Allt um íþróttir - 01.02.1952, Síða 13
ur. Ásmundur og Örn voru þá báð-
ir undir 50 sek. Öm hefur nægar
afsakanir, þótt hann hafi ekki
hlaupið þessa vegalengd nema einu
sinni þetta sumar. Hann hefur þess
utan alveg nóg á sinni könnu. En
um Ásmund og marga fleiri, sem
gætu orðið ágætir 400 m.-menn, er
það að segja, að þeir eigna þess-
ari grein ekki næga ræktarsemi.
Um aðra þama á skránni er það
að segja, að Ingi er í framför, en
gagnstætt með Svein. Tími Hauks
gefur ekki rétta hugmynd um getu
hans, en hann náði honum í hvössu
veðri 1 tugþraut.
Hreiðar, Hermann, Rafn og Þor-
valdur tóku allir framförum, en
hins vegar er Eggert rúmri sek.
lakari en 1950 (52.0 þá).
800 metra lilaup:
Guðmundur Lárusson, Á...........1:54.6
SigurSur GuSnason, l.R..........1:59.8
HreiSar Jónsson, K.A............2:00.8
Eggert Sigurlásson, Týr.........2:02.7
Stefán Gunnarsson, Á............2:03.8
Einar Gunnlaugsson, Þór, Ak. . . 2:04.2
Rafn SigurSsson, Týr............2:04.3
ASalgeir Jónsson, K.A...........2:05.5
GuSfón Jónsson, Á...............2:05.5
HörSur GuSmundsson, Umf. Kv. . 2:05.9
Þeir tveir, sem fremstir voru á
þessari skrá sumarið 1950, Magnús
Jónsson og Pétur Einarsson, vom
nú báðir erlendis og kepptu hvor-
ugur.
Guðmundur tók miklum fram-
förum og er árangur hans ágætur,
þótt mönnum dyljist hins vegar
ekki, að hann getur átt eftir að
gera enn betur. Eftir keppni hans
við Robert Chambers s.l. sumar,
er enginn vafi á, að hann er með
beztu 800 m. hlaupurum í heimi,
og með góðri þjálfun ætti honum
að vera opin leið inn í úrslit Ól-
ympíuleikanna.
Sigurður skauzt undir 2 mín. og
þar með í 8. sæti íslendinga. E. t. v.
er þessi vegalengd þó of stutt fyr-
ir hann, og ekki er ólíklegt, að
3000—5000 m. komi til með að
hæfa honum bezt. — Afrek Hreið-
ars er prýðilegt, og nýtt drengja-
met. Hann er orðinn ágætur hlaup-
ari allt frá 400 m. upp í 3000 m.
hindrunarhlaup og í svipinn er
ómögulegt að segja, hvar hann
staðnæmist.
Eggert Sigurlásson er í fjórða
sæti að þessu sinni. Langt er síðan
hann komst í röð beztu millivega-
lengahlaupara okkar, en hann hef-
ur staðið í stað og þó heldur farið
aftur. En nú þarf Eggert að taka
á sig rögg. Hann getur ef hann vill
komizt miklu neðar. „En enginn
verður óbarinn biskup“, og vissu-
lega þarf að leggja mikið á sig til
að ná góðum árangri, en það er
líka sárgrætilegt að sjá góðan efni-
við langt frá því takmarki, sem
hann gæti náð.
Þá kemur Stefán Gunnarsson,
okkar ágæti langhlaupari. Hans
bíða næg verkefni á lengri vega-
lengdum, enda á hann þar líka
betur heima.
Á eftir Stefáni kemur svo hópur
ungra manna, sem framtíðin á
vonandi eftir að lyfta ennþá ofar
á mælikvarða íþróttanna.
Það væri ekki úr vegi að reyna
að skýra nokkuð styrkleikahlut-
föllin milli nokkurra fremstu 800
IÞRÓTTIR
15