Allt um íþróttir - 01.02.1952, Qupperneq 12
um framíörum. Hann hljóp tvisv-
ar á 11.0 (en í annáð skiptið vann
Alexander hann, 28. júlí) og tvisv-
ar á 11.1. í seinna skiptið, sem
Pétur hljóp á 11.0, vann hann Guð-
mund Lárusson.
Eflaust fara þeir Alexander og
Pétur báðir undir 11.0 á komandi
sumri.
Torfi Bryngeirsson hljóp tvisv-
ar á 11.1 og einu sinni á 11.0 í
meðvindi. Ef til vill hefur það
fremur verið óheppni en getuleysi,
að hann skyldi ekki hlaupa undir
11 sek.
Grétar Hinriksson komst nú í
hóp okkar beztu spretthlaupara,
náði 11.1 á meistaramótinu. Hann
virðist hafa ágætan vöxt fyrir
spretthlaup, og ætti það því ekki
að standa í vegi fyrir framförum
hans á því sviði.
Guðmundur Lárusson hljóp 100
metra aðeins tvisvar þetta sumar
og tókst í hvorugt skiptið að kom-
ast undir 11 sek. En af spretti hans
í 4x100 m. boðhlaupinu á meist-
aramótinu mátti ráða, að hann á
ennþá yfir að ráða sprettum, sem
boðlegir eru hvar sem er.
200 metra hlaup:
HörSur Haraldsson, Á................21.6
Haukur Clausen, Í.R...............21.6
Ásmundur Bjarnason, K.R.............21.7
GuSmundur Lárusson, Á...............22.1
Pétur Fr. SigurÖsson, K.R...........22.4
Finnbjörn Þorvaldsson, I.R........22.5
Ingi Þorsteinsson, K.R..............23.1
Trausti Eyjólfsson, K.R.............23.2
Grétar Hinriksson, A................23.3
Jafet Sigurðsson, K.R...............23.3
Þorváldur Öskarsson, I.R............23.3
Hér er um afturför að ræða frá
árinu áður, þá voru 5 menn undir
22 sek., nú aðeins 3. Það dylst ekki,
að Hörður hefur verið bezti 200 m.
hlauparinn, því hann tapaði aldrei
keppni í þeirri grein allt sumarið
fyrir íslending. Um Hauk er það
að segja, að hann keppti aðeins
þrisvar í 200 m., á Óslóar-mótinu,
en þá vann Hörður, og á Meistara-
mótinu, en þá varð Hörður sjónar-
mun á undan. Ásmundur er í sömu
skorðum og 1950. Pétur Friðrik er
einnig í framför hér og e. t. v. verð-
ur hann næsti maðurinn okkar
undir 22 sek. Finnbjöm má muna
sinn fífil fegri, enda keppti hann
nú aðeins á einu móti í 200 m.
Ingi Þorsteinsson er í framför mik-
illi í spretthlaupunum og er það
honum mjög gagnlegt vegna
grindahlaupsins. Trausti náði þess-
um árangri í eina sinnið, sem hann
hljóp 200 m. á sumrinu. — Grétar,
Jafet og Þorvaldur tóku allir mikl-
um framförum, og ef þeir halda
áfram á sömu braut og hingað til,
verður gaman að sjá þá í sumar.
400 metra lilaup:
GuSmundur Lárusson, Á.............. 48.6
Ásmundur Bjarnason, K.R........... 50.1
örn Clausen, I.R................... 50.5
Ingi Þorsteinsson, K.R..............51.5
Sveinn Björnsson, K.R.............. 52.4
Haukur Clausen, I.R................ 52.9
HreiSar Jónsson, K.A............... 53.2
Hermann Sigtryggsson, K.A.........53.2
Eggert Sigurlásson, Týr............ 53.3
Þorvaldur Öskarsson, I.R........... 53.4
Rafn SigurSsson, Týr............... 53.4
Guðmundur hefur ekki verið
eins góður og sumarið 1950 (48.0
þá,), og eins er með 400 m.-skrána,
sem heild er hún lélegri en árið áð-
14
IÞRÓTTIR