Morgunblaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2014
Ó
lö
f
B
jö
rg
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ó
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía Walthers
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
Vilt þú vita
hvers virði
eignin þín
er í dag?
Pantaðu frítt
söluverðmat án
skuldbindinga!
„...veittu mér framúrskarandi
þjónustu í alla staði, mæli
hiklaust með þeim!“
Katrín Skeifunni 17
HRINGDU NÚNA
820 8080
Nýjustu tölur benda til þess að í
ár hafi vöxtur í jólasölu vestanhafs
verið sá mesti í þrjú ár. Er áætlað
að neytendur hafi verslað fyrir
andvirði 617 milljarða dala sem er
4,1% aukning frá árinu á undan.
Aukningin nam 3,1% í síðustu jóla-
vertíð og 2,9% jólin 2012.
Wall Street Journal segir jóla-
söluna í ár m.a. frábrugðna fyrri
árum að því leyti að meira seldist
síðasta laugardag fyrir jól, „Super
Saturday“, heldur en á föstudag-
inn eftir þakkargjörðarhátíð, stóra
útsöludaginn „Black Friday“. Und-
anfarinn áratug hefur svarti föstu-
dagur verið sterkasti söludagurinn
í aðdraganda jóla.
Að þessu sinni seldust vörur fyr-
ir 20 milljarða dala á svarta föstu-
dag en 23 milljarða á ofur-laug-
ardag.
Er þetta talið skýrast af því að
verslanir eru farnar að dreifa til-
boðum í kringum þakkargjörðar-
dag á lengra tímabil og eins að of-
ur-laugardagur var hæfilega
nálægt jólum.
Verslanir sáu söluna aukast
jafnt og þétt út mánuðinn og
markaðsgreinendur leiða líkum að
því að blómleg salan skrifist á
batnandi horfur í bandarísku efna-
hagslífi. Jólasalan dróst skarplega
saman 2008, jókst mjög lítið 2009
en stökk upp um 5,3% og 4,8% ár-
in tvö þar á eftir, að talið er vegna
uppsafnaðar eftirspurnar. Jólin
2012 og 2013 hægðist aftur á aukn-
ingunni og kallaðist á við viðvar-
andi háar atvinnuleysistölur og lít-
inn efnahagsbata.
Ekki skemmir heldur fyrir þessi
jólin að eldsneytisverð hefur verið
á hraðri niðurleið svo bandarískir
neytendur hafa peninga aflögu
sem áður hefu farið í að fylla tank-
inn á bílnum. ai@mbl.is
Bandarískir neytendur kaupglaðir
FP
Bjartsýni? Ágæt jólaverslun vestanhafs kann að vera til marks um bata í
efnahagslífinu. Lækkandi olíuverð hefur líka jákvæð áhrif á kaupmátt.
Stigvaxandi sala alla jólavertíðina skilaði töluverðri aukningu milli ára
Viðskiptavinir McDonalds-
veitingastaðanna í Japan hafa þurft
að búa við skort á frönskum kart-
öflum undanfarnar vikur. Hefur
veitingastaðakeðjan þurft að
skammta þær og aðeins gefið
minnstu stærð með hverri máltíð.
Stjórnendur keðjunnar gripu til
þess ráðs að fá franskar sendar til
landsins með flugi og hafa nú til-
kynnt að búið sé að komast fyrir
mesta frönskuskortinn. Frá og með
5. janúar verður aftur hægt að panta
bæði miðstærð og stórar franskar.
The Guardian greinir frá því að
frönsku-ástandið hafi skapast vegna
mótmælaaðgerða hafnarverka-
manna á vesturströnd Bandaríkj-
anna. Hafa þeir hægt mjög á allri
vinnu og undirmannað hafnir svo að
útflutningur til Japan hefur goldið
fyrir. ai@mbl.is
AFP
Undirstaða Viðskiptavinur pantar sér máltíð á McDonalds í Tókýó. Yfir
þúsund tonn af frönskum hafa verið flutt til Japan með flugi upp á síðkastið.
Japanar fengu neyðar-
sendingu af frönskum
Sendar með flugi yfir Kyrrahafið
Á meðan hlutabréfamarkaðir á
Vesturlöndum fóru í jólafrí voru
margir asískir markaðir áfram
opnir. Hlutir í kínverskum fjár-
málafyrirtækjum sveifluðust upp á
við síðustu tvo daga vikunnar og
áttu stóran þátt í að ýta Shanghai
Composite-vísitölunni upp um 2,8%
á föstudag. MarketWatch segir
hækkun fjármálafyrirtækja stafa af
ákvörðun stjórnvalda í Peking að
slaka á lánareglum. Nýjar reglur
gefa auknar heimildir til að nota
innistæður til útlána. ai@mbl.is
AFP
Prósentur Markaðstölur á skjá í
fjármálahverfi Sjanghæ.
Kínverskar
vísitölur upp