Morgunblaðið - 16.12.2014, Síða 38

Morgunblaðið - 16.12.2014, Síða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 ✝ GuðmundurHelgi Sigur- jónsson fæddist í Neskaupstað 15. september 1924. Hann lést 1. desem- ber 2014. Foreldrar Guð- mundar voru Helga Þorvaldsdóttir frá Hafnarnesi við Reyðarfjörð og Sig- urjón Ásmundsson frá Karlastöðum í Vaðlavík. Al- systkini Guðmundar eru Helga, Kristján og Ásdís, hálfsystkini aður til ábyrgðarstarfa innan verkalýðshreyfingarinnar. Hann gegndi ýmsum trún- aðarstörfum, bæði fyrir verka- lýðsfélagið og Alþýðu- sambandið. Hann sat í stjórn Verkalýðsfélags Norðfirðinga og gegndi þar formannsstöðu árin 1951 til 1953, þá var hann varaforseti alllengi. Sinnti hann einnig stöðu gjaldkera og sat síðar sem meðstjórnandi. Hann sat í stjórn Alþýðusambands Austurlands, var það vararitari og síðar gjaldkeri. Guðmundur var alla tíð mjög pólitískur. Hann átti sæti í stjórn Sósíalista- félags Norðfjarðar 1961 til 1964, sat svo í stjórn Alþýðu- bandalagsins og helgaði sig því. Útför Guðmundar fór fram frá Norðfjarðarkirkju 6. desem- ber 2014. hans, samfeðra, voru Þórunn Sig- urveig, Ásmundur, Gunnlaugur, Guðný Sigríður, Sigurlaug og Guðrún Ágústa. Móðir þeirra var Helga Davíðsdóttir. Uppeldissonur Helgu og Sigurjóns er Alfreð Ólafsson, sonur Þórunnar. Guðmundur, er stundum var nefndur Stalín, fékk snemma áhuga á verka- lýðsbaráttu og var fljótt kall- Góður félagi og kær vinur, Guð- mundur Sigurjónsson, verkamað- ur í Neskaupstað, er fallinn frá, ní- ræður að aldri. Að þessu sinni átti hann ekki afturkvæmt úr greipum dauðans eins og honum hafði áður tekist og spaugaði stundum með. Guðmundur skipaði sér ungur að árum í raðir sósíalista og hélt sig við það til hinstu stundar að fylgja þeim flokki að málum sem lengst stæði til vinstri. Hann lagði sitt af mörkum í rauða bænum Neskaup- stað í félagsskap sósíalista þar, síð- ar Alþýðubandalagsins og að síð- ustu með okkur í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Þar var honum skipað í eitt af heiðurssætum á listum til Alþingiskosninga allt þar til yfir lauk. En Guðmundur lét ekki þar við sitja. Hann var virkur í starfi, mætti á fundi og lagði sitt af mörk- um svo gott sem til hinstu stundar. Guðmundur Sigurjónsson var einlægur sósíalisti og verkalýðs- sinni. Hann lagði umhverfisvernd- arbaráttunni einnig lið enda naut hann gönguferða og útivistar og lét sig ekki muna um að ganga um fjöll og firnindi ef því var að skipta með sér áratugum yngra fólki. Hann var lengst af léttur í spori og kvik- ur í hreyfingum. Þannig er gott að minnast hans, með glampandi blik í auga og einlægan og heilsteyptan í því sem hann tók sér fyrir hendur og trúði á. Og það kom enginn að tómum kofunum hjá Guðmundi Sigurjónssyni. Hann var skarp- greindur og fróður vel um ættir, sögu og stjórnmál. Þannig vopnað- an, með ríka réttlætiskennd og fé- lagslega hugsjón að leiðarljósi mátti hver sem er hafa sig vel við í rökræðum við Guðmund Sigur- jónsson. Efst í huga mínum á þessum tímamótum er þó maðurinn sjálf- ur. Þessi ljúflingur og yndislegi persónuleiki sem Guðmundur var. Takk fyrir samfylgdina kæri vinur. Þín verður saknað. Steingrímur J. Sigfússon. Af heimi er kvaddur hollvinur góður, sem langri ævi og góðri hef- ur lokið. Mæt er mér minningin um sam- herjann vaska og vökula, þar var aldrei á verði sofið, hvort sem voru þjóðmálin eða bindindismálin sér- staklega. Hvarvetna lagði hann sitt góða lið, ötull og ákveðinn, átti heita sannfæringu og málstað mætan sem aldrei var hvikað frá til hinzta dags. Við áttum þess blessunarlega kost hjá Bindindissamtökunum að heiðra hann fyrir hans margvís- legu heillastörf m.a. fyrir áfengis- varnarnefnd Neskaupstaðar, en þar var hann um áraraðir og lengi formaður. Við veittum honum á heimastað hans heiðursmerki okk- ar fyrir vel unnin störf í þágu bind- indis og allra manna mál að það hefði hann sannarlega verðskuld- að. Ungur vígðist hann þeirri ein- lægu vinstristefnu mannúðar og jafnaðar sem hann fylgdi æ síðan hvað sem á gekk, hann skipaði sér þar í sveit þar sem þeir sem erf- iðari háðu lífsbaráttuna áttu sitt helzta skjól, þar sem framtíðar- hugsjónin einkenndist af jafnrétti allra til lífsins gæða, síðast á vett- vangi Vinstri grænna þar sem við vorum samherjar eins og áður. Það var gott að eiga samherja eins og Guðmund sem átti bæði trúnað við málstaðinn og hreinskilni til að gagnrýna það sem honum þótti miður fara, en hin eðlislæga sann- girni hans var alltaf ofar öðru. Mér eru í minni samskipti öll svo sem á fundum okkar hreyfingar, ekki sízt hinn skemmtilegi skellihlátur hans á góðum gleðistundum, hann ómar mér enn fyrir eyrum. Ekki skyldi gleymt störfum hans fyrir verkalýðshreyfinguna í Neskaup- stað og á Austurlandi, þar sem hann naut óskoraðs trausts allra, allra helzt þó vinnufélaganna. En einlægni hans og smáglettni lifir þó lengst í muna mér. Að leiðarlokum færi ég þakkir Bindindissamtakanna á Íslandi fyrir trygga og trúa fylgd við heil- brigð lífsgildi alla tíð. Samherjan- um trausta og einbeitta flyt ég mínar innilegustu þakkir fyrir samfylgd áratuganna. Megi björt minning Guðmund- ar Helga verma hugi okkar sem áttum samfylgd hans. Þar fór vammlaus drengskaparmaður. Helgi Seljan. Öðlingurinn Guðmundur Helgi Sigurjónsson lést á fullveldisdag- inn. Hann var frá unglingsaldri einarður baráttumaður fyrir bætt- um kjörum verkafólks og sósíal- isma. Hann tók virkan þátt í starfi Verkalýðsfélags Norðfirðinga, Sameiningarflokki alþýðu – sósíal- istaflokknum, Alþýðubandalaginu og Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Guðmundur var í ára- tugi í stjórn Verkalýðsfélags Norðfirðinga og var fulltrúi félags- ins á mörgum þingum Alþýðusam- bands Íslands og Verkamanna- sambands Íslands. Störf Guðmundar í félagsmálum miðuðu að því að leggja lið baráttunni fyrir réttlátri skiptingu arðs vinnunnar til þeirra sem arðinn skapa. Berj- ast gegn auðsöfnun og arðráni þeirra sem eignarhald hafa á at- vinnutækjunum. Þau skyldu rekin í þágu samfélagsins eins og lengi var gert í Neskaupstað. Þá var Guðmundur bindindismaður og var í stúku á meðan slíkt félag starfaði í Neskaupstað og var ár- um saman í áfengisvarnanefnd kaupstaðarins. Guðmundur var maður alþjóðahyggju og bræðra- lags þjóða og nam alþjóðamálið esperanto og fylgdi hugsjónum þess. Kom kunnátta hans í málinu honum að góðum notum á ferðum hans erlendis. Þá var hann áhuga- samur félagi í MÍR. Guðmundur vann meginhluta starfsævi sinnar í frystihúsi SÚN, síðar SVN. En um tíma var hann framkvæmdastjóri félagsheimilisins Egilsbúðar og rak bókabúð. Guðmundur var sósí- alisti af gamla skólanum. Hann var ekki mótfallinn því að vera kallað- ur kommúnisti og stalínisti sem eru talsverð skammaryrði hjá mörgum í dag. Guðmundur bar viðurnefnið Guðmundur Stalín og líkaði það vel. Margir yngri Norð- firðingar þekktu ekki Guðmund Sigurjónsson en könnuðust vel við Guðmund Stalín. Guðmundur var einstakt góðmenni og lagði engum illt til. Ekki pólitískum andstæð- ingum fremur en öðrum. Hann var léttur í lund og hláturmildur en jafnframt alvörugefinn þegar þannig stóð á. Guðmundur var trú- aður maður, kristinn, eins og margir „kommar“ af hans kynslóð. Í trúhneigð hans er ef til vill að finna skýringu á því hvers vegna hann trúði aldrei að illvirki Stalíns og kommúnistanna svokölluðu í Sovétríkjunum hefðu átt sér stað. Hann trúði á verkamannaríki framtíðarinnar í löndum sósíal- ismans og að þar væru hugsjónir hans um réttlátt þjóðskipulag að þróast. Góðmennið, sem engum vildi illt gera, og hafði ríka samúð með þeim sem stóðu höllum fæti, trúði ekki og skildi ekki að menn, sem kenndu sig við réttlæti, frið og lýðræði, fremdu slík voðaverk sem síðar kom í ljós að unnin hefðu verið í nafni sósíalisma. Ég var samstarfsmaður Guðmundar í stjórn Verkalýðsfélags Norðfirð- inga 1967. Ég kynntist honum því vel og áhuga hans á betra þjóð- félagi. Með Guðmundi er fallinn frá einn af þeim fáu sem eftir lifa af þeim sem skipuðu sér í þá liðs- sveit sem myndaði meirihluta „kommanna“ í Neskaupstað og héldu honum í um 50 ár eða þar til Neskaupstaður sameinaðist öðr- um sveitarfélögum. Guðmundi fylgja hlýjar minningar á þann stað sem hann trúði að til væri. Ég samhryggist ættingjum hans og öllum sem sakna hans. Árni Þormóðsson. Þeim fækkar óðum sem settu svip sinn á austfirsk samfélög á öldinni sem leið. Einn af þeim var Guðmundur Sigurjónsson, lengst af búsettur á Strandgötu 40 í Nes- kaupstað. Hann hefur nú kvatt ní- ræður að aldri. Þegar við Kristín fluttumst til Norðfjarðar haustið 1963 var Helga móðir Guðmundar enn á lífi en faðir hans Sigurjón Ásmundsson þá látinn. Af fimm systkinum var Guðmundur einn búsettur í Neskaupstað, einhleyp- ur og hélt heimili með móður sinni. Hann var þá um fertugt, léttur í spori og áberandi stærð í bæjarlífinu þótt ekki væri hann hár til hnésins. Guðmundur var mikill félags- málamaður, róttækur sósíalisti og öflugur liðsmaður þess meirihluta sem treyst var fyrir völdum í Nes- kaupstað í meira en hálfa öld. Lengst af vann hann í fiski hjá SÚN og Síldarvinnslunni og deildi þannig kjörum með öðru verka- fólki, þekkti aðstæður þess og að- alvinnustað bæjarins út í hörgul. Það var Verkalýðsfélagi Norðfirð- inga mikill styrkur að hafa hann innan sinna raða og engin tilviljun að hann var þar valinn til forustu um áratuga skeið. Í nokkur ár var hann formaður félagsins en lengst af varaformaður við hlið Sigfinns Karlssonar. Báðir voru þeir öflug- ir liðsmenn í Sósíalistafélagi Nes- kaupstaðar og síðan í Alþýðu- bandalaginu eftir að það tók við sem forystuafl á sjöunda áratugn- um. Þátttaka þeirra í pólitísku starfi sem og margra annarra úr röðum verkafólks tryggði þeim jarðsamband sem völdust til trún- aðarstarfa í bæjarmálum og at- vinnulífi. Félagsmál áttu hug og hjarta Guðmundar sem bætti margri fundarsetu við langan vinnudag og um helgar. Þar var verkalýðs- félagið í fyrirrúmi og þátttaka þess í Alþýðusambandi Austur- lands og á vettvangi ASÍ. Hann lét sig heldur ekki vanta á fundi í Alþýðubandalaginu og sem nátt- úruunnandi tók hann þátt í flest- um sumarferðum á þess vegum um fjórðunginn. Guðmundur gerðist félagi í Náttúruverndar- samtökum Austurlands við stofn- un þeirra 1970 og þegar pólitísk uppstokkun varð á vinstri væng stjórnmálanna um síðustu alda- mót var næsta sjálfgefið hvorn kostinn hann valdi. Ásamt mörgum átti Guðmund- ur Sigurjónsson sér draum um betra og réttlátara þjóðfélag, ekki aðeins hérlendis heldur á alþjóða- vísu. Eins og margir sósíalistar á liðinni öld taldi hann sig sjá drauminn vera að rætast í Sovét- ríkjunum og neitaði, að minnsta kosti í orði, að horfast í augu við staðreyndir eftir að leiktjöldin féllu. Það var hluti af skaplyndi hans. Hann var heldur ekki einn um að halda lengur en stætt var í vonina um að Eyjólfur hresstist. Við létum hins vegar ólíkt mat á heimsviðburðum ekki valda vin- slitum. Sú veröld sem Guðmundur Sig- urjónsson nú hefur kvatt er gjör- breytt frá því sem var fyrir hálfri öld. Á yfirborðinu hefur margt breyst hér og annars staðar á Vesturlöndum til hins betra um kjör hins vinnandi fjölda. Ekki er hér þó allt sem sýnist og þeim fjölgar sem gera sér ljóst að kapít- alisminn er á hraðferð inn í blind- götu. Til að afstýra óförum er því meiri þörf nú en nokkru sinni á róttækum hugmyndum og félags- legu afli til að afstýra skipbroti. Hjörleifur Guttormsson. Guðmundur Helgi Sigurjónsson Enn fækkar í röð- um Dalamanna sem léð hafa Karlakór Reykjavíkur og síð- ar eldri félögum kórsins rödd sína. Í þeim söngglaða hópi var Höskuldur og á árinu 1951 var hann kominn í raðir kórsins og fór á næstu árum m.a. í nafntog- aðar söngferðir Karlakórs Reykjavíkur til Miðjarðarhafs- ins, Norðurlanda og Bandaríkj- anna. Þegar kór eldri félaga var stofnaður haustið 1965 gekk Hös- kuldur strax í raðir hans og þar var hann virkur söngmaður í öðr- um bassa til ársins 2010 – 60 ár í allt. Reyndar var hann endur- skoðandi reikninga til ársins 2012 og hafði verið síðan 1972. Geri aðrir betur. Það er ljúft að minnast þessa heiðursmanns, ekki aðeins sem söngfélaga, heldur líka fyrir allar vísurnar sem flugu um sali eða milli sæta í mörgum rútuferða- lögum. Eins og einnig er títt um Dala- menn átti Höskuldur létt með að Höskuldur Jónsson ✝ HöskuldurJónsson fædd- ist 6. apríl 1929. Hann lést 4. desem- ber 2014. Hösk- uldur var jarðsung- inn 15. desember 2014. glíma við ljóðaform- ið en fór sparlega með að flíka því. Þegar söngstjóri Eldri félaga til margra ára, Kjart- an Sigurjónsson, varð sextugur ljóðaði Höskuldur á afmælisbarnið í fagnaðinum. Kjart- an hafði gjarnan að orðtaki þegar betur mátti gera á æfingum: „Þetta lof- ar góðu.“ Fyrsta og síðasta erind- ið í afmælisdrápunni er þannig: Hann stendur fyrir framan okkur stór og þrekvaxinn og stjórnar okkar liði söngvamóðu. Þó eitthvað fari úrskeiðis er ekki há- vaðinn og allt að lokum lofar þetta góðu. Kæri vinur, hefjum nú glaum og gam- anmál, við geymum marga perlu í okkar skjóðu. Við lyftum glösum okkar og allir segja skál, afmælið þitt, Kjartan, lofar góðu. Á þessum nótum kveðjum við gamlir félagar í Karlakór Reykjavíkur góðan félaga til margra ára og þökkum fyrir okk- ur. Kæru aðstandendur, innilegar samúðarkveðjur, Reynir Ingibjartsson, eldri félagi í Karlakór Reykjavíkur. ✝ Nína Ísbergfæddist í Möðrufelli í Eyja- firði 22. nóvember 1929. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ 8. desember 2014. Nína var dóttir hjónanna Árnínu Hólmfríðar Jóns- dóttur, f. 1898, d. 1941, og Guðbrands Ísberg, f. 1893, d. 1984, sem þá var bóndi þar og jafnframt lögmaður á Akureyri. Ári síðar fluttist fjölskyldan að Litla-Hvammi sunnan Akureyr- ar, þar sem faðir hennar varð fulltrúi bæjarfógetans. Haustið 1932 fluttist fjölskyldan til Blönduóss, þegar Guðbrandur var skipaður sýslumaður í Húna- vatnssýslum. Systkini Nínu: 1) Gerður Ólöf, f. 1921, d. 2007, gift Jóhannesi haustið hélt hún til Svíþjóðar og stundaði málanám í eitt ár. Heimkomin hóf hún störf í Fram- kvæmdabankanum og starfaði þar uns hún fór til Akureyrar 1951 og hélt heimili fyrir Guð- rúnu systur sína. Þegar suður kom aftur starf- aði hún um skamma hríð á skrif- stofu Alþingis, en hóf síðan störf hjá Pósti og síma og starfaði þar í nokkur ár, en gerðist síðan rit- ari læknadeildar Háskóla Ís- lands. Loks varð hún fram- kvæmdastjóri Reykja- víkurdeildar Rauða kross Íslands þar til hún hætti vegna aldurs. Nína tók þátt í íþróttum og var sigursæl í spretthlaupum á yngri árum. Einnig var hún skáti og gekk síðar í félag eldri skáta, St. Georgsgildið. Nína var mikil útivistarkona og hafði mik- inn áhuga á ferðalögum, innan- lands sem utan. Hún ferðaðist mikið með Ferðafélagi Íslands og var mjög fróð um landið. Útför Nínu fer fram í Foss- vogskirkju í dag, 16. desember 2014, og hefst athöfnin kl. 15. Halldórssyni, 2) Guðrún Lilja, f. 1922, d. 2005, gift Þórði Gunnarssyni, 3) Jón Magnús, f. 1924, d. 2009, giftur Þórhildi Guðjóns- dóttur, 4) Ari Guð- brandur, f. 1925, d. 1999, giftur Hall- dóru Kolka, 5) Ásta, f. 1927, 6) Ævar Hrafn, f. 1931, d. 1999, giftur Vil- borgu Jóhönnu Bremnes, 7) Sig- ríður Kristín Svala, fædd og dáin 1936, 8) Arngrímur Óttar, f. 1937, giftur Bergljótu Thorodd- sen. Nína ólst upp á Blönduósi og tók ásamt systrum sínum við rekstri heimilisins eftir andlát móður þeirra. Hún naut kennslu föður síns og fór síðan í Mennta- skólann á Akureyri og braut- skráðist sem stúdent 1952. Um Heima hjá mér eru fjólubláar prjónabuxur á ungbarn. Þær eru afskaplega fallegar og vel unnar, úr fíngerðu garni á fíngerða prjóna, með útprjónuðu mynstri í bekknum. Ég prjóna sjálf, en þessar buxur prjónaði ég ekki. Ég átti þær þegar ég var sjálf lít- ið barn og Nína frænka mín prjónaði þær á mig. Nína gladdi marga með þeim fjölmörgu hlutum sem hún vann. Öll börn sem komu í fjölskylduna fengu prjónaða gjöf. Hún heklaði dúka og saumaði út jóladagatöl og dúka undir jólatré, svo fátt eitt sé talið, og þau eru ófá heim- ilin í fjölskyldunni sem skarta hlutum frá henni nú um stundir. Handavinnan lýsti persónu- leika þessarar frænku minnar af- skaplega vel. Hún var um- hyggjusöm og henni þótti vænt um fólkið sitt. Hún var vandvirk og gerði allt vel og nákvæmlega sem hún á annað borð snerti á. Hún var framkvæmdasöm og röggsöm, virk og dugleg. Þegar ég var barn horfði ég oft á hendurnar á henni þegar hún prjónaði og heillaðist, bæði af því að þær voru hraðar og af því að verkin hennar voru svo falleg. Við munum ætíð minnast Nínu og verkin sem hún skilur eftir sig á heimilum okkar og í hjörtum okkar tryggja það betur en nokkuð annað gæti gert. Hildur Ýr Ísberg. Nína frænka lést á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ mánudaginn 8. desember síðastliðinn. Þar hafði hún dvalið í tæpan áratug vegna öldunarsjúkdóms. Nína föðursystir hefur verið hluti af lífi okkar Hrauntungu- systkina frá því við munum eftir okkur. Hún var líka úr stórum systkinahópi. Það var alltaf gam- an þegar Nína kom í heimsókn. Hún kom færandi hendi, prjón- aði á okkur og passaði þegar for- eldrarnir skruppu af bæ. Okkur fannst hún bæði falleg og góð. Alltaf fengum við póstkost frá framandi slóðum þegar Nína var í útlöndum. Þegar við uxum úr grasi og stofnuðum eigin fjöl- skyldur fylgdi hún okkur í gegn- um lífið af þeirri hlýju og um- hyggjusemi sem einkenndi hana alla tíð. Hún vann hjá Pósti og síma, starfaði sem ritari á læknadeild HÍ og síðast sem framkvæmda- stjóri Reykjavíkurdeildar RKÍ. Það var auðfundið að hún naut virðingar hvar sem hún var. Nína var útivistarkona og ferð- aðist mikið innanlands sem utan. Hún var skáti allt sitt líf og einu sinni skáti ávallt skáti voru orð að sönnu hvað hana varðaði. Hún tók ljósmyndir hvar sem hún kom og safnaði steinum og frí- merkjum. Hannyrðir sem eftir hana liggja eru margar og bera smekk hennar og færni fagurt vitni. Nína frænka var fram- kvæmdakona. Hún aflaði sér menntunar, bjó erlendis, ferðað- ist, átti fjölbreyttan starfsferil og sinnti áhugamálum. Hún var líka hógvær kona, hlý og hjálpfús, sem lét verkin tala. Við kveðjum frænku okkar af hlýhug og sökn- uði. Svanborg, Jóhann, Árni, Ásta, Ari, Guðrún og Ævar. Nína Ísberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.