Allt um íþróttir - 01.02.1952, Page 11
ingar leyfi ég mér að efast nokk-
uð, því það er fyrst og fremst á
valdi yfirtímavarðar í það og það
skipti að úrskurða tímann, en ekki
Höröur Haraldsson og Haukur
Clausen.
til þess ætlazt, að stjórn FRÍ geti
þegar henni sýnist gert breytingar
að eigin geðþótta, eitthvað út í
loftið. Annars ætlar að ganga illa
að venja þá, sem stjóma hinni ísl.
íþróttahreyfingu, af ýmsum sauð-
kindarlegum háttum, eins og þess-
um, því svona tortryggni í garð
mótastarfsmanna gerir íþrótta-
hreyfingunni mikið ógagn.
Það er ekki gott að skera úr því,
hver hafi verið beztur af þessum
spretthlaupurum sumarið 1951.
Hörður er þeirra jafnbeztur og
með glæsilegastan feril að baki
eftir þetta sumar, þótt honum tæk-
ist aldrei að hreppa 10.7 í löglegu
veðri. Annars hljóp Hörður fjór-
um sinnum á 10.8, þrisvar á 10.9
og einnig tvisvar á 10.7 í meðvindi.
Þar. að auki sigraði hann svo í báð-
um spretthlaupunum (100 og 200
m.) í landskeppninni í Osló. Hörð-
ur tapaði tvisvar fyrir íslenzkum
100 m. hlaupara s.l. sumar: Fyrir
Hauk í Uppsölum, og hlutu þá báð-
ir sama tíma, 10.9, og fyrir Finn-
birni 20. júlí, einnig báðir á 10.9.
Þetta gefur til kynna mjög mikinn
styrkleika hjá Herði.
Haukur varð meistari á 10.7 —
eftir harða keppni við Ásmund, er
hlaut sama tíma. Þá hlaut hann
10.4 og 10.5 í meðvindi og einnig
nokkrum sinnum 10.8 og 10.9.
Hann tapaði einu sinni, fyrir Ás-
mundi 20. júlí. — Ásmundur hlaut
fjórum sinnum 10.8, þrisvar 10.9
og einu sinni 10.7, en tapaði þá
fyrir Hauk eins og áður er um get-
ið. — Örn hljóp þetta sumar að-
eins tvisvar undir 11.0 í löglegu
veðri, en vitanlega gefur það alls
ekki rétta hugmynd um styrkleika
hans.
Þá kemur okkar ungi og efnilegi
Alexander. Hann fékk 11.8 í fyrstu
keppninni sinni, en tók svo stöðug-
um og öruggum framförum. Hann
hljóp f jórum sinnum á 11.1 og einu
sinni á 11.0. Þar að auki sigraði
hann svo á Norðurlandadrengja-
mótinu í Sandviken, og varð ísl.
drengjameistari á 10.9 í nokkrum
meðvindi. Alexander náði sínum
bezta tíma í sama hlaupi og Finn-
bjöm hljóp á 10.7, og var þá 2^2
—3 m. á fetir. Þegar FRÍ breytti
svo tíma Finnbjarnar, var líka
tími Alexanders úrskurðaður 11.1
á sama hátt.
Pétur Fr. Sigurðsson tók mikl-
13
IÞRÓTTIR