Allt um íþróttir - 01.02.1952, Blaðsíða 4
VI. Vetrar-Ólympíuleikiinum lokið:
Norðmenn sigruðu glœsilega.
Islendingar sýndu mikla framför frá fyrri leikum.
Á VI. Vetrar-Ólympíuleikunum,
sem fóru fram dagana 14.—26.
febr. í Noregi, fengu Norðmenn
flesta meistara eða 7 talsins og
sigruðu mjög glæsilega, hlutu
104.5 stig. Næstir urðu Banda-
ríkjamenn með 77.5 stig, þá Finnar
með 63, Austurríkismenn hlutu 54,
Þýzkaland 41.5 og Svíar 29 stig.
íslenzku keppendurnir stóðu sig
nú mun betur en 1948 í Sviss, og
báru af þeir Ásgeir Eyjólfsson, er
varð 27. í svigi af 86 keppendum,
og Gunnar Pétursson, sem varð 32.
í 18 km. göngu af 88 keppendum.
Alpa-greinarnar.
Það varð flestum undrunarefni,
hve góðum árangri Norðmenn náðu
í svigi og bruni, en þeir hafa ekki
staðið sig vel á fyrri leikum í þeim
greinum. Norðmaðurinn Stein Er-
iksen sigraði í stórsvigi, varð ann-
ar í svigi og sjötti í bruni, og landi
hans Guttorm Berge varð þriðji í
svigi. Auk þeirra stóðu sig mjög
vel Per Rollum (8. í svigi) og
Gunnar Hjeltnes (7. í bruni).
En þótt Norðmenn vektu mikla
athygli, þá voru þjóðimar, sem að
Ölpunum liggja, í meirihluta með-
al hinna sex fyrstu. Austurríkis-
maðurinn Othmar Schneider hlaut
gullverðlaunin í svigi og silfrið í
bruni og ítalinn Zeno Colo varð
fyrstur í bruni og 4. í stórsvigi og
svigi.
Hvað þátttöku íslendinganna
snertir, þá getum við verið ánægð
með frammistöðu þeirra, þar sem
framför hjá þeim er augljós. Hér
má ekki láta staðar numið, heldur
gefa þeim tækifæri til þess að
keppa miklu oftar erlendis.
Norrænu greinarnar.
Enn þá eru það Norðurlandabú-
ar, sem eru hæstráðandi í göngu
og stökki. Norðmaðurinn Brenden
sigraði í 18 km. göngunni og Finn-
inn Hakulinen í 50 km. Finnamir
stóðu sig bezt í göngugreinunum,
áttu 2., 3. og 4. mann í 18 km.,
1., 2. og 5. mann í 50 km. og sigr-
uðu í boðgöngunni. Aftur á móti
báru Norðmennirnir af í stökkum,
auk þess sem þeir áttu marga af
beztu göngumönnunum. Arnfinn
Bergmann sigraði í stökki, og
Norðmenn voru einnig í 2., 4. og 6.
sæti, og Simon Sláttvik varð fyrst-
ur í tvíkeppninni og Norðmenn
voru í 3., 5. og 6. sæti. Annars var
baráttan um fyrsta sætið í tví-
keppninni afar hörð, þar sem
Heikki Hasu frá Finnlandi, sá sem
varð sigurvegari á síðustu ÓL, náði
afbragðs tíma í göngunni og varð
fjórði í henni, en Sláttvik varð 15.
Sláttvik stóð sig miklu betur en
6
IÞRÓTTIR