Tímarit Máls og menningar - 15.12.1990, Blaðsíða 20
ÍSLENSKAR BÓKMENNTIR
Minnisstæðar myndir
íslandssaga 20. aldar í ljósmyndum
Haft hefur verið að orðtaki að ein
mynd segi meira en þúsund orð og
í þessari bók er leitast við að segja
íslandssögu fyrstu átta áratuga
20. aldarinnar í Ijósmyndum. Hún
er eins konar myndaalbúm ís-
lensku þjóðarinnar á þessari öld.
Myndirnar eru 239 talsins og
komnar víðs vegar að af landinu,
þótt stærstur hluti þeirra sé nú
varðveittur á Þjóðminjasafni ís-
lands og Ljósmyndasafni Reykja-
víkur.
Grunnhugmyndin að vali þeirra
er sú að sýna myndir af merkum
viðburðum, en þó ekki síður mynd-
ir úr daglegu lífi fólks, af menn-
ingu, verkháttum og atvinnulífi, að
draga upp mynd af aldarhættinum
almennt. Jafnframt fylgir annáll
áranna 1901-1980, þar sem tí-
undað er það sem markverðast og
fréttnæmast þótti á hveiju ári.
Inga Lára Baldvinsdóttir valdi
myndirnar og skrifaði mynda-
texta, en Sigurður Hjartarson
skráði annál.
Bókin er 140 bls.
Verð: 3480,- Félagsverð: 2958,-
Inga Lára Baldvinsdóttir [f. 1956) lagði stund á fornleifafræði og sagnfræði
á írlandi og hefur sérhæfL sig í gömlum Ijósmyndum. Inga Lára er búsett
á Eyrarbakka.
Sigurður Hjarlarson [f. 1941) er sagnfræðingur frá Háskóla íslands og
kennir sögu og spænsku í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Siguður býr í
Grindavík.
18