enda liggja eftir hann fjölmargar greinar og skrif í erlend og inn- lend tímarit. Þá leituðum við sam- starfsmenn hans margir til hans með verkefni sem þörfnuðust yf- irlestrar og gagnrýni og hafði hann alltaf gott til málanna að leggja. Konni var einstakur ljúflingur í viðmóti eins og allir vita sem þekktu hann. Hann lét sér annt um vinnufélaga sína og fjölskyld- ur þeirra og áttum við mörg góð- an vin í honum. Við áttum vísan stuðning hjá Konna ef eitthvað bjátaði á og hann lét mig líka heyra það sem ég þurfti að heyra en vildi síður og fyrir það er ég honum ævinlega þakklátur. Konni var vel á sig kominn, slyng- ur skylmingakappi og fyrir tæpu ári máttum við sumir af „ungu“ mönnunum horfa á eftir honum skeiða fram úr okkur upp hæð- irnar sex í tröppuhlaupinu á Skúlagötu 4, geislandi af hreysti. Hann var fjölskyldumaður af bestu sort. Það var fallegt að fylgjast með honum og lítilli afas- telpu sem fylgdi honum í vinnuna hér um daginn og auðvelt að sjá hvað það var sem skipti hann öllu máli. Það er tómlegt á 2. hæðinni hérna á Hafró og erfitt að sætta sig við að Konni kemur ekki aft- ur. Ég kveð góðan vin og vinnu- félaga og bið allar góðar vættir að styðja Margréti, börnin hans, barnabörn og fjölskylduna alla í þeirra þungu sorg. Björn Gunnarsson. Um 150 nemendur hófu nám í Menntaskólanum í Hamrahlíð haustið 1968, flestir 16 eða 17 ára. Þetta unga fólk hafði öðlast „hvolpavit“ og var meðvitað um stúdentaóeirðir í Evrópu og „hippa“ og „blómabörn“ vestan hafs. „Lög unga fólksins“ dugðu ekki lengur, á kvöldin var hlustað á Radio Caroline, sem sendi frá skipi undan strönd Bretlands. „Sjóræningjastöð“ var hún köll- uð, því hún borgaði ekki höfund- arlaun og var talin ógna öryggi skipa með því að útvarpa á lang- bylgju of nærri neyðarbylgjunni. Mestu skipti að hún var óháð menningarstefnu ríkisútvarp- anna, sem stundum bönnuðu mikilvæg lög að geðþótta sínum. Menntaskólinn við Hamrahlíð var sjálfur ekki ósnortinn af tíð- arandanum, rektor skólans, Guð- mundur Arnlaugsson, var talinn róttækur hugsjónamaður með- fram sinni eðlislægu ljúfmennsku og margir kennarar sem einnig trúðu á breytingar gengu til liðs við hann. Nemendum skólans var sköpuð frjálsleg umgjörð. Bekkjarbróðir okkar Konráð Þórisson er um margt minnis- stæður. Hann þreifst vel í MH, frjálslegri en flestir, síðhærður mjög og fór eigin leiðir. Hann virtist enga þörf hafa fyrir að gera sig ósýnilegan með því að falla í hópinn, eins og algengt er á þessum aldri. Þvert á móti, menn litu til hans sem manns sem fylgdist með hræringum í um- heiminum og væri í fremstu röð. Margir hvísluðu um hassneyslu á þessum tíma, sem enginn gat þó fest neina hönd á. „Ég hef nú aldrei drukkið þetta hass“ sagði einhver spekingslega. Skyldi Konni ekki búa yfir reynslu á þessu sviði, var spurt? Síða hárið var grunsamlegt, en smám sam- an áttuðu menn sig þó á að Konni var einmitt reglusamastur allra, honum datt ekki í hug að reykja eða drekka, það var alltaf svo gaman að engin þörf var á ann- arri vímu en gleðinni. Hann var leikandi léttur í samskiptum, en lét hópinn aldrei leiða sig. Hlýtt viðmót, fölskvalaus gleði og ný og stundum óvænt sjónarhorn fylgdu honum. Hann var jafn- lyndur, góðgjarn innsæismaður og góður félagi. Hann gerði alla að vinum sínum með því að vera sjálfur vinur að fyrra bragði. Ekki fór hjá því að 4-X ein- kenndist af því að vera stráka- bekkur, þetta var stærðfræði- og eðlisfræðibraut, þarna þraukuðu tvær stúlkur innan um 16 drengi sem létu sumir þó nokkuð fyrir sér fara. Konni talaði meira við stúlkurnar en aðrir, hann skynj- aði hvernig öðrum leið. Um- hyggju fyrir öðrum hafði hann þroskað með sér á yngri aldri en algengt var. Önnur þeirra segir nú: „Eins yndislegir og allir bekkjarbræður mínir voru þá var hann Konni samt alltaf bestur. Gott er að eiga góðs að minnast.“ Einn drengjanna úr hópnum seg- ir: „Ég hefði viljað vera eins og Konni, ljúfur, fallegur, flottur, skemmtilegur og tilfinninga- næmur.“ Eins og gengur lágu leiðir víða eftir stúdentsprófið, Konni lagði líffræði og fiskifræði fyrir sig. Það hæfði hans persónulega stíl vel og varð hans hlutskipti í líf- inu. Við bekkjarsystkini Konna þökkum fyrir að hafa átt hann fyrir æskuvin og skólabróður. Hann mun lifa áfram í okkar minningum. Við sendum fjöl- skyldu hans einlægar samúðar- kveðjur. F.h. samstúdenta í 4-X MH-72, Ragnar Önundarson. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓNÍNA MARGRÉT INGIBERGSDÓTTIR frá Sandfelli, Vestmannaeyjum, lést mánudaginn 8. desember á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 19. desember kl. 13.00. . Sigurbjörn Hilmarsson, Sóley Hafsteinsdóttir, Kristján Ó. Hilmarsson, Heiðrún B. Guðbrandsdóttir, Katrín G. Hilmarsdóttir, Baldur Pálsson, Árni G. Hilmarsson Sesselja Jónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN JÓNA ÓLAFSDÓTTIR, Ársölum 5, Kópavogi, sem lést föstudaginn 28. nóvember, verður jarðsungin frá Lindakirkju í Kópavogi fimmtudaginn 18. desember og hefst athöfnin kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á kirkjuklukknasjóð Lindakirkju, sem var henni hugleikinn. Björg Magnúsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Magnús Jaroslav Magnússon, Hugrún L. Guðmundsdóttir, Dagmar Magnúsdóttir, Kristinn R. Árnason, Guðmundur, Guðmundur Örn, Bjarki Rafn, Hildur Jara og Rakel Lind. ✝ Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn, HARALDUR ÓLAFSSON myndlistarnemi, lést á heimili sínu í Stokkhólmi laugardaginn 6. desember. Útför fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 19. desember kl. 13.00. Svandís Torfadóttir, Ólafur Þorkell Helgason, Albert Torfi Ólafsson, Steinunn Lilja Pétursdóttir, Arnar Ingi Ólafsson, Eva Dögg Guðmundsdóttir, Elsa Heike Jóakimsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Torfi Jónsson. Við tímamót er vert að setjast nið- ur og skoða hvaða þýðingu þau hafa fyrir mann. Við þessi tímamót í lífi okkar minnumst við manns sem hefur alla tíð verið í lífi okkar systkinanna. Við minn- umst afa Gunnars sem ljúfs manns sem lét sér annt um af- komendur sína og samferða- fólk. Við eigum fjölmargar minningar úr æsku þegar hann og amma Unnur komu í heim- sókn til Keflavíkur, um jólaboð heima hjá þeim í Ásgarðinum, Hvassaleitinu og núna síðast í Hlöðunni við Gufunesbæinn. Við eigum líka minningar úr hestamennskunni um afa sem var laginn við hross og mikill uppalandi og skildu hestarnir hann þegar hann bað um eitt- hvað og hlýddu honum vel og sáttir. Amma og afi voru mjög samstiga og góðir vinir enda hefur það sjálfsagt verið nauð- synlegt á heimili þar sem voru 9 börn og við höfum oft undrast það hvernig þau komust öll af á einum launum afa. Afi var nýt- inn maður, snyrtimenni fram í fingurgóma og vildi hafa reglu Gunnar H. Melsted ✝ Gunnar H.Melsted fædd- ist 13. febrúar 1919. Hann lést 17. nóvember 2014. Útför Gunnars fór fram 2. desember 2014. á hlutunum. Við áföll reyndist hann alltaf sterkur og æðrulaus og getum við sem eftir lifum tekið fjölmargt í fari hans til fyrir- myndar. Afi kvaddi þessa jarð- vist daginn fyrir afmæli ömmu Unnar sem hann saknaði svo mjög og hafði hann á orði að sér fyndist tíminn frá afmælinu hennar og fram að jólum erf- iður. Þá er skammdegið mest og amma var líka vanaföst og á þessum tíma sinnti hún und- irbúningi jólanna og gerði allt- af sömu verkin á sama tíma. Allt í röð og reglu á þeim bæn- um. Afi átti fjölmarga afkom- endur og hann bar hag þeirra fyrir brjósti, mundi eftir af- mælis- og tyllidögum og fannst gaman að vera boðið í veislur af ýmsum tilefnum. Síðustu ár- in hefur afi Gunnar lifað við heilsubrest og oft verið lagður inn á sjúkrahús af þeim sökum, en jafnan rifið sig upp aftur um leið og líkaminn leyfði og hann hélt í lífsviljann fram á síðustu stundu. Genginn er góður maður sem verður sárt saknað. Bless- uð sé minning hans. Fyrir hönd systkinanna á Kirkjuteig 1, Þorvarður Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.