Ský - 01.04.2007, Síða 57
Inni í dimmri kirkjunni voru unglingar
þorpsins að syngja. Stúlkurnar öðrumegin,
piltarnir hinumegin. Og þvílíkur söngur,
gleði og taktur. Þeim fipaðist ekkert við
það að fá hvítan mann að setjast inn og
hlusta. Eftir klukkutíma var allt yfirstaðið.
Og gengið sönglandi heim í myrkrinu,
enda er ekkert rafmagn á þessum slóðum.
Aftur á þakinu, það var jú eina gistingin
sem boðið var upp á í þessum heimshluta,
varð himinninn enn stærri, stjörnurnar
eins og glaðværar nótur í lagi sem engan
á sér líka.
Í Vestur-Afríku býr fólk sem er glatt, vin-
gjarnlegt og forvitið. Vestur-Afríka á staði
sem eiga engan sinn líka. Sögulega, land-
fræðilega og náttúrulega. Eyjan Ile de Gorée
fyrir utan milljónaborgina Dakar, höfuðborg
Senegal sem er stærst borga Vestur-Afríku
með yfir fjórar milljónir íbúa. Á eyjunni
var miðstöð þrælaverslunarinnar í Afríku
fyrir tveimur öldum. Þar sem 20 milljónir
blámanna voru fluttir nauðugir yfir Atl-
antshafið. Helmingurinn dó á leiðinni. Eða
Djené í Malí, sem er 22.600 manna borg,
öll byggð úr leir. Þar er eins og tíminn hafi
staðið í stað í áttahundruð ár, þúsund ár.
Moskan er á stærð við Laugardalshöllina, en
öll úr leir. Stærsta leirhús veraldar. Undra-
verður bær. Eða Timbuktú (32.460), endi
alheimsins. Já endi veraldar. Þar sem brenn-
heit Sahara-eyðimörkin endar, eða byrjar.
Endastöð þar sem eru götur fullar af sandi,
búðir fullar af sandi, augu full af sandi. Sól
sem brennur, hitastig nær fimmtíu en fjöru-
tíu stigum. Fólki sem er forvitið og glatt, og
einmana vesturlenskum ferðamönnum sem
vita ekki alveg af hverju þeir eru hér. Þeir
hafa allavega komið til Timbuktú. PS sky
,
sk‡ 57
Stærsta leirbygging
veraldar, moskan í
Djenée í Mali.