Morgunblaðið - 27.12.2014, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2014
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi
Ingvar Jónasson,
víóluleikari, lést á
Landakotsspítla á
jóladag, 25. desember,
87 ára að aldri.
Ingvar fæddist á
Ísafirði 13. október
1927. Hann starfaði
með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands frá því
hún var stofnuð árið
1950 til 1972 að frá-
töldum tveggja ára
námstíma í Austurríki.
Árið 1972 fluttist
Ingvar til Svíþjóðar og
lék þá með sinfóníuhljómsveitinni í
Malmö. Var þar til 1983 en réðst þá
til Konunglegu óperunnar í Stokk-
hólmi og var þar til 1989. Flutti
Ingvar þá aftur til Íslands og starf-
aði með Sinfóníuhljómsveit Íslands
til starfsloka.
Ingvar kenndi við Tónlistarskóla
Reykjavíkur til fjölda
ára og síðar við tón-
listarháskólana í
Malmö og Gautaborg
til ársins 1983. Starf-
aði hann mikið með
kammersveitum,
stærri og minni, kom
til Íslands með
sænska listamenn og
var ötull við kynningu
á íslenskum tón-
skáldum í Svíþjóð. Í
Svíþjóð annaðist hann
kennslu á ýmsum
námskeiðum.
Stuttu eftir heimkomuna frá Sví-
þjóð, árið 1989, stofnaði Ingvar
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og
stjórnaði henni lengi. Eftirlifandi
kona Ingvars er Stella Margrét
Sigurjónsdóttir og eignuðust þau
þrjú börn; Sigurjón Ragnar, Vigfús
og Önnu.
Andlát
Ingvar Jónasson
Jarðskjálftahrina sem á upptök sín
um 10 km norður af Geysi hófst á
jóladag. Frá hádegi á jóladag þar
til síðdegis í gær mældust þrjátíu
skjálftar. Skjálftahrina hefur staðið
yfir frá því um helgina og rétt fyrir
klukkan 6 á jóladagsmorgun mæld-
ist skjálfti upp á 3,2 stig. Hann
fannst við Geysi í Haukadal, í Mið-
dal austan við Laugarvatn og við
Syðri-Reyki í Biskupstungum.
Um 560 jarðskjálftar mældust í
vikunni, þar af um 340 í Bárðar-
bungu. Á jóladag mælist þar skjálfti
upp á 5 stig.
vidar@mbl.is
Skjálftahrina við Geysi í Haukadal
Ingimar Jóhannsson, BS-nemi í um-
hverfis- og byggingarverkfræði við
Háskóla Íslands, hefur hlotið viður-
kenningu úr Minningarsjóði Þor-
valdar Finnbogasonar stúdents.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir
Þorvaldar, afhenti styrkinn við há-
tíðlega athöfn á Háskólatorgi um
síðustu helgi. Tilgangur minn-
ingarsjóðsins er að styrkja efnilega
nema í verkfræði við skólann til
framhaldsnáms í verkfræði. Nem-
andi sem er með hæstu meðal-
einkunn eftir annað ár í grunnnámi
fær styrkinn hverju sinni.
Viðurkenning fyrir
afburðaárangur
Verkfræði Ingimar Jóhannsson fékk
styrkinn úr hendi Vigdísar Finnbogadóttur.
Morgunblaðið/Kristinn
ÚR BÆJARLÍFINU
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Kátir jólasveinar koma alltaf í
byggðina á aðfangadag og bera út
jólapóst Þórshafnarbúa. Björg-
unarsveitin er þeim innan handar
og keyrir þá á milli húsa með póst-
inn. Galsi getur hlaupið í sveinkana
ef þeir finna hangikjötsilm, eins og
tvíburarnir Sæmundur og Mikael
komust að, þegar Ketkrókur og
Gáttaþefur komu heim til þeirra
með jólapóstinn. Þeir horfðu stór-
eygir á eftir jólasveinunum sem
stukku inn í eldhúsið hjá mömmu
þeirra og þrifu hangikjötspottinn af
eldavélinni.
Þótt bæði Kóngulóarmaðurinn
og Hulk væru viðstaddir þá höfðu
þeir ekkert í Ketkrók að gera og
máttu horfa á eftir honum út í snjó-
skafl með fullan hangikjötspottinn.
Ekki tókst þó betur til en svo að
sveinki datt í snjónum og pottur,
hangiflot og hangikjötsbitar þeytt-
ust um allt.
Drengjunum ofbauð meðferðin
á jólahangikjötinu og báðu föður
sinn að taka sveinkana fasta en
hann var bílstjóri jólasveinanna og
lét þá fara sínu fram. Hangikjötinu
var bjargað úr snjónum en þá höfðu
þessir fjörugu jólasveinar komist í
konfektið og dreifðu því um garðinn
svo börnin hlupu á eftir og tíndu
upp molana í snjónum. Þeim fannst
að Grýla hefði átt að ala þessa
stráka betur upp og ætti að flengja
þá með vendi þegar þeir kæmu
heim.
Jólaverslun hófst hér með fyrra
móti en stór jólamarkaður er hald-
inn í íþróttahúsinu í nóvemberbyrj-
un. Þetta er fimmta árið sem slíkur
jólamarkaður er haldinn og við-
tökur heimafólks hafa verið góðar
og kærkomið að fá vörur og þjón-
ustu heim í hérað. Verslanir komu
víða að með vörur sínar; frá Ak-
ureyri, Húsavík, Neskaupstað og
ýmsir þar á milli, auk heimafólks.
Kaffihús og lifandi tónlist var á
staðnum og í þetta sinn voru lifandi
hænuungar til sölu en ungabásinn
var vinsæll hjá börnunum. Þessi
viðburður verður árlegur í nóv-
ember og er fólk sammála um að
gott sé að taka mesta kúfinn af jóla-
innkaupunum á einum stað, enda
fjölbreyttur varningur í boði, allt
frá handverki að heimilistækjum og
flatskjám, sem hafa selst vel. Smá-
kökusamkeppni var haldin í fyrsta
sinn og voru veglegir vinningar fyr-
ir bestu kökurnar og búast má við
enn fleiri þátttakendum á næsta ári.
Bændur í byggðinni una vel
sínum hag eftir einmuna sum-
arblíðu og gott haust. Fé er vel
fram gengið, fallþungi yfir með-
allagi og hey voru mikil og góð. Féð
var tekið fremur seint inn til rún-
ings í þessari góðu tíð þar sem úti-
beit hélst óvanalega lengi og hey-
sparnaður því töluverður.
Ekki hefur gefið vel til róðra
hjá smábátum en tveir bátar eru á
línuveiðum. Bræla hamlar sjósókn
en afli er fínn þegar gefur á sjó.
Nóvember og desember voru fá-
dæma lélegir, einn eða tveir róðrar
í desember í vindi og brælu. Áfram
verður þó haldið á línunni eftir ára-
mót með von um betri tíð.
Ketkrókur tók með sér hangikjötspottinn
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn Ketkrókur og Gáttaþefur stálu hangikjötspotti húsfreyju á
Hálsveginum en hvorki Hulk né Kóngulóarmaðurinn gátu stöðvað það.