Allt um íþróttir - 01.02.1952, Qupperneq 3
ALLT UM ÍÞRÓTTIR
TÍMARIT UM INNLENDAR □□ ERLENDAR ÍÞRDTTIR
ritstjdrar:
RAGNAR INGDLFSSDN □□ ÖRN EIÐSSON
ÁBYRGÐARMAÐUR:
OÍSLI ÁSMUNDSSDN
utanáskrift:
tímaritið íþrdttir.
DRÁPUHLÍÐ 32
1. HEFTI JAN.-FEBR. III. ARG.
Forseti íslands, herra Sveinn
Björnsson, hefúr nýlega lokið ævi-
skeiði sínu. IVIeð fráfalli hans hef-
ur íþróttahreyfingin misst vernd-
ara sinn og öflugan stuðnings-
mann. Það var henni dýrmætt, að
í embætti þetta skyldi veljast á
sínum tíma maður með svo ríkan
skilning á gildi íþróttanna fyrir
landsmenn, og sýndi hann það oft-
lega í verki, með því að koma
fram við hátíðleg tækifæri íþrótta-
manna og við íþróttasýningar,
auk þess, sem hann áður fyrr tók
virkan þátt í íþróttastarfseminni.
Þess er skemmst að minnast, að
við heimkomu hinna fræknu Briis-
sel-fara 1950, var herra Sveinn
Björnsson mættur fyrstur manna,
öllum að óvörum, til þess að þakka
þeim í nafni þjóðarinnar fyrir unn-
in afrek. Hann lét þess getið, að
hann hefði ekki viljað missa af
því að vera meðal þeirra, sem
buðu þá velkomna heim.
Við útför hins látna forseta
vildu íþróttamenn sýna í verki
þakklæti sitt með því að gera hana
sem virðulegasta og mættu þar
undir fánum félaga sinna og sam-
taka. íþróttasamband íslands hef-
ur og myndað sjóð til að heiðra
minningu hans. Megi sú minning
lifa og dafna í hjörtum komandi
kynslóða, að hinn fyrsti forseti ís-
lenzka lýðveldisins var öflugur
stuðningsmaður hvers konar
menningarmála og ekki sízt
íþróttaiðkana; að hann gegndi
hinu vandasama hlutverki sínu í
þjóðfélaginu sem forseti með
virðuleik og festu og vann sér ást-
sældir allra þegna hins unga lýð-
veldis.
Blessuð sé minning hans.