Morgunblaðið - 27.12.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.12.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2014 Veður- og gróðurfar í Reykjavíkhefur komið borgaryfirvöldum mjög á óvart á síðastliðnum árum og sér ekki fyrir endann á þeirri undr- un yfirvalda.    Sem kunnugt er kemur gras-spretta innan borgarmarkanna á óvart á hverju sumri eftir að Sam- fylking, Besti flokkur og aðrir á vinstri kantinum tóku við valda- taumunum.    Snjókoma er annað náttúrufyr-irbrigði sem borgaryfirvöld reikna ekki með og hafa skaflar, skorningar og klakabunkar ein- kennt veturna í Reykjavík eftir að ákveðið var að ekki tæki því að eiga mikið við snjóinn því að það snjóaði alltaf aftur og aftur.    Og nú hefur komið í ljós að borg-aryfirvöld gerðu ekki ráð fyrir að þeir sem sinna sorphirðu kynnu að þurfa að glíma við snjó að vetrar- lagi í Reykjavík.    Afleiðingin var fullar tunnur víðaum borg fyrir jól og eftir því yfirfullar að loknum aðfangadegi.    Núverandi borgaryfirvöld hafatekið þá afstöðu að verkefni þeirra sé ekki að sinna grundvallar- þjónustu við borgarbúa, til dæmis með því að halda borginni hreinni og snyrtilegri.    Þess í stað eyða þau tímanum íalls kyns óþarfa og jafnvel óþurftarverk, eins og að reyna að koma í veg fyrir að reykvísk börn kynnist kirkjustarfi. Þetta er furðu- leg forgangsröðun. Furðuleg forgangsröðun STAKSTEINAR Veður víða um heim 26.12., kl. 18.00 Reykjavík -1 skýjað Bolungarvík -3 léttskýjað Akureyri -5 heiðskírt Nuuk -1 alskýjað Þórshöfn 3 skúrir Ósló -13 snjókoma Kaupmannahöfn -1 skýjað Stokkhólmur -2 heiðskírt Helsinki -3 heiðskírt Lúxemborg 2 skýjað Brussel 3 skýjað Dublin 6 alskýjað Glasgow 2 skúrir London 6 skúrir París 3 alskýjað Amsterdam 3 léttskýjað Hamborg -1 heiðskírt Berlín -2 léttskýjað Vín 2 léttskýjað Moskva -11 snjókoma Algarve 15 heiðskírt Madríd 12 heiðskírt Barcelona 11 léttskýjað Mallorca 12 skýjað Róm 11 heiðskírt Aþena 12 skýjað Winnipeg -12 snjókoma Montreal 3 alskýjað New York 7 heiðskírt Chicago 6 skýjað Orlando 20 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:23 15:36 ÍSAFJÖRÐUR 12:09 14:59 SIGLUFJÖRÐUR 11:54 14:40 DJÚPIVOGUR 11:02 14:56 Þú getur stólað á Sprota! Sproti er alhliða stólaröð hönnuð af Erlu Sólveigu Óskarsdóttur. Stólarnir eru staflanlegir og fást í mörgum gerðum og litum. STOFNAÐ 1956 Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is Engar tjónstilkynningar hafa borist til Orkubús Vestfjarða um tjón raf- orkukaupenda vegna straumleysis sem varð í dreifbýli í Vesturbyggð. Bæjarstjórn Vesturbyggðar segir ljóst að fjölmörg fyrirtæki og bú hafi orðið fyrir tjóni vegna langvarandi rafmagnsleysis og kallar eftir upplýs- ingum um hvernig það verði bætt. Kristján Haraldsson orkubússtjóri segir að þegar orkukaupendur verði fyrir tjóni af óviðráðanlegum orsök- um séu orkufyrirtæki ekki skaða- bótaskyld. Hann flokkar rafmagns- leysið á Barðaströnd og fleiri sveitum á Vestfjörðum undir óviðráðanlegar orsakir. Þá hafi gengið yfir eitt versta veður sem Vestfirðingar þekki til í langan tíma. Fyrir miðjan mánuðinn gekk ís- ingaveður yfir Vestfirði og hvassviðri og í kjölfarið kom annar hvellur. Slig- uðust rafmagnslínur og staurar brotnuðu. Rafmagnslaust varð í rúma tvo sólarhringa, þar sem verst var. Í ályktun bæjarstjórnar Vestur- byggðar er óskað eftir upplýsingum um ástæður seinagangs í viðgerðum og kallað eftir viðbragðsáætlun. Kristján telur að rétt hafi verið brugðist við, meðal annars hafi björg- unarsveitir verið fengnar til aðstoðar. Varðandi úrbætur getur Kristján þess að verið sé að leggja Barða- strandarlínu í jarðstreng og því muni ljúka næsta haust. helgi@mbl.is Telur orkufyrirtæki ekki bótaskyld  Vesturbyggð gagnrýnir seinagang í viðbrögðum við rafmagnsleysi Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Orkubú Rafmagn datt út. Tvívegis hefur verið keyrt yfir leiði í Gufuneskirkjugarði á síðustu dög- um, fyrst daginn fyrir Þorláksmessu og svo aftur á jóladag. Helena Sif Þorgeirsdóttir, garðyrkjuverkstjóri í Gufuneskirkjugarði, sagði í samtali við mbl.is að daginn fyrir Þorláks- messu hefði jepplingur fest sig í garðinum. Sá hefði m.a. keyrt yfir grafarkross. Skemmdarverkin í fyrrakvöld sagði hún hinsvegar eftir stóran jeppa. „Það eru allir grafar- stígar lokaðir með steinhnullungum, en hann fer yfir þá,“ sagði Helena. „Það er búið að keyra þarna niður eina grafarlengju með u.þ.b. 15 leið- um,“ bætti hún við. Vitni voru að óförum jepplingsins en enn hafa engin vitni stigið fram í máli jeppans. Bæði málin verða kærð til lögreglu. Ökumenn bílanna eru hvattir til að gefa sig fram. Ljósmynd/Íris Guðmundsdóttir Bílför Djúp og breið bílför eru eftir jeppa í kirkjugarðinum. Helgispjöll kærð til lög- reglunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.