Allt um íþróttir - 01.02.1952, Page 9
Orðið er laust:
BYggjct þarf hús fyrir íþróttasýningar
í miðri Reykjavík.
Höfuðvandamál íþróttafélag-
anna í Reykjavík í dag, sem raun-
ar alltaf áður, er fjárskorturinn.
Starfskraftar hinna áhugasömu
manna, sem að íþróttamálunum
vinna, fara orðið að m'estu í vinnu
við tekjuöflun, en þeim verður lít-
ið ágengt, og má þá nærri geta,
hver árangur félaganna á sviði
sjálfra íþróttanna verður með
slíkri útgerð.
Að vísu fæst lítils háttar styrk-
ur frá bæ og ríki, sem er þakk-
samlega þeginn, þó segja megi að
það sé skylda þjóðfélagsins að hlúa
að íþróttahreyfingunni af fremsta
megni, fremur en kasta peningum
í stúkumar og næturskemmtanir
þeirra, sem bera þann raunhæfa
árangur, að sjóðir þeirra gildna ár
frá ári, á meðan íþróttahreyfingin
berst í bökkum sökum féleysis.
Enda þótt nú sé loksins veitt
leyfi til reksturs getraunastarf-
semi, til ágóða fyrir íþróttamálefni
landsmanna, þá er alveg óvíst hve-
nær sú starfræksla fer að gefa
nokkum arð, ekki sízt ef skipta á
ágóðanum í fleiri staði, eins og
krafa hefur nýlega komið fram
um.
Hvað skal gera? — Er nokkur
lausn til á þessum málum?
Svo er, og það er einmitt vegna
peningaleysis, að ekki hefur verið
hægt að framkvæma verkið. — í
miðri Reykjavík þarf að rísa hús
yfrir íþróttasýningar, sem rúmar
a. m. k. 1500 áhorfendur. íþrótta-
húsið að Hálogalandi er bæði allt
of lítið og of langt frá miðbænum
til þess að það komi að tilætluðum
notum. Hús þetta mundi ekki að-
eins verða lyftistöng fyrir íþrótta-
starfsemi höfuðstaðarbúa, heldur
og fyrir margs konar málefni önn-
ur, sem gætu fengið það leigt til
afnota til fjáröflunar, en slík hús
eru nauðsynleg hverri borg. í ráði
mun vera að byggja hér skála fyr-
ir væntanlega iðnsýningu og hef-
ur heyrzt, að sú bygging muni
kosta allt að 5 milljónir króna.
Hér er einstakt tækifæri fyrir
íþróttasamtök Reykvíkinga að
koma ár sinni vel fyrir borð og
reyna að ná samningum við hlut-
aðeigandi aðilja um afnot eða kaup
á byggingunni, er sýningunni lýkT-
ur, og jafnframt að fá hana byggða
með það fyrir augum, að í henni
verði með minnstum kostnaði hægt
að koma fyrir sýningarsvæði eða
leikvangi fyrir íþróttamenn, auk
sæta fyrir áhorfendur.
Gaman væri að fá álit sérfróðra
manna um þetta, hvort það er ekki
mögulegt, því að með þessu móti
einu virðist vera von um að koma
upp nothæfu sýningarhúsi.
R. I.
IÞRÓTTIR
11