Tímarit Máls og menningar - 15.12.1990, Page 15
Úr Mímisbrunni
Hér era í handhægri ogfallegri bók þrjár afhelstu
gersemum íslenskrar menningar með nútímastaf-
setningu — Hávamál með sígildrí speki sinni og
heiLræðum Völuspá, sem geymir hugmyndir heið-
inna manna um upphaf heimsins og máttuga sýn
völvunnar um Ragnarök — og loks Prologus og
Gylfaginningu Snorra-Eddu þar sem bæði er að
finna skáldskaparfræði Snorra Sturlusonar og frá-
sögn af ýmsum þeim atburðum sem segir frá í
Völuspá.
Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur annaðist út-
gáfuna og samdi skýríngar. Bókin er 188 bls.
Verð: 1985,- Félagsverð: 1682,-
Tanken
strövar vida
25 islándska smásagoi
Smásagnasafii þetta hefur að geyma 25 íslenskar
smásögur á dönsku, norsku og sænsku. Sögurnar
eru frá árabilinu 1916-1988 og hefur um það bil
helmingur þeirra ekki birst áður á Norðurlanda-
málunum. Árni Siguijónsson valdi sögurnar og rítar
eftirmála en Peter Hallberg hefur skrífað inngang.
Bókin, sem er 200 bls., er gefin út í samvinnu
Máls og menningar og Bogklubben Norden.
Verð: 1855,-
13