Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Page 83

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Page 83
stööu sem ömmur eöa tengdamæður innan fjölskyldunnar (Brown, 1982; Kems og Brown, 1992). Innan fomleifafræöinnar hvöttu annarrar kynslóöar femínistar til rannsókna á hlutverkum kvenna, menningarbundnum áhrifum á framleiðslu þeirra innan heimilisins og fjölskyldunnar, samhliða því sem reynt var að draga fram í dagsljósið menningarbundnar bre\tingar almennt (Gero og Conkey, 1991). I þessum rannsóknum var ýmist litið á konur sem einsleitan hóp eða að þær gegndu mikilvægu menningariegu hlutverki, óháð aldri, stétt og sögulegri eða meimingariegri stöðu. Litið var á mismunandi lífsferli konunnar sem aukaatriði við rannsóknir á hlutverkum hennar, t.d. álirif aldurs við fæðuöflun og hrevfanleika, eöa miðlun upplýsinga um hlutverk kvenna á milli k\Tislóða innan kvenleggs fjölskyldunnar (Spector, 1983; Brumbach og Jarvenpa. 1997). Tímamót urðu svo í fræðunum vegna tveggja nýrra en þó aðskildra áherslna innan þeirra: þriðja kynslóð femínista leit dagsins ljós og farið var að leggja áherslu á líkamann sem rannsóknarefni. Með þriðju kynslóð femínista breyttust áherslumar frá rannsóknum á ójöfnuði í rannsóknir á mismun (Meskell. 1996). Þeirri skoðun að allar konur (eða allir menn) deildu með sér eðlislægri reynslu var hafnað en í stað þess var leitast við að greina mun á körlum og konum, eða jafhvel bera saman kvnferði, eþnískan bakgmnn eða félagslega stöðu karla og kvenna (Harding, 1991). Þriðja kynslóð femínista opnaði fyrir nýjar víddir, s.s. þeldökka femínísmann (e. Black Feministri) og hinsegin femínismann (e. Oueer Feminism) (t.d. Amos og Parmar, 1984; Lauretis, 1991), þar sem færð vom rök fyrir kyngervatengdri rc\ nslu byggöri á eþnískum og kynferðislegum þáttum. Báðar þessar nálganir hafa nú verið notaðar innan fomleifafræðinnar (Franklin, 2001; Dowson, 2000; Schmidt og Voss, 2000). En vegna hins augljósa skorts á aldursrannsóknum innan fornleifa- fræðinnar má jafnframt velta fyrir sér hvort hinn aldurstengdi þáttur samsemdar sé álitinn vera eingöngu líffræðilegs eðlis og í ríkari mæli en kvngervi, eþnískur uppmni eöa kynferði. Við rannsóknir á ævi manneskjunnar (e. human life history) er ríkjandi önnur nálgun sem byggir á þróunarsinnaðri líffræði (Morbeck, Galloway og Zihlman, 1997). Kennileg nálgun við rannsóknir á ævi manneskjunnar (e. life-history theory) kom fram á sjónarsviðið sem andstaða gegn því sjónarmiöi félagslegra fræðimanna að „... allar þróunarsinnaðar skoðanir um mannlega hegðun væm af sama meiði vegna sameiginlegra meðfreddra erfðaffæðilegra þátta og doða gagnvart sögulega mótandi áhrifúm - sér í lagi þeim sem hafa álirif á mismun vegna kynþáttar, stéttar og kvngervis...“ (Chrisholm, 1993, bls. 1). Módelið um ævi manneskjunnar lýsir eingöngu atburðum í mennsku lífi út frá þróunar- sinnuðu sjónarhomi, til þess eins að sýna fram á endursköpun og þroska ffábemsku til öldmnar. Þessi flokkun manneskjunnar byggir í raun á samanburði hennar við prímata eða önnur spendýr, en vekur samhliða því atliygli á þróun ýmissa þrepa í lífsferli manneskjunnar. Sem dæmi má nefna kenninguna um ömmuna (e. the grandmother hypothesis), en hún felur í sér langvinnan æviferil konu sem lifað hefúrtíðahvörfí þeim líffræðilegatilgangi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.