Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía Walthers Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is Vilt þú vita hvers virði eignin þín er í dag? Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga! Skeifunni 17 „...virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta. Allt sem þau sögðu stóðst. Auðvelt að mæla með Remax Alpha!“ Áslaug og Benni HRINGDU NÚNA 820 8080 Hádegistilboð kr. 5.900 föstudaga & laugar daga 1. janúar - opnum kl. 19. Uppselt Í hádeginu á Þorláksmessu Veitingahúsið Perlan - Sími: 562 0200 - Fax: 562 0207 - Netfang - perlan@perlan.is - www.perlan.is Perlunnar er frá 20. nóvember til 30. desem ber. Föstudag inn 19. de s. Laugarda ginn 20. d es. Þriðjudag inn 23. de s Hádegistilboð 5.900.- Gjafabré f Perlunna r Góð gjöf við öll tækif æri! AF LEIKLIST Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Fela vopn í sér ógn eða öryggi?Þetta er lykilspurningin ísýningunni MP5 sem leik- hópurinn Sómi þjóðar frumsýndi fyrr í þessum mánuði í Tjarnarbíói. Höf- undar leiktextans eru Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson, en þeir fara með hlutverk kjarneðlisfræðinganna Vilhjálms og Ísaks ásamt því að leik- stýra verkinu í sameiningu, auk þess sem gera má ráð fyrir að þeir hafi sjálfir útfært leikmyndina, búninga og hljóðmynd. Leikurinn gerist árið 2424 um borð í alþjóðlegri geimstöð sem nefnist Pandóra. Þar eru samankomnir vel menntaðir, víðsýnir, friðsamir og um- burðarlyndir einstaklingar frá lönd- um á borð við Ísland, Bandaríkin og Rússland. Í upphafi verksins eru Ísak og Vilhjálmur kynntir til sögunnar með skemmtilegum hætti. Þeir birt- ast í hvítum aðskornum samfest- ingum íklæddir svörtum nærbuxum utanyfir sem skapar sterk hugrenn- ingatengsl við hermennina í Star Wars-myndunum, en finna má fleiri skondnar kvikmyndavísanir í sýning- unni. Áhorfendur fylgjast með Vil- hjálmi í geimgöngu í þöglum leik meðan Ísak vinnur við tölvuskjáinn. Leikmyndin er afar einföld en þjónar hluverki sínu vel. Vistarverur Ísaks og Vilhjálms eru afmarkaðar með ljósaseríu og þar eru tveir hvítir kollar, loftrás og loks kassi á hjólum sem þjónar bæði hlutverki vinnu- borðs og síðar neyðarkassa. Hljóð- myndin leikur mikilvægt hlutverk, en sem dæmi má nefna að engar sjáan- legar dyr eru inn í aðalleikrýmið, en með látbragði og hljóðmynd verða dyrnar nánast áþreifanlegar. Babb í bátinn Ísak og Vilhjálmi er greinilega vel til vina. Þeir eru báðir fjölskyldu- menn og hlakka því eðlilega til að komast aftur til jarðar, en af samspili þeirra er ljóst að þeir eiga eftir að sakna félagsskapar hvor annars. Þeir bregða óhikað á leik líkt og þeir væru smástrákar og finnst greinilega gam- an að fara í þykjustubyssó. Eftir góða kynningu þar sem allt hefur leikið í lyndi kemur skyndilega babb í bát- inn. Það kemur upp eldur um borð og við það fara allar dyr sjálfkrafa í bak- lás. Undir slíkum kringumstæðum á að grípa til neyðarkassans sem inni- heldur lífsnauðsynjar, en kassinn geymir óvænt líka MP5-hríðskota- byssu sem ekki er getið um á tékklist- anum. Við tekur æsispennandi at- burðarás þar sem Ísak og Vilhjálmur rökræða hvað skuli gera við byssuna. Meðal þess sem þeir félagar velta fyr- Ógn eða öryggi? Kraftmikið „Leikhópurinn Sómi þjóðar á hrós skilið fyrir að setja á svið kraftmikla klukkustundar sýningu þar sem málefni líðandi stundar eru krufin með áhrifaríkum hætti í hráleika sínum,“ segir m.a. í rýni. ir sér er hvort eldurinn um borð kviknaði fyrir slysni eða hvort hugs- anlega hafi verið um hryðjuverk að ræða. Gæti byssan ekki komið í góðar þarfir ef verjast þurfi óvinum? En hvernig er hægt að skjóta af hríð- skotabyssu án þess að skjóta um leið gat á geimskipið með þeim afleið- ingum að allir farist? Tilfinningaleg rússíbanareið Rökræður Ísaks og Vilhjálms fara í nokkra hringi og líkjast einna helst rússíbanareið með sínum óvæntu hlykkjum og tilfiningasveiflum. Vil- hjálmur virðist allan tímann mun hrifnari af byssunni en Ísak, sem vill að þeir skutli byssunni út um loftrás- ina og losi sig þannig við gripinn. Samspil Hilmis og Tryggva var ein- staklega gott. Vilhjálmur í meðförum Hilmis reyndi að uppfylla karl- mennskuímynd hasarmyndanna með stjórnsemi sinni meðan Tryggvi gerði efasemdum og ótta Ísaks góð skil. Þeim tókst að draga upp forvitnilega mynd af tveimur karlmönnum sem sveiflast milli þess að vera fluggáf- aðar hetjur í geimnum yfir í að vera hræddir litlir strákar. Í viðtali við Morgunblaðið á frum- sýningardag sagði Hilmir að verkið væri hugsað sem innlegg inn í um- ræðuna um byssueign íslensku lög- reglunnar í ljósi þess að Landhelg- isgæsla Íslands taldi sig hafa fengið 250 MP5-hríðskotabyssur að gjöf frá norska hernum og hugðist leyfa lög- reglunni að nýta þær einnig, en ákvað síðar að skila byssunum þegar í ljós kom að ekki reyndist um gjöf að ræða. Eftir stendur að ekki er búið að ræða í þaula hvort rétt sé að vopn- væða lögregluna almennt hérlendis sem fæli í sér grundvallarbreytingu. Í því samhengi veltir verkið upp áhuga- verðum spurningum um hlutverk vopna og eðli vopnaburðar. Leikhópurinn Sómi þjóðar á hrós skilið fyrir að setja á svið kraftmikla klukkustundar sýningu þar sem mál- efni líðandi stundar eru krufin með áhrifaríkum hætti í hráleika sínum. Sýningin er meinfyndin og grunn- hugmynd verksins vel útfærð í alla staði. Vonandi verða fleiri sýningar á MP5, því önnur sýning, sem undir- rituð sá í Tjarnarbíói um liðna helgi, var koluppseld. » Þeim tókst að dragaupp forvitnilega mynd af tveimur karl- mönnum sem sveiflast milli þess að vera flug- gáfaðar hetjur í geimn- um yfir í að vera hrædd- ir litlir strákar. Út er komið fjórða hefti tíma- ritsins Þjóðmála í ár, vetur 2014. Meðal efnis er grein Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar „Við- horf Alistairs Darlings til Ís- lendinga“ þar sem höfundur leitar svara hjá fyrrverandi fjár- málaráðherra Breta um hvers vegna bresk yfirvöld beittu hryðjuverka- lögum til að frysta eigur íslenskra banka. Fyrrverandi ritstjóri AP- fréttaveitunnar fjallar um einhliða fréttaflutning alþjóðlegra frétta- stofa um Ísrael, Ívar Jónsson fjallar um hugmyndafræði Sjálfstæðis- flokksins í sögulegu ljósi og Karl Sigurbjörnsson biskup er höfundur greinarinnar „Jólin hans Hall- gríms“. Þá fjallar Björn Bjarnason um afsögn Hönnu Birnu og skrifar umsögn um bók Jóns Steinars Gunnlaugssonar, kafli er birtur úr bók Jakobs F. Ásgeirssonar um Óskar í Sunnubúðinni og Jóhann J. Ólafsson skrifar um íslensk manna- nöfn. Fjölbreytt Þjóðmál

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.