Ský - 01.04.2007, Page 11

Ský - 01.04.2007, Page 11
 sk‡ 11 enginn meira en þeir. En þeir eru fyrstir til að púa á viðkomandi söngvara ef hann syngur illa því þeir eru mjög samkvæmir sjálfum sér! Ég held að ég geti fullyrt að þetta fólk í „klappliðinu“ er upp til hópa hið besta fólk sem ber óperumenninguna mjög fyrir brjósti og það er til staðar í flestum stærri óperuhúsum í Evrópu. Engin manneskja og enn síður söngvari getur leyft sér að sýna „loggionisti“ vanvirðingu eða móðga þá og aðra leikhúsgesti, eins og gert var í þessu tilfelli! Þú hefur sungið í um 73 mismunandi óperum sem er meira en flestir aðrir óperusöngvarar hafa gert. Hver eru þín uppáhaldshlutverk? - Ég á í rauninni mörg uppáhaldshlutverk en eins og ég hef sagt oft áður þá er það hlutverk sem ég er að vinna við og sinna hverju sinni sem er mér kærkomnast. Mér er skylda að virða og elska það hlutverk sem ég er að syngja í það og það skiptið. Verdi er mitt uppáhalds- tónskáld en ég hef sungið 19 af óperum hans og þær eru margar góðar og glæsilegar. Verdi var algjör meistari sem tónsmiður en hann skrifaði óperurnar sínar með raddirnar í forgrunni, þannig að það er einstaklega gott að syngja Verdi-óperurnar. Hann kemur sér fljótt að efninu og söguþráðurinn er yfirleitt stuttur og einfaldur. Verdi var fyrst og fremst almúgatónskáld því hann náði bæði til tónlist- armanna jafnt sem verkamanna á götum úti, bæði á sínum tíma og svo er einnig í dag. Aríurnar hans og dúettarnir eru öllum sem unna óperutónlist hjartnæmar og um leið grípandi. Hvaða ópera er þér minnisstæðust? - Ég hef sungið 73 óperur eins og áður sagði þannig að það er af mörgu að taka. Þó held ég að í minningunni sé það „Grímudans- leikur“ eftir Verdi, sem ég söng í Metropolitan-óperunni í New York, sem stendur upp úr. Ekki síst vegna þess að James Levine, hljómsveitarstjóri í Metropolitan, stjórnaði þessum sýningum og hann náði fram hjá mér hljóðum sem ég hélt að ég ætti ekki til, bæði í mýkt og tilfinningu. Annars hefur það verið mitt mottó alla tíð að gera mitt besta í hverju hlutverki sem ég hef sungið og gefa mig allan. Ein af stærstu stundunum á mínum ferli var að sjálfsögðu frumraun mín á Scala í Mílanó, árið 1988, en þá söng ég í „I Due Foscari“. Þetta var stór stund, ég var ekki bara að „debútera“ á Scala, ég var líka að „debútera“ undir stjórn hins virta Maestro Gavazzeni sem tók mig þarna undir sinn verndarvæng! Og Scala er bara Scala og þarna var ég kominn, íslenskur stráklingur að norðan og mér fannst eins og ég gæti fundið lyktina af öllum þessum stórstjörnum sem þarna höfðu verið á ferð á undan mér. Þetta var mjög sérstakt augnablik. Þetta eru með stærstu atburðunum sem ég man eftir. Þú hefur verið sagður skilgreina þig núna sem drama- tískan tenór - það er tenór í frekar þungum óperum. Hvers vegna hefur þú lagt áherslu á þessa hlið söngsins? - Það getur enginn lagt áherslu á raddtegund sína því hún er til staðar frá náttúrunnar hendi. Þannig má segja að ég hafi verið dramatískur tenór frá upphafi. Því þegar ég var sem ungur maður að byrja að syngja kom fljótlega í ljós að bæði raddlega sem líkamlega Kristján Jóhannsson Í hlutverki Cavaradossi, úr Tosca eftir Puccini, á Metro- politan Opera New York. var ég dramatískur. Einnig hefur skapferlið áhrif þannig að þessir þrír þættir hafa örlagaáhrif um lit og notkun raddarinnar, svo mín örlög voru því strax ráðin. Sigurður Demetz uppgötvaði þig sem söngvara á Akur- eyri og hvatti þig til að fara í nám til Ítalíu. Hvaða góðu ráð gaf hann þér í veganesti? - Fyrst vil ég segja: blessuð sé minning hans. Hann leiddi mig inn á rétta braut en eins og allir vita þá eru fyrstu skrefin mjög áríð- andi. Það sem hann brýndi fyrir mér fyrst og fremst er tvennt; í fyrsta lagi sjálfsagi og í öðru lagi sjálfsgagnrýni. Ég er mjög sjálfsgagnrýn- inn og vinnusamur en þetta tvennt hef ég tekið upp eftir mínum gamla læriföður í minni kennslu og brýni óspart fyrir ungum söngvurum og nemendum mínum. Það að verða óperusöngvari og

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.