Allt um íþróttir - 01.02.1952, Síða 10
Kristján Ingólfsson:
Afrekaskrá Islendinga í frjálsíþróttum
árið 1951.
Það er gamall og gegn siður að
staldra af og til við á lífsleiðinni
og horfa yfir farinn veg, athuga
gang mála og leitast við að byggja
rökfastar ályktanir á þessum at-
hugunum sínum.
íþróttaárið 1951 varð íslending-
um fyrir margra hluta sakir eftir-
minnilegt. Stórir hlekkir bættust
í sigurkeðju íslenzkra íþrótta-
manna og hróður þeirra barst víð-
ar um heim en áður. — En gam-
alt máltæki segir, að vandasam-
-ara sé að gæta fengins f jár en afla,
og þetta verða forystumenn
íþróttahreyfingarinnar jafnan að
hafa í huga, svo að áfram haldi
að vaxa orðstír sá, er farið hefur
af íþróttamönnum okkar hin síð-
ari ár. En allt gengur af sér og
eins er það með íþróttamennina.
Aðeins lítinn hluta ævi sinnar
standa þeir á hátindi hvað afreks-
getu snertir, og því verður stöð-
ugt að hafa vakandi auga á nýj-
um mönnum til að fylla í skörðin,
svo að jafnan sé sigurvænlegt lið
til fyrir hendi. Og þetta á ekki
hvað minnstan þáttinn í því, að
íþróttirnar nái því takmarki sínu
að ná til fjöldans, því margan
ungan manninn dreymir um met-
orð á íþróttasviðinu, auk þess, sem
löngunin til hressandi hreyfingar
fær útrás í íþróttunum.
Afrek íslendinga í frjálsum
íþróttum á því herrans ári 1951
voru á flestum sviðum ágæt, jafn-
vel þótt að undanskilin sé hin
margtönglaða setning: „miðað við
fólksfjölda“. Að vísu ber ekki að
leyna því, að á stöku stað er um
afturför að ræða, en víða er einn-
ig framför og yfir því ber að
gleðjast.
Hér birtast svo 10 beztu afrek
íslendinga 1951 í greinum frjáls-
íþrótta.
100 metra hlaup:
Finnbjörn Þorvaldsson, I.R.........10.7
Haukur Clausen, I.R................10.7
Ásmundur Bjarnason, K.R............10.7
HörSur Haraldsson, Á...............10.8
örn Clausen, l.R...................10.8
Alexander SigurSsson, K.R..........11.0
Pétur Fr. SigurSsson, K.R..........11.0
Torfi Bryngeirsson, K.R............11.1
Grétar Hinriksson, Á...............11.1
Gudmundur Lárusson, Á..............11.1
Finnbjörn náði árangri sínum á
innanfélagsmóti 28. júlí, og hafði
þá enginn neitt við tímann að at-
huga. Því kom það yfir marga eins
og skollinn úr sauðarleggnum, þeg-
ar fréttist, að stjórn FRÍ hefði
mörgum mánuðum síðar breytt
tímanum í 10.8. Enginn veit um
rök ,,FRÍ-stjórnar“ í þessu máli.
enda munu þau vera mjög torskil-
in. En um réttmæti þessarar breyt-
12
IÞRÓTTIR