Morgunblaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Yrsu er margt til lista lagt ogljóst er að hún er óhræddvið að feta ótroðnar slóðir.Það sást til dæmis skýrt í
myndinni Salóme sem sýnd var í Bíó
Paradís fram að jólum og verður á
dagskrá RÚV að kvöldi 4. janúar nk.
Myndin fjallar um samband Yrsu við
móður sína og er
afar persónuleg
heimildarmynd.
Myndin hefur
verið sýnd í
Þýskalandi,
Spáni og Kólumb-
íu og vakið at-
hygli á hinum
ýmsu kvik-
myndahátíðum
og nú síðast í Pól-
landi, Íran og
Bosníu og Hersegóvínu. Ætli Yrsa
myndi ekki seint teljast endurspegla
hinn hefðbundna ferðalang og því er
gaman að fá að birta nokkrar ljós-
myndir og brot úr ferðasögu hennar.
Við byrjum í Szcecin í Póllandi.
„Þetta er bær sem er á landamærum
Póllands og Þýskalands. Hann er dá-
lítið eins og þýskur bær nema aðeins
fátækari og lítið búið að gera hana
upp,“ segir Yrsa sem tók nokkuð af
áhugaverðum myndum í Szcecin.
Andinn í Sarajevó
Næst á eftir Póllandi lá leiðin
yfir til Sarajevó og segir Yrsa að
heimsóknin þangað hafi verið áhrifa-
rík. „Ég var náttúrlega ekki rétt
klædd því þar var skítakuldi. Klukk-
an sex á kvöldin kom alltaf upp mikil
lykt því þá var farið að kynda húsin
Menning séð í gegnum
linsu á gamalli filmuvél
Kvikmyndagerðarkonan Yrsa Roca Fannberg hefur verið á töluverðu flakki síð-
ustu mánuði í tengslum við kynningu heimildarmyndar sinnar Salóme. Myndin
hefur hlotið verðlaun á borð við Best Nordic Documentary á kvikmyndahátíðinni
Nordisk Panorama. Yrsa hefur nýtt tímann vel á ferðalögunum og tekið áhuga-
verðar ljósmyndir á gamla filmuvél, meðal annars í Teheran og Sarajevó.
Ljósmyndir/Yrsa Roca Fannberg
Blöðrur Hann var einmana að sjá, bosníski sölumaðurinn með blöðruknippið.
Sarajevo „Blindur bíll“ er heiti þessarar ljósmyndar Yrsu Roca Fannberg.
Yrsa Roca
Fannberg
Í dag á milli klukkan 17 og 20 opna
myndlistarmenn vinnustofur sínar í
húsnæði SÍM á Seljavegi 32 í Reykja-
vík. Listamennirnir eru þau Katlinka
Theis frá Þýskalandi, Eeva-Liisa Pu-
hakka frá Finnlandi, Ekaterina Gavr-
ilova og Alexandra Suvorova frá
Rússlandi, Katie Turnbull frá Ástralíu,
Ieva Saulite frá Lettlandi, Immo Ey-
ser frá Þýskalandi og Robert Clark
frá Bretlandi.
Öll eru þau gestalistamenn SÍM og
í kvöld gefst tækifæri til að ræða við
þau um listina. Boðið verður upp á
veitingar frá öllum löndunum og
einnig verður leikin þjóðleg tónlist.
Á vef SÍM má fræðast nánar um
listamennina og það fjölbreytta starf
sem unnið er innan félagsins. Þar má
einnig skoða þá viðburði sem fram-
undan eru í geiranum á komandi
mánuðum.
Vefsíðan www.sim.is
Morgunblaðið/ Jim Smart
SÍM Fjöldi listamanna er með aðstöðu í húsinu á Seljavegi 32 í Reykjavík.
Opnar vinnustofur listamanna
Jólamessa verður haldin í Úthlíð-
arkirkju í Biskupstungum eins og
undanfarin ár á þriðja degi jóla. Í dag
hefst hún klukkan 16.00. Allir velunn-
arar kirkjunnar eru hvattir til að
mæta og taka þátt í safnaðarstarf-
inu. Að athöfn lokinni gefst gestum
tækifæri til að ræða saman yfir rjúk-
andi messukaffi. Úthlíðarkirkja var
vígð árið 2005 og heiðurinn af bygg-
ingu hennar eiga þeir Björn Sigurðs-
son, ferðaþjónustubóndi í Úthlíð, og
Gísli Sigurðsson, bróðir hans, sem
hannaði kirkjuna og málaði
altaristöfluna.Úthlíðarkirkja tekur
120 manns í sæti.
Endilega ...
... verið við
jólamessu
Morgunblaðið/RAX
Jól Messa verður í Úthlíðarkirkju.
Spilið Snack Attack! er í raun spil
á fljúgandi ferð. Það er einfalt og
ætlað leikmönnum frá fjögurra ára
aldri. Spilið gengur hratt fyrir sig
þannig að séu leikmenn ekki nægi-
lega snarir í snúningum tapa þeir
einfaldlega og til þess er nú leik-
urinn gerður. Leikfyrirkomulagið er
á þá leið að hver leikmaður velur
sér snarldisk. Sérstakt snúningsfat
með snarlskífum er sett á miðju
borðsins til að allir eigi að því
greiða leið. Einn leikmaður gegnir
stöðu kokksins sem fyllir á fatið og
snýr því með þar til gerðu hand-
fangi og þá byrjar ballið. Skífur
fara í hólfin sjö á fatinu og þegar
leikmaður sér skífu með mynd af
sama snarli og hann er með á sín-
um diski á hann að kalla upp nafn-
ið, taka skífuna og setja á diskinn.
Spilið gengur því út á að para sam-
an myndir og sá vinnur sem safnað
hefur flestum skífum. Spilið er til
þess fallið að þjálfa fínhreyfingar,
samhæfingu, einbeitingu, minni og
eftirtektarsemi.
Verð: Frá 2.999 kr.
Aldur: 4+
Fjöldi leikmanna: 2 - 6
Sölustaðir: Helstu stórmarkaðir
og bókabúðir.
Spil vikunnar: Snack Attack!
Staflað, snúið og snarli safnað
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.